22.02.1988
Sameinað þing: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4729 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)
16. mál, kostnaður við byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríksson
Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði við lok þessarar umræðu vegna athugasemda hv. 4. þm. Norðurl. e. sem saknaði þess að ég tæki ekki þátt í umræðunni og síðan vegna orða hv. 2. þm. Vestf. Þegar skýrsla ríkisendurskoðanda var til umræðu ræddi ég þetta mál. Ég gerði grein fyrir málinu eins og það lítur út fyrir mér þegar skýrsla ríkisendurskoðanda kom fram, en á sama tíma var lögð fram skýrsla hæstv. utanrrh. um kostnað vegna flugstöðvarinnar. Í þeirri ræðu gerði ég grein fyrir sjónarmiðum mínum. Ég rakti þar gang þessara mála eins og ég hef þekkt til þeirra og leyfi mér hér aðeins að rifja upp úr þeirri ræðu, ef það má verða til þess að varpa enn betur ljósi á þær staðreyndir þessa máls sem fyrir liggja, að hluta til ákvarðanatöku um breytingu á byggingu flugstöðvarinnar svo og um fjármögnun í því sambandi og síðan eins og það var orðað hér af hv. 2. þm. Vestf. ákvarðanatökur rétt fyrir kosningar. Þar sem rætt er um ábyrgð ráðherra á þessum málum, eins og að sjálfsögðu öðrum málum, þá sagði ég í ræðu minni 17. des. sl., með leyfi forseta:
„Ég gegndi ekki embætti utanrrh. á þessum tíma, en það er skoðun mín að viðbæturnar hafi verið nauðsynlegar og átt sér eðlilegar skýringar.“ Þegar ég endurtek þetta nú þá segi ég: Ég gegndi embætti viðskrh. í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar frá því í maímánuði 1983 þar til í október 1985. Ég sat ekki í ríkisstjórn frá 16. okt. 1985 til 26. jan. 1986. Eins og hér kom fram hjá hæstv. utanrrh. eru allar þessar ákvarðanir teknar fyrir þann tíma. Ef þm. lesa þá er hægt að fá skýringar á því að byggingarnefndin leitaði til Almennu verkfræðistofunnar þegar þessar ákvarðanir höfðu verið teknar og spurðist fyrir um það hvort skynsamlegra væri að fresta því að taka þessa byggingu í notkun. Þá leyfi ég mér að vitna til þess sem ég sagði í fyrrgreindri ræðu, með leyfi forseta:
„Þegar framangreindar viðbætur höfðu verið ákveðnar leitaði byggingarnefndin eftir áliti Almennu verkfræðistofunnar á því hvort verktími sá sem ætlaður væri fyrir innréttingar yrði fullnægjandi án verulegrar aukavinnu og þar með hvort tímasetning samkvæmt samningi við Bandaríkjamenn stæðist. Í svari verkfræðistofunnar frá október 1985 [og það bréf má finna í skýrslu byggingarnefndarinnar] kom skýrt fram að verktíminn yrði nægilegur og þar er einnig lýst þeirri áætlun sem unnið var eftir á lokastigum verksins og miðaðist við opnun flugstöðvarinnar í apríl í vor [þ.e. 1987].“
Í þeim samningi sem fyrrverandi ríkisstjórn gerði við ríkisstjórn Bandaríkjanna í ágústmánuði 1983 er gert ráð fyrir að verkinu, þ.e. byggingu flugstöðvarinnar, sé lokið 1. apríl 1987.
Þegar talað er um að eigi megi inna af hendi greiðslur öðruvísi en lög standi til, eins og hv. 2. þm. Vestf. orðaði það, þá leyfi ég mér að lesa úr ræðu minni frá 17. des. sl. Það kom í minn hlut að fjalla einu sinni, þ.e. með fjárlögin 1987, um fjármögnun til flugstöðvarinnar, fjalla um það mál sem utanrrh., en að sjálfsögðu hafði ríkisstjórnin öll fjallað um fjármögnun til byggingarinnar allt frá því að samningurinn um bygginguna var lagður fyrir ríkisstjórn 1983 og þar samþykktur og lögin síðan samþykkt sem grundvalla ákvarðanatöku í þessu máli. Ég leyfi mér að vísa til fyrri ræðu minnar, með leyfi forseta:
„Ég vil taka það fram að um leið og utanrrn. var kunnugt um þá umframfjárþörf sem skapast hafði af fyrrgreindum ástæðum“ - og þá eru það þær ákvarðanatökur sem hér hefur verið rætt um - „var leitað eftir heimild fyrir bráðabirgðalántöku eins og fram kemur í bréfi ráðuneytisins til fjmrn. 29. apríl. Fyrst taldi byggingarnefndin að umframfjárþörfin væri 480 millj. kr.“ - og það bréf hljóðar upp á 480 millj. kr. - „en síðar kom í ljós að fjárhæðin sem vantaði var allmiklu hærri eða um 869 millj. kr.“ Og enn vísa ég í mína ræðu:
„Við fjárlagagerð ársins 1987 gerði byggingarnefndin utanrrn. og Fjárlaga- og hagsýslustofnun grein fyrir áætlaðri lánsfjárþörf vegna byggingarinnar árið 1987 að fjárhæð 520 millj. kr. Það er sú fjárhæð sem samþykkt var í lánsfjárlögum.“
Þegar sú fjárhæð var uppurin og komið fram á árið 1987 og ráðuneytinu var gerð grein fyrir að það væri fjármagnsskortur, þá gerði utanrrn. fjmrn. samstundis grein fyrir þessum hlutum. (SJS: Var þetta 29. apríl?) Þetta var 29. apríl eins og segir í þessari ágætu ræðu sem flutt var hér í desember. (Gripið fram í.) Vitneskjan barst ekki fyrr til utanrrn., það eru staðreyndir málsins, og um leið var leitað eftir samþykki. Það er eins þegar því er haldið fram að sá sem í ræðustólnum stendur hafi ákvarðað opnunardaginn svona rétt eins og það væri fyrir fram kosningahátíð. Menn gera sér þá ekki grein fyrir því að það var gerður samningur á milli tveggja ríkisstjórna og um leið og menn tala um ábyrgð ráðherra, þá segi ég: Er það þá ekki á ábyrgð ráðherrans sem fer með málin þegar kemur að lokum að standa við þá samninga sem ríkisstjórn Íslands hafði gert um framkvæmd verksins?