16.02.1988
Neðri deild: 58. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4645 í B-deild Alþingistíðinda. (3216)
271. mál, framhaldsskólar
Kristín Einarsdóttir:
Herra forseti. Áður en ég hef mál mitt varðandi það mál sem hér er á dagskrá vil ég benda á að ég bað um að fá að taka til máls um leið og mál þetta var tekið á dagskrá. Í 37. gr. þingskapa stendur, með leyfi forseta: „Forseti gefur þingmönnum venjulega tækifæri á að taka til máls í þeirri röð er þeir beiðast þess.“
Forseti hefur upplýst að sá hv. þm. sem hér talaði á undan mér hefði óskað eftir að taka til máls undir þessum dagskrárlið fyrr á fundinum. Mér þætti fróðlegt að vita hve löngu áður en mál er tekið á dagskrá þingmönnum gefst tækifæri á að biðja um að fá að taka til máls. (Forseti: Ég vil geta þess í þessu sambandi að hv. 4. þm. Norðurl. v. óskaði eftir að taka til máls í þessu máli um það leyti sem fundur hófst. Það kann að vera að eftir ýtrustu þingsköpum hefði ég átt að láta hann kveðja sér hljóðs með formlegum hætti eftir að umræða byrjaði þar sem þetta virðist vera viðkvæmt mál — viðkvæmara en mér datt í hug vegna þess að hér hefur ekki verið þröngt á mælendaskrá í dag. En ég mun eftirleiðis, svo að ekkert fari á milli mála, láta menn kveðja sér hljóðs þegar umræða um viðkomandi mál er hafin. En ég tek alla sök á mig í þessu efni að ég var búinn að skrifa hv. 4. þm. Norðurl. v. á mælendaskrá áður en umræðan hófst, taldi það ekki koma að sök vegna þess að hér hefur verið ró yfir þessum umræðum í dag, en ég mun að sjálfsögðu fara eftir ýtrustu þingsköpum í þessu efni.) (GHelg: Herra forseti. Ég vil benda hinum mjúka Kvennalista á að þm. sem bað um orðið er veikur og bað þess vegna um að þurfa ekki að vera lengur hér í þingsölum. Það er þm. fullkunnugt um.) (Gripið fram í.) (RA: Ég held að þetta hafði tíðkast í 20 ár, herra forseti, ég vildi bara koma því á framfæri, að menn bæðu um orðið í upphafi fundar.)
Ég vil taka það fram að ég efast ekki um að forseti hafi farið að þingsköpum. Ég vildi bara koma þessu á framfæri. (Forseti: Ég vil ljúka máli mínu með því að ég mun að sjálfsögðu fara að ýtrustu þingsköpum í þessu efni og vona að þessar umræður þurfi ekki að ganga lengra og þessi umræða geti haldið áfram á eðlilegan hátt en ítreka það að það var ekki ætlun forseta að mismuna einum eða neinum í þessu efni því það var auðséð að þessi umræða gæti farið fram hér í dag og öll sjónarmið kæmust á framfæri, enda er ætlunin að halda henni áfram fram undir klukkan sex ef þörf er á sem ekki er nú einu sinni útlit fyrir ef ekki bætist á mælendaskrá hér eftir.)
Ég þakka forseta fyrir en ég vil taka það fram að ég efast ekki um að forseti hafi farið að þingsköpum, en ég vildi bara benda á þetta vegna þess að mér hefur einu sinni verið neitað um að fá að biðja um orðið áður en málið var tekið á dagskrá. Það er þess vegna sem fsp. var lögð fram. Það var aðeins óljóst af minni hálfu hvenær maður gæti beðið um orðið og með orðum mínum var ég,ekki að efast um að rétt væri að málum staðið. Ég tek það fram, herra forseti. (Forseti: Ég vil aðeins geta þess að eftirleiðis mun verða haft samræmi í þessu efni og málið verða skoðað í því ljósi.)
Herra forseti. Ég vil taka það fram að mér finnst löngu orðið tímabært að taka málefni framhaldsskólanna og setja um þá rammalöggjöf og ég vona að umræðan geti farið friðsællega fram eins og forseti sagði. Ástæðan fyrir því að ég vakti athygli á þessu var ekki sú að ég teldi skipta höfuðmáli hvort ég væri á undan hv. síðasta ræðumanni eða eftir, heldur vildi ég aðeins fá það á hreint hvernig væri í pottinn búið með þetta ákvæði þingskapa.
