22.02.1988
Sameinað þing: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4713 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)
Varamenn taka þingsæti
Frsm. kjörbréfanefndar (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Vilhjálms Egilssonar hagfræðings sem er 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi vestra. Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt. Þá hefur kjörbréfanefnd og skoðað kjörbréf Unnar Sólrúnar Bragadóttur húsmóður sem er 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd leggur sömuleiðis til að það kjörbréf verði samþykkt.