16.02.1988
Neðri deild: 58. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4621 í B-deild Alþingistíðinda. (3211)
243. mál, aðgerðir í sjávarútvegi
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Aðeins út af því sem kom fram hjá hv. 5. þm. Reykv. Í fyrsta lagi spurðist hann fyrir um að því er varðar 1. gr. frv. með hvaða hætti þessir fjármunir verði endurgreiddir. Það má segja að grundvöllurinn að þeirri skiptingu liggi fyrir í fjárlögum ársins 1987, þar sem fram kemur að 455 millj. skuli ganga til fiskvinnslufyrirtækja, 220 millj., sem eru uppsafnaður söluskattur í útgerðinni, fer til Fiskveiðasjóðs og 25 millj. kr. til Útflutningsráðs Íslands. Þetta kemur fram í fjárlögum ársins 1987 og þar var gerð sú breyting í meðferð þingsins að Útflutningsráð skyldi fá 25 millj. kr.
Nú er það svo að hér áður fyrr fengu aðilar verulega fjármuni í gegnum svokallað sjóðakerfi sjávarútvegsins sem hefur verið lagt niður. M.a. fékk Fiskveiðasjóður verulega fjármuni af útflutningsgjaldi og þetta útflutningsgjald var notað til þess að greiða niður vaxtakostnað í útgerðinni. Þegar gerðar voru aðgerðir í sjávarútvegi fyrir nokkru, upp úr því að sjóðakerfið var lagt niður, þá var tekinn upp vaxtaafsláttur á þeim lánum sem veitt voru fyrir 1. mars 1986. Þessi vaxtaafsláttur var ákveðinn 60% en hefur smátt og smátt verið lækkaður og er nú 20%. Það hefur enginn vaxtaafsláttur verið veittur á lán sem tekin voru eftir það og þar af leiðandi á þessi vaxtaafsláttur eingöngu við þann hluta flotans sem var þá kominn í gagnið. Þeir sem njóta langmest af þessum vaxtaafslætti eru aðilar sem hafa byggt skip hér innan lands. Mörg þessara skipa voru óhóflega dýr og höfðu enga möguleika til að standa undir sér og máttu allir vita sem að því stóðu á þeim tíma að hér gæti ekki nema illa farið.
Þessi mál voru leyst. Að hluta til voru skipin boðin upp og Fiskveiðasjóður tapaði miklum fjármunum, svona allt að 100 milljónum á skip, og síðan var veittur vaxtaafsláttur á þau lán sem eftir stóðu. Þessi vaxtaafsláttur var veittur til að gefa nokkra aðlögun og koma í veg fyrir að enn fleiri skip færu undir hamarinn. Þau skip, það eru a.m.k. flest þessara skipa, eru skip sem voru byggð innan lands en ekki erlendis því um margra ára skeið var ekki heimilað að skip væru smíðuð nema hér innan lands. Með þessu er ég á engan hátt að gera lítið úr þýðingu íslensks skipasmíðaiðnaðar og stöðu hans, en þetta eru staðreyndir þessa máls.
Þeir fjármunir sem hér um ræðir, þ.e. þessar 220 millj., duga til að greiða vaxtaafslátt af þessum lánum á árinu 1987 og fram á mitt ár 1988 og þá er átt við 20% vaxtaafslátt. Að því er stefnt að þessi vaxtaafsláttur falli niður eftir árið 1988, enda ættu þessir aðilar þá að vera komnir í gegnum það versta í þessu sambandi og verða að búa við sömu skilyrði og aðrir í greininni. Það var hins vegar ákveðið til þess að slíkur vaxtaafsláttur ýtti ekki undir fjárfestingar að hann yrði afnuminn á lánum sem veitt yrðu eftir það.
Hv. þm. spurðist fyrir um hvernig hægt væri að greiða mörg hundruð millj. kr. af fjárlögum ríkisins án þess að tekjur kæmu þar á móti eða niðurskurður að öðru leyti. Það er að sjálfsögðu ekki hægt eins og hv. þm. Albert Guðmundssyni er jafnvel kunnugt og mér. Það verður að sjálfsögðu að gera ráðstafanir til þess að gera slíkt mögulegt, en það leysir ekki neinn vanda í þjóðfélaginu að reka ríkissjóð hallalausan ef það verður til þess að atvinnuvegirnir eru reknir með verulegu tapi. Það er engin lausn á efnahagsvanda í sjálfu sér ef það eitt gerist að ríkissjóður er rekinn hallalaus. Hins vegar er ég ósammála hv. þm. að því leyti að ég tel þá skattheimtu sem er í þjóðfélaginu síst of mikla miðað við þau útgjöld sem til er stofnað og þá þjónustu sem ríkið vill veita. Ef eitthvað er hefur sú skattheimta verið of lítil á undanförnum árum og þar varð að verða breyting á ef ekki átti illa að fara og verða enn meiri viðskiptahalli en raun ber vitni. Þetta segi ég ekki vegna þess að ég sé sérstaklega hrifinn af mikilli skattheimtu, en hins vegar geri ég mér grein fyrir því að það þýðir ekki að stofna til útgjalda ef ekki er aflað tekna á móti.