Kennarar og aðrir skólamenn eru orðnir langeygðir eftir að löggjöf um framhaldsskóla verði sett vegna þess að skipulagningu hefur vantað í málefnum framhaldsskólanna. Einnig vantar eðlilegt samhengi milli skólastiga, en grunnskólalögin tóku gildi fyrir 14 árum. Hafa kennarasamtökin ítrekað bent á nauðsyn þess að setja rammalöggjöf um framhaldsskólana. Þó hafa margir bent á að e.t.v. hefði einmitt þessi skortur á ströngum reglum orðið til þess að framhaldsskólarnir hafa þróast á sjálfstæðan og jákvæðan hátt. E.t.v. hafa sumir nemendur og kennarar goldið þess, en eflaust einnig margir og vonandi fleiri notið þess að frelsið til að reyna nýja hluti hefur verið til staðar. Það er því mikilvægt þegar sett er löggjöf um framhaldsskóla að sjálfstæði skólanna verði ekki skert svo að allt frumkvæði verði drepið í dróma.
Síbreytilegar aðstæður í þjóðfélaginu kalla á öflugan og góðan framhaldsskóla þar sem stöðug endurskoðun fer fram. Með stofnun nýrra framhaldsskóla hafa aðstæður til náms batnað til muna þó enn séu möguleikar fólks mismunandi eftir búsetu og efnahag. Það er því fagnaðarefni að nú hafi verið lagt fram frv. um framhaldsskóla hér á Alþingi.
Eins og fram kom í máli hæstv. menntmrh. hér áðan er frv. upphaflega samið af nefnd sem fyrrv. menntmrh. skipaði. Það sem fyrst vekur athygli við skipun nefndarinnar er að þar er enginn fulltrúi kennara. Þetta finnst mér galli við nefndarskipunina þótt með því sé á engan hátt efast um hæfni þeirra sem nefndina skipuðu. Það hefði verið eðlilegra að frv. hefði verið samið í samráði við samtök kennara og skólameistara en ég heyrði ekki að hæstv. menntmrh. minntist á það í ræðu sinni að svo hafi verið gert.
Það kemur fram í grg. með frv. að fyrri útgáfa frv. hafi verið send ýmsum aðilum til umsagnar, þar á meðal Bandalagi kennarafélaga, Skólameistarafélagi Íslands og fleiri samtökum. Þess er ekki getið í athugasemdum hvaða álit einstakir aðilar höfðu á frv. en sagt að frv. hafi verið breytt nokkuð til samræmis við það sem fram kom í umsögnunum. Það væri fróðlegt að vita hvort og á hvern hátt tekið var tillit til umsagna félaga kennara og skólameistara og hvort þau eru ánægð með frv. eins og það er nú.
Herra forseti. Ég ætla nú aðeins að víkja að frv. sjálfu. Það sem vekur athygli mína er að með því er gert ráð fyrir ótrúlega miklu valdi pólitískt kjörinna fulltrúa um starfsmenn skólanna. Yfirmenn og kennarar eiga samkvæmt frv. nánast ekki að hafa neitt um það að segja hvaða starfsemi fer fram í skólunum. Allt vald er í höndum skólanefnda þar sem enginn af þeim sem starfa í skólunum á að eiga formlegt sæti. Er þarna kannski um mistök að ræða eða telja frumvarpssmiðir verra að starfsmenn hafi eitthvað um það að segja hvað fer fram á þeirra vinnustað? Ég get því ómögulega fallist á það sem hæstv. menntmrh. sagði hér áðan að sjálfstæði skólanna að því er varðar ákvarðanir um innihald og þróun námsins væri mikið ef þetta frv. verður að lögum.
Í 3. gr. frv. er tekið fram að kostnaður við byggingarframkvæmdir og stofnbúnað framhaldsskólans skiptist þannig að ríkissjóður greiði 60% en sveitarsjóður 40%. Þetta er ekki í samræmi við það sem komið hefur fram að stefnt skuli að vegna breyttrar verkaskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga. Í þeim tillögum sem kynntar hafa verið er gert ráð fyrir að ríkið beri allan kostnað af framhaldsskólastiginu. Ég vil því spyrja hæstv. menntmrh. hvort þarna hafi orðið á einhverjar breytingar.
Í þessari grein er einnig ákvæði sem veitir heimild til að nota skólahúsnæði til gistihúsarekstrar. Ég vil leggja á það áherslu að hagsmunir og þarfir skólans þurfa ætíð að sitja í fyrirrúmi þegar um samnýtingu skólahúsnæðis er að ræða þannig að það verður fyrst og fremst að miða við þarfir nemenda og skólans áður en farið er að huga að gistihúsarekstri og þetta gildir kannski sérstaklega að því er varðar tímann hvenær skólanum geti lokið á vorin og hann byrjað á haustin.
