28.10.1987
Neðri deild: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég skal leitast við að svara ýmsu af því sem fram hefur komið í máli ræðumanna í dag um það frv. sem hér er til umræðu. Áður en ég sný mér að því hlýt ég að gera með nokkrum orðum grein fyrir hvernig staðið hefur verið að undirbúningi þessa frv. vegna þess að það hefur borið hæst í máli stjórnarliða að illa hafi verið staðið að undirbúningi málsins og að ekki hafi verið leitað samráðs við aðila vinnumarkaðarins eða lífeyrissjóðanna. Þetta er alvarleg gagnrýni sem höfð er í frammi og ég hlýt að svara þessu nokkrum orðum.

Því er haldið fram, m.a. af hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni, að félmrh. hafi farið einförum í undirbúningi þessa máls. Því er haldið fram að málið sé illa undirbúið, það sé rugl og talað um flaustursleg vinnubrögð og fleira í þeim dúr. Ég held að menn verði svolítið að gæta orða sinna og átta sig á því hvert þeir eru að beina spjótum sínum vegna þess að það er ekki bara félmrh. sem menn beina spjótum sínum að þegar þeir viðhafa þessi orð. Ég hlýt að rekja aðeins í örfáum orðum, herra forseti, gang þessa máls sem sýnir að menn eru líka að beina spjótum sínum að húsnæðismálastjórn, sem kjörin er hér á hv. Alþingi og í eiga sæti m.a. fulltrúar stjórnarflokkanna, tveir fulltrúar frá Alþýðusambandinu og frá Vinnuveitendasambandinu.

Það var í ágústmánuði sem ég óskaði eftir því við húsnæðismálastjórn, sem í eiga sæti allir þeir aðilar sem ég nefndi, að ég fengi tillögur um það hvernig breyta mætti afgreiðslu á röðun lána til þess einmitt að tryggja frekar forgang þeirra sem helst þurfa á lánum að halda. Það er ákvæði í reglugerð um Byggingarsjóð ríkisins sem kveður einmitt á um að slík endurskoðun ætti að fara fram ári eftir að þessi reglugerð var sett. Af hverju skyldi það ákvæði nú vera sett inn? Það er vegna þess að menn hafa einmitt ekkert verið öruggir á því þegar þetta ákvæði var sett hvernig það kæmi út í reynd. Ég vildi auðvitað uppfylla þetta ákvæði, sem þarna kom fram í reglugerðinni, ekki síst vegna þess að kerfið hafði verið lokað um nokkurra mánaða skeið og fyrirsjáanlegt að ef ekkert yrði að gert þá yrði nokkuð löng bið á lánum til þeirra sem væru í brýnni þörf. Því vildi ég gera þessa tilraun og óskaði eftir tillögum húsnæðismálastjórnar í þessu efni.

Ég bendi á það að í Þjóðviljanum í dag er einmitt viðtal við Sigurð E. Guðmundsson sem segir að það hafi verið fullt samráð haft við Húsnæðisstofnun í þessu máli. Þetta er byrjunin á því frv. sem hér liggur fyrir, að óskað er eftir tillögum frá húsnæðismálastjórn.

