22.02.1988
Sameinað þing: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4714 í B-deild Alþingistíðinda. (3249)

16. mál, kostnaður við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríksson

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Er ekki hæstv. utanrrh. við? (Forseti: Hæstv. utanrrh. er við, en hann er ósýnilegur í augnablikinu. Hann var hér rétt í þessari andrá og það verða gerðar ráðstafanir til að gera honum ljóst að umræðan er byrjuð.) Já, ég ætla að sjálfsögðu að beina máli mínu til hæstv. utanrrh., en hann er vafalaust á næstu grösum og ég mun nú hefja mál mitt. Hún ætlar að reynast okkur drjúg til umræðu þessi flugstöð og spá mín er sú að hún eigi oftar eftir að leggja okkur til umræðuefni. Ég ætla raunar ekki að auka miklu við þessa umræðu núna, en þó kom sitthvað fram í umræðunum sl. mánudag sem gefur tilefni til athugasemda.

Ég heyrði að hæstv. utanrrh. orðaði það í sinni framsögu að vafalaust hefði mátt byggja umfangsminni og ódýrari flugstöð og undir það verð ég að taka. Við kvennalistakonur vorum raunar andvígar þessari byggingu frá upphafi af ýmsum ástæðum og ekki síst sparnaðarástæðum. Okkur fannst svo margt brýnna, svo margt ofar í forgangsröðinni og sú skoðun hefur ekki breyst.

Byggingin er að vísu risin og við því er lítið að gera, en mér fer eins og hæstv. utanrrh. og mörgum öðrum að ég hugsa til þess með mikilli eftirsjá að úr því að þessi bygging var reist hefði svo sannarlega mátt fara með meiri gát. Hæstv. utanrrh. fer víða um heim vegna starfs síns og sér margar flugstöðvar og honum er auðvitað löngu ljóst af þeim samanburði hversu fáránleg flottheit hafa ráðið ferðinni þar suður á Miðnesheiðinni. Þar hafa menn ekki sést fyrir eins og því miður gerist svo allt of oft þar sem menn fara með annarra fé, en þurfa ekki að blæða sjálfir.

Flestir hv. þm. hafa að sjálfsögðu séð gróðurhúsið þarna suður frá og séð fjölda erlendra flugstöðva til samanburðar og hljóta að viðurkenna að þessi ég vil leyfa mér að segja flottræfilsháttur keyrir úr hófi og mætti verða okkur víti til varnaðar. Því miður erum við augljóslega ekki búin að bíta úr nálinni með þessa framkvæmd. Menn urðu dálítið hissa yfir reikningnum sem barst á síðasta ári vegna umframkostnaðar og var orsök þeirrar skýrslubeiðnar sem er undanfari þessarar umræðu sem hófst sl. mánudag. En getum við nú treyst því að þetta sé síðasti reikningurinn? Ég er hrædd um ekki. Það hefur nefnilega gerst rétt eina ferðina enn að nýreist hús á vegum hins opinbera reynist ekki svo sem til var ætlast. Það var naumast fyrr komið í notkun en einn gallinn af öðrum tók að gera starfsfólki og gestum lífið leitt.

Ein aðalástæðan sem menn færðu fyrir nauðsyn þess að reisa þessa flugstöð var lélegur aðbúnaður starfsfólks í gömlu flugstöðinni. Nú efa ég ekki að töluvert rýmra sé um hvern starfsmann og að ýmsu leyti þægilegra í nýju flugstöðinni. Hins vegar virðist hönnunar- og byggingarmeisturum ekki hafa tekist að útiloka þær höfuðskepnur, vindinn og regnið, sem hafa leikið marga íslenska byggingu grátt. Vatnið hefur sem sagt fundið leið inn í þetta glæsta gróðurhús. Hitastigið innan dyra hefur farið allt niður í 4 stig á köldum dögum svo að starfsfólk hefur mátt vinna þar kappklætt. Miðnesheiðin er nú ekki beint þekkt fyrir lognværð og vindurinn hefur ekki látið þrælhannaðar hurðir aftra för inn um alla sali og leiðir það þá eðlilega hugann að því að þarna var komið upp rándýru loftræstikerfi, en slík kerfi eru þeirrar náttúru að verka ekki eða a.m.k. ekki nema um skamman tíma að því er hv. 7. þm. Reykn. upplýsti í umræðunum sl. mánudag. Ég ætla svo ekki að fjalla um músagang eða eðlufár, enda slíkt vonandi minni háttar vandamál þarna syðra. En mér segir svo hugur að forstöðumenn þessarar byggingar eigi eftir að banka upp á með fleiri reikninga bæði vegna nýsmíði og endurbóta.