Í IV. kaflanum, sem fjallar um stjórnun, vekur mesta athygli að skólanefnd, sem skipuð er af menntmrh., fer með öll völd. Í skólanefndum á ekki að sitja neinn kennari né nemandi skólans og skólameistari situr fundi nefndarinnar aðeins með málfrelsi og tillögurétt. Af orðanna hljóðan virðist jafnvel aðeins vera gert ráð fyrir að hann sé framkvæmdastjóri skólanefndarinnar. Skólanefndin ásamt skólameistara á að ákveða stefnu í skólahaldi og námsframboð. Skólanefndin á einnig að ákveða upphæð gjalda er nemendur greiða við innritun. Vald skólanefndanna er því töluvert mikið.
Einnig er gert ráð fyrir að við skólann starfi skólaráð sem skipað skal fulltrúum kennara, nemenda og aðstoðarskólameistara, ef hann starfar við skólann, en skólaráð hefur samkvæmt lögum ekkert verksvið né vald því að skólanefndin hefur þar öll völd eins og annars staðar varðandi stjórn skólans, eins og stendur í 9. gr. frv., með leyfi forseta:
„Um skipan skólaráðs, verksvið þess, starfstíma og starfshætti skal nánar kveðið á um í reglum sem skólanefnd setur.“
Þarna er spurningin hvað frumvarpssmiðir hafa verið að hugsa þegar þeir settu þetta ákvæði inn í frv.
Tilganginn með 11. gr. get ég alls ekki séð, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Um almenna kennarafundi og verksvið þeirra skal ákvarðað í reglum sem skólanefnd setur.“
Ég get ekki fundið neina skýringu á þessu í athugasemd við frv., hvers vegna talið er nauðsynlegt að skólanefndir setji reglur um kennarafundi. Mér sýnist þessi grein vera nánast móðgun við kennara. Ég átta mig ekki á hvaða reglur skólanefndin á að þurfa að setja um kennarafundina. Það væri fróðlegt að fá það upplýst.
Samkvæmt þessum kafla, þ.e. IV. kafla um stjórnun, er skólanefndinni ætlað að hafa mikil völd og áhrif á störf skólans, miklu meiri en ég tel eðlilegt, sérstaklega með tilliti til samsetningar nefndarinnar. Það er nauðsynlegt að auka áhrif starfsmanna skólans á innra starf hans með auknum áhrifum skólaráðs eða með hlutdeild kennara og þá e.t.v. annarra skólamanna að skólanefndum, af því að það er mjög óljóst hvernig á að skipa skólanefnd og það virðist frekar vera að það þurfi alls ekki að vera kennarar eða skólastjórar. Talað er um að menntmrh. skipi í skólanefndina samkvæmt tilnefningu, en það kemur ekki fram hverjir eigi að tilnefna.
Í V. kafla frv. er mjög margt jákvætt. Í 12. gr. stendur, með leyfi forseta: „Heimilt er að fela ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu grunnskóla að annast hliðstæða starfsemi fyrir framhaldsskóla.“ Þetta getur verið jákvætt svo fremi sem þessi starfsemi fái verulega aukinn mannafla til að sinna þeirri þjónustu sem henni er þarna ætlað. Ég vek athygli á því að þarna er talað um ráðgjafarþjónustu.
Í grunnskólunum eru engir námsráðgjafar að því er ég best veit, en það er álit þeirra sem um þetta atriði hafa fjallað að nauðsynlegt sé að bjóða upp á námsráðgjöf innan framhaldsskólanna. Það er því spurning hvort gert er ráð fyrir því af hálfu ráðuneytisins að námsráðgjafar starfi við framhaldsskólana. Nú þegar er ákveðin námsráðgjöf starfandi þar og hefur verið að eflast hin síðustu ár og þyrfti að efla hana enn frekar. Það þyrfti því e.t.v. að hugsa aðeins betur hvernig þetta færi saman, þessi sálfræði- og ráðgjafarþjónusta grunnskólanna og því sem ætlað er að taka þarna við, ekki síst með tilliti til námsráðgjafanna, þó að ég telji mjög nauðsynlega sálfræðiþjónustuna sem gert er ráð fyrir að geti verið líka í framhaldsskólum.
Mig langar aðeins að varpa fram spurningu varðandi 13. gr. Hvað er átt við með því sem þar stendur, með leyfi forseta: „Reglur um störf annars starfsfólks setur skólanefnd.“ Þarna er skólanefndin aftur komin til sögunnar með sínar reglur. Mér er ekki ljóst hvað þarna er átt við, hvers konar reglur og um hvaða starfsfólk þarna er talað. Ég fann það ekki heldur í athugasemdum.