Húsnæðismálastjórn fjallaði um þetta mál og lagði til tillögur til mín um breytingar á þessari reglugerð. Jafnframt kom fram í bréfi frá húsnæðismálastjórn þegar mér var skilað þessum tillögum að húsnæðismálastjórn teldi að nauðsynlegt væri að setja brbl. til þess að ákvæði þetta í reglugerð næði þeim tilgangi sem að er stefnt. Ég kynnti þessa tillögu húsnæðismálastjórnar í ríkisstjórninni, að sett yrðu brbl., og lagði fram tillögur húsnæðismálastjórnar í þessu efni. Þetta var fyrri hluta septembermánaðar eða í kringum 10.–12. september. Af hálfu ríkisstjórnarinnar var sett ráðherranefnd í málið sem í áttu sæti hæstv. iðnrh. og hæstv. heilbr.- og trmrh. Þessi ráðherranefnd hitti fyrir fulltrúa stjórnarflokkanna í húsnæðismálastjórn þar sem farið var yfir málið. Að því búnu, að ég best veit, voru þessar tillögur húsnæðismálastjórnar lagðar fyrir stjórnarflokkana, Framsfl. og Sjálfstfl. Að því er ég best veit einnig, mættu þessir fulltrúar stjórnarflokkanna í húsnæðismálastjórn á fund þingflokkanna til að ræða málið. Og ég vil undirstrika að þessir fulltrúar Framsfl. og Sjálfstfl. í húsnæðismálastjórn stóðu að þessum tillögum og breytingum þar sem fram kom ósk um að sett yrðu brbl. um málið.

Það var síðan 19. sept. sem málið var rætt á nýjan leik í ríkisstjórn. Þá var fallið frá setningu brbl. Þá hafði málið verið rætt í stjórnarflokkunum. Samþykkt var í ríkisstjórninni að félmrh. yrði falið að leggja málið fyrir í upphafi þings og málinu yrði hraðað á Alþingi en talið var að svo skammt væri til þings að betra væri að bíða þingsins. Talið var að hægt væri að afgreiða slíkt mál sem þetta á einni viku í gegnum þingið, annað eins hefði nú skeð áður. Jafnframt kom fram ósk frá samstarfsaðilum í ríkisstjórn um að tekið yrði á vaxtamálunum í leiðinni. Ég vildi hafa tillögurnar eins fáar og mögulegt var og binda þær við það lágmark sem hægt væri að reyna að ná samstöðu um, þannig að unnt væri að opna fyrir afgreiðslu lána og skapa það svigrúm sem þyrfti til þess að vinna að frekari undirbúningi þess sem stendur í stjórnarsáttmálanum, þ.e. að draga úr sjálfvirkninni í húsnæðislánakerfinu. Ég féllst því á það til samkomulags sem fram kom hjá samstarfsaðilunum, að skoða vaxtastefnuna í leiðinni, þó að ég teldi að það væru betri vinnubrögð að taka það sem næsta skref í málinu þegar Alþingi hefði samþykkt þær tillögur sem fram komu hjá húsnæðismálastjórn. Frá 19. sept. til 7. okt. var málið því áfram í nefnd sem í áttu sæti Gunnar S. Björnsson, fulltrúi frá húsnæðismálastjórn og fulltrúi Sjálfstfl. í húsnæðismálastjórn, starfsmaður Húsnæðisstofnunar, Hilmar Þórisson, Ásmundur Hilmarsson frá ASÍ sem hefur setið alla níu fundina. — Ég hygg að Ásmundur Hilmarsson sé kannski aðaltalsmaður Alþýðusambandsins í húsnæðismálum. Hann hefur setið alla þessa fundi. — Einnig átti Stefán Ingólfsson sæti í nefndinni. Þessi nefnd hélt níu fundi. Þar voru m.a. rædd þessi vaxtamál. Nefndin óskaði eftir því að ég kannaði hvort til þyrfti að koma lagabreyting ef stefnunni yrði breytt í vaxtamálum, grundvallarbreyting yrði gerð á vaxtastefnunni. Ég óskaði eftir því við ríkislögmann að hann segði álit sitt á því. Ríkislögmaður taldi að ekki væri hægt að breyta vaxtastefnunni nema með breytingum á lögunum.

Ég taldi það skyldu mína að fara að ósk samstarfsaðilanna í ríkisstjórn og taka á vaxtamálunum í leiðinni og taldi því rétt að leggja til að inn í þetta frv. kæmi einnig ákvæði um vextina.