Að lokum vil ég svo segja að öll þessi umræða um þessa framkvæmd, skýrslubeiðni, utandagskrárumræða, tillöguflutningur og ítrekaðar áminningar eru sprottnar af þörf og vilja til að láta þessi mistök að kenningu verða, að menn dragi einhvern lærdóm af þessu öllu saman.

Því miður hljóta viðbrögð hæstv. ráðherra að valda verulegum vonbrigðum. Mér virtist raunar af ræðu hæstv. utanrrh. sl. mánudag eins og hann væri kominn í varnarstöðu og vilja fyrst og fremst afsaka það sem orðið er. Skýrsla hans hefur sætt harðri gagnrýni, en hann vill gera lítið úr ágöllum hennar og lætur sem tugmilljóna mismunur á kostnaði milli skýrslna sé varla til að tala um. Hann virðist hafa þokað sér í hóp þeirra sem segja: Jú, að vísu fór kostnaðurinn milljarð fram úr áætlun, en við því er ekkert að gera og nú eigum við þessa glæsilegu flugstöð og því þá þetta nöldur. Mér finnst hann hafa nálgast ískyggilega afstöðu hv. 10. þm. Reykv., formanns byggingarnefndar Listasafns ríkisins, sem segir að endurbygging þess hafi alls ekki verið dýr þótt hún hafi farið langt fram úr áætlunum heldur hafi áætlanirnar verið svona illa gerðar. Þannig virðast menn vilja hafa það með flugstöðina: búið og gert, enginn ábyrgur og næsta mál á dagskrá, gerið svo vel.

Ríkisendurskoðendur afgreiddi hæstv. utanrrh. með heldur óviðeigandi hætti, með því að hann vildi ekki vefengja niðurstöður þeirra, en taldi þó að þær væru ekki að öllu leyti réttar og hann mundi fela einhverjum óskilgreindum, gott ef ekki töluglöggum mönnum að fara yfir þessar skýrslur. Maður hlýtur að spyrja hvert hlutverk Ríkisendurskoðunar eiginlega sé. Og hvað nú ef þessir aðilar komast að enn einni niðurstöðunni? Á þá að setja nefnd yfir þá? Þetta fer að minna á söguna um Einbjörn og Tvíbjörn og alla þá bræður sem toguðu í rófu eina sögufræga.

Viðbrögð hæstv. ráðherra hafa valdið vonbrigðum vegna þess að það er ekki að sjá og heyra að þessi mistök leiði til sérstakrar árvekni né að ráðamenn ætli að setja neina þá varnagla í sína starfshætti sem tryggi að slík mistök endurtaki sig ekki eða a.m.k. dragi verulega úr þeim og það er alvarlegt mal því við verðum að hafa manndóm til þess að læra af mistökum.

Mér virðist sem sagt, herra forseti, nokkuð ljóst að það hafi lítið verið gert til að bæta fyrir mistökin þarna suður frá. Það er enginn reiðubúinn til þess að taka á sig eina eða neina sök og má vera að það breytti svo sem ekki miklu. En það er framtíðin sem skiptir máli og ég spyr þess vegna hæstv. ráðherra, vegna þess að ég heyrði hann ekki tíunda neitt slíkt í ræðu sinni hér fyrir viku, hvort stjórnvöld hafi ekki í framhaldi af þessu í huga að endurskoða reglur í sambandi við framkvæmdir á vegum hins opinbera eða setja reglur um áætlanagerð og eftirlit með opinberum framkvæmdum. Þetta er að mínu viti aðalatriði málsins og vitanlega enn mikilvægara ef sú er raunin að milljarðaframkvæmdir á vegum hins opinbera séu í raun og veru á ábyrgð eða undir stjórn eins manns og séu alls ekki ræddar í ríkisstjórninni frekar en verkast vill eins og virtist af máli ráðherra um daginn.