Allir kennarar hljóta að fagna 14. gr. sem fjallar um orlof kennara til að efla þekkingu sína. Það þarf varla að hafa mörg orð um mikilvægi endurmenntunar og símenntunar fyrir kennara í síbreytilegu þjóðfélagi nútímans. Það er því nauðsynlegt að þetta ákvæði verði ekki bara orð á blaði heldur verði kennurum í raun og veru gert kleift að njóta endurmenntunar eins og þessi grein gerir ráð fyrir.
Sama gildir um 15. gr. Hún er mjög jákvæð. En hér er aftur spurningin um hvernig á að framkvæma. Í mörgum framhaldsskólum vantar t.d. enn alla íþróttaaðstöðu, en íþróttir eru mikilvægur þáttur fyrirbyggjandi heilsugæslu. Einnig er mikilvægt að unglingar fái fræðslu um t.d. næringarfræði, kynlíf o.fl. sem nauðsynlegt er á þessum árum og hingað til hefur verið ábótavant.
Um inntökuskilyrði inn í framhaldsskólana ætla ég ekki að hafa mörg orð, en bendi á að úr grunnskólunum koma nemendur sem hafa tileinkað sér mjög mismikla þekkingu. Margir þurfa á mikilli hjálp að halda við námið en aðrir þurfa minna. Það er því spurning hvort ekki þurfi að gera ráð fyrir sérkennslu í framhaldsskólunum til að þeir geti tekið við þeim nemendum sem af einhverjum ástæðum eru á eftir í námi. Ég tel að framhaldsskólinn eigi að vera fyrir alla og það verður að sjálfsögðu að hafa viðeigandi þjónustu til þess að hann geti tekið við þeim nemendum sem þangað sækja.
Um VII. kaflann hef ég það helst að segja að ég tel að kennarar ættu að hafa meira að segja eins og annars staðar. Í 20. gr. er m.a. kveðið á um námsskrá. Gert er ráð fyrir að menntmrn. setji hana og í athugasemd við frv. stendur að reiknað sé með að hafa samráð við skólastjórnendur, iðnfræðsluráð, fræðsluráð sjávarútvegsins, faggreinafélög og fleiri aðila. Ég tel mjög mikilvægt að svo verði gert og varpa því fram hvort það þyrfti ekki að koma fram í lagatextanum. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvort það er nauðsynlegt.
Í iðnfræðsluráði og fræðsluráði sjávarútvegsins er ekki gert ráð fyrir að kennarar sitji en ég tel nauðsynlegt að þeir eigi þar sæti , ekki síst með tilliti til þess að þeir verði þá til ráðgjafar um námsskrána. Ég tel af mörgum fleiri ástæðum æskilegt að bæði í iðnfræðsluráði og fræðsluráði sjávarútvegsins fái kennarar, og reyndar nemendur líka, aðild. Að vísu er í iðnfræðsluráði gert ráð fyrir að tveir iðnsveinar sitji en það er ekki gert ráð fyrir því í fræðsluráði sjávarútvegsins.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því sem stendur í 24. gr., en þar er sagt að heimilt sé skólanefndum að gera samninga við iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun um að annast tiltekna þætti verklegrar menntunar í samstarfi við framhaldsskóla. Ég veit að það hefur verið mikið rætt um að ekki eigi að gera samninga við iðnmeistara nema þar sem aðstæður bjóða ekki upp á annað, það eigi að vera algjör undantekning. Ég bendi á þetta atriði, en held reyndar að flestir séu mjög ánægðir með það fyrirkomulag sem nú er í sambandi við iðnnámið og gert er ráð fyrir í Iðnskólanum t.d. og í fjölbrautaskólunum og hafi verið á móti því fyrirkomulagi sem gert er ráð fyrir í 24. gr. og vil því bara benda á að það verði kannað nánar.
Í 29. gr. er tekið fram að í öllum framhaldsskólum skuli vera skólasöfn. Það er mikilvægt að fé sé veitt til þessa mikilvæga þáttar skólastarfsins til þess að skólasafnið verði ekki nokkrar bækur í hillu í einu horni í skólanum eins og heyrst hafa dæmi um.