Með hvaða hætti því verður mætt, ef til kemur, að söluskattsendurgreiðslan verði aukin skal ég ekki segja á þessu stigi. Það má að sjálfsögðu gerast m.a. með niðurskurði ef menn telja að þetta sé meira forgangsverkefni en ýmis önnur verkefni í þjóðfélaginu. Ég er þeirrar skoðunar að það megi margt annað víkja fyrir þessu verkefni, en það er ekki þar með sagt að allir séu þeirrar skoðunar eins og gengur og gerist. Ég skal ekki leyna því að ég taldi ekki að það hefði verið óeðlilegt við núverandi óvissuaðstæður að fresta því að lækka verð á bensíni. Ég er ekki að segja að það skipti sköpum í þessu máli en ég er ekki þeirrar skoðunar að það sé neitt slíkt fram undan að við getum átt von á því að kjör okkar batni, hvorki í gegnum lækkun á bensíni eða öðru,vegna þess við hvað mikinn vanda við eigum að stríða í útflutningsatvinnugreinunum sem er þó þýðingarmest af öllu að geti gengið.
Vegna spurninga um launaskatt, þá skiptir sá launaskattur sem lagður var á fiskvinnsluna ekki sköpum fyrir atvinnugreinina og því hefur ekki verið um það umræða af hálfu ríkisstjórnarinnar að breyta þeirri löggjöf sem sett var um launaskatt. Hér er ekki um mjög háar fjárhæðir að ræða fyrir fiskvinnsluna og skipta ekki sköpum.
Ég vil leiðrétta það sem hv. þm. Steingrímur Sigfússon sagði hér. Hann sagði að það hefði verið nær af mér að tala með öðrum hætti um launin í sjávarútveginum. Það er alveg rétt hjá honum að laun í fiskvinnslunni, þ.e. í frystingunni, eru ekki stærsti kostnaðarhluturinn. Þessi laun eru u.þ.b. 25%, fiskverð um 50% og annar kostnaður. Ég var að tala um laun almennt í landinu. Mér þykir sæta nokkurri furðu að það skuli vera talað um þau oft og tíðum á Alþingi eins og þau skipti bara engu máli. Það sé alveg sama hvað þessi laun hækka. Það séu smámunir í þessu sambandi. Auðvitað skiptir það sköpum í einu þjóðfélagi hver launin eru. Hins vegar er það rétt hjá hv. þm. að launin í fiskvinnslunni hafa að mörgu leyti ekki fylgt öðrum launum og það þarf að leiðrétta. En ég endurtek að auðvitað skipta launagreiðslur og launaskrið í þjóðfélaginu almennt hvað mestu í efnahagsmálum. Ég skal gjarnan taka undir það með honum að vextir eru óhóflega háir og eru veruleg byrði fyrir atvinnugreinina. Þessir vextir munu væntanlega lækka og það er lífsspursmál að þeir geri það. En aðalforsenda þess að svo geti orðið er að það dragi úr þeirri þenslu sem ríkir almennt í þjóðfélaginu á lánamarkaði og einnig á vinnumarkaði. Það er of mikil þensla á vinnumarkaði í landinu. Mikil þensla á vinnumarkaði þýðir launaskrið hvort sem okkur á Alþingi líkar það betur eða verr og mikil þensla á lánamarkaði þýðir vaxtahækkun með einum eða öðrum hætti hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Það stendur ekki á þeim stofnunum sem reka þá þjónustu, hvort sem það eru bankastofnanir eða aðrar þjónustustofnanir, að hækka sína taxta hafi þær skilyrði til þess. Þannig hafa ýmsar þóknanir bankastofnana hækkað verulega að undanförnu, m.a. þóknanir sem teknar eru af útflutningsatvinnuvegunum.
Ég vænti þess að þetta mál fái skjóta afgreiðslu hér á Alþingi. Það varðar eingöngu árið 1987. Ég vænti þess að það blandist ekki um of inn í þá umræðu sem þarf að fara fram um afkomu útflutningsatvinnuveganna á árinu 1988. Ég tel að lausn þeirra mála felist að engu leyti í afgreiðslu þessa máls þó að það sé lítið skref í því. Ég get vel skilið hv. þm. að þeim finnist vera nokkuð lítið um svör að því er varðar framtíðina, en ég endurtek það, sem ég hef áður sagt, að þessi mál eru til umfjöllunar ekki aðeins í ríkisstjórn heldur einnig hjá öðrum aðilum í þjóðfélaginu, m.a. aðilum vinnumarkaðarins, og hér er ekki fyrst og fremst spurningin um persónulegar skoðanir, hvorki mínar né annarra, heldur spurningin um hvaða ásættanleg niðurstaða fæst. Ég gæti út af fyrir sig upplýst hv. þm. um mínar skoðanir í þessum efnum. Ég tel það hins vegar ekkert leysa og ekki öllu skipta í þessari umræðu hverjar þær eru. Hins vegar tek ég undir með honum að það er mikilvægast af öllu að niðurstaða fáist og ég vil sérstaklega taka undir það, sem hann sagði hér, að tíminn í því sambandi er afar stuttur.