Varðandi VIII. kaflann, um rekstur skólanna, er miðað við að framlög ríkissjóðs til rekstrar framhaldsskólanna skuli miðuð við að sem næst jafnhátt framlag komi á hvern nemanda í fullu námi hvar sem hann er á landinu. Ég vil aðeins benda á að jákvæð mismunun í þessu sambandi getur verið nauðsynleg. Í mörgum smærri skólum, sérstaklega úti á landi, er mjög erfitt að halda uppi kennslu í ýmsum greinum vegna fámennis. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á námsframboði. Það verður því að telja eðlilegt að taka tillit til þessa. Vil ég í því sambandi taka undir orð hv. 4. þm. Norðurl. v. sem talaði hér áðan um einmitt þetta atriði.
Í 33. gr. vil ég vekja athygli á ákvæði um þátttöku nemenda í ýmsum kostnaði. Þar segir, með leyfi forseta: „Nemendur bera sjálfir hluta sérgreinds kostnaðar í heimavistum, rekstri mötuneyta, skipulögðum skólaakstri og efniskaupum vegna verklegrar kennslu o.fl. samkvæmt ákvörðun skólanefndar ...“
Þetta ákvæði tel ég þurfa vandlegrar skoðunar við og vara við að leggja miklar álögur á nemendur dreifbýlisins, en þessi gjöld sem þarna er talað um koma aðallega við dreifbýlisnemendur. Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á till. til þál. á þskj. 80, um launakostnað við mötuneyti framhaldsskólanna, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera nauðsynlegar ráðstafanir í því skyni að launakostnaður starfsfólks í mötuneytum framhaldsskólanna verði greiddur úr ríkissjóði.“
Þessa tillögu flytja hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir, Margrét Frímannsdóttir og Ingi Björn Albertsson.
Ég tel að það þurfi að athuga mjög vandlega ákvæði þessarar greinar með tilliti til dreifbýlisnemenda. Einnig stendur í 33. gr., með leyfi forseta:
„Hagnaður af leigu skólahúsnæðis skal renna til viðhalds og endurnýjunar húsnæðis og búnaðar.“ Þarna hlýtur að vera miðað við þau tilfelli þegar skólahúsnæði er lánað til annarra en nemanda. Varla er miðað við að nemendur greiði það háa leigu af heimavistinni að af því verði hagnaður.
IX. kafli frv. finnst mér heldur snubbóttur. Ég hefði viljað sjá miklu betur útfærð ýmis atriði er varða fullorðinsfræðslu, hvaða sess fullorðinsfræðslunni er ætlaður í skólakerfinu. Ég leyfi mér að spyrja hæstv. menntmrh. hvort ætlunin sé að semja frv. um fullorðinsfræðslu eða hvort hann telur þetta nægjanlegt um hana í lögum um framhaldsskóla.
Einnig er spurningin hvort öll menntamál ættu ekki að heyra undir menntmrn. Hvað með t.d. þá skóla sem falla undir landbrn. sem eru bændaskólarnir, garðyrkjuskólinn og e.t.v. einhverjir fleiri skólar? Það vekur einnig athygli mína að einungis er gert ráð fyrir iðnfræðsluráði og fræðsluráði sjávarútvegsins en ekki neitt er varðar aðrar atvinnugreinar, t.d. heilbrigðisþjónustuna og uppeldisgreinar svo eitthvað sé nefnt.
Ég vil taka undir það sem stendur á bls. 19 í frv. og hæstv. ráðherra minntist á í ræðu sinni áðan, en þar stendur, með leyfi forseta:
„Samkvæmt lögum nr. 55/1974, um skólakerfi, skiptist skólakerfið í þrjú stig, þ.e. grunnskólastig, framhaldsskólastig og háskólastig. Þessi skipting er að sumu leyti óheppileg þar sem hún ýtir undir það að reynt sé að skilgreina nám annaðhvort á framhaldsskólastigi eða háskólastigi.“
Þetta ákvæði í lögunum virðist m.a. hafa ýtt undir að þeir skólar sem hafa stúdentspróf sem inntökuskilyrði vilji kalla sinn skóla háskóla. Ég tel þetta óheppilega þróun og þyrfti að endurskoða ákvæði þessara laga að því er varðar þetta atriði, en hæstv. menntmrh. minntist einnig á það í sinni ræðu að svo þyrfti að gera.
Ég hef aðeins drepið á fáein atriði í þessu frv. til laga um framhaldsskóla og eru athugasemdir mínar langt frá því að vera tæmandi. Ég tel mikilvægt að samráð verði haft við samtök kennara og skólameistara við umfjöllun hv. menntmn. um frv., en það er ljóst að töluverðar breytingar verður að gera á fyrirliggjandi frv. til að það geti mætt þeim kröfum sem gerðar eru til almennrar menntunar í nútímaþjóðfélagi sem er sífelldum breytingum háð.