Lögfræðingar sem um þetta mál fjölluðu, m.a. ríkislögmaður, töldu að ákvæðið í 1. gr., sem mikið hefur verið gagnrýnt í umræðunni hér, væri allt of opið eins og það kom fram hjá húsnæðismálastjórn. En þá var ákvæðið þannig:

„Þrátt fyrir ákvæði 1.–5. gr. er húsnæðismálastjórn heimilt að skerða eða synja um lán ef ríkar ástæður eru fyrir hendi vegna fullnægjandi íbúðareignar og/eða efnahagsaðstæðna umsækjenda að öðru leyti að mati húsnæðismálastjórnar.“

Þetta er tillagan eins og hún var lögð fram af húsnæðismálastjórn og samþykkt þar með af fulltrúum Framsfl. og Sjálfstfl. Þetta töldu lögfræðingar of opið. Alþingi væri með þessu að veita framkvæmdarvaldinu, þar með talinni húsnæðismálastjórn, of mikið vald, of mikið mat á því hverjum ætti að hafna eða skerða lán hjá. Því var það að talið var rétt að reyna að skilgreina betur hjá hverjum hægt væri að beita þessum ákvæðum, hjá hvaða hópum, og að skilgreina þetta ákvæði mjög þröngt.

Varðandi það sem hv. þm. Albert Guðmundsson sagði, að þetta mundi aðeins ná til 40 einstaklinga, og hv. þm. Alexander Stefánsson hefur haldið fram einnig, þá er það rangt. Ég spurði forstöðumann Byggingarsjóðs ríkisins hvað áætla mætti að hópurinn væri stór sem nú biði eftir afgreiðslu lána þar sem um væri að ræða annaðhvort að þeir ættu fleiri en tvær íbúðir eða stórar eignir og væru að minnka við sig. Á þessu var gerð úttekt og af þeim umsóknum sem liggja fyrir eru það um 8% umsækjenda, þ.e. um 300 manns, og ef áætla má að þessi 8% gangi yfir heildina, það er meðaltalið frá því að nýja húsnæðislánakerfið tók gildi, um 700 manns. Þessir 700 umsækjendur taka til sín 1 milljarð króna. (Gripið fram í.) Ég hef upplýsingar þessar frá forstöðumanni Byggingarsjóðs ríkisins og ég veit ekki betur en hv. þm. Alexander Stefánsson hafi yfirleitt talið það rétt sem frá forstöðumanni Byggingarsjóðs ríkisins kemur.

Það var sem sagt 7. okt. sem nefndin lauk störfum og þá voru tillögur nefndarinnar aftur lagðar fyrir ríkisstjórnina. Einnig, og það vil ég undirstrika, var Gunnari S. Björnssyni, fulltrúa í húsnæðismálastjórn, falið að kynna húsnæðismálastjórn aftur þær breytingar sem höfðu orðið á frv. og Ásmundi Hilmarssyni var falið að kynna ASÍ þessar tillögur. Ég hafði persónulega sjálf samband við formann Vinnuveitendasambandsins og Gunnar S. Björnsson kynnti síðan honum þær tillögur sem þá voru uppi. Ásamt því sendi ég formönnum þingflokka stjórnarinnar tillögurnar, frv. fullbúið, og óskaði eftir að málinu yrði hraðað. Það var 9. okt.

Ég gekk eftir því á þessum tíma að fá fram hvort stjórnarliðar hefðu einhverjar brtt. fram að færa við frv. með símtölum við ýmsa aðila í stjórnarliðinu, til þess að fá fram brtt. ef einhverjar voru. Þær komu ekki á þessum tíma þrátt fyrir að ég gengi ítrekað eftir því.

Ég óskaði einnig eftir því að Framsfl., Sjálfstfl. og Alþfl. tilnefndu samráðsaðila í nefnd sem mundi vinna áfram að framgangi málsins, til að mynda útfærslu á vaxtastefnunni. Ég hef ekki enn fengið tilnefningu í þennan samráðshóp.

Ég taldi nauðsynlegt, herra forseti, að draga þetta fram í stuttu máli vegna þess að því er enn haldið fram, til að mynda í Þjóðviljanum í dag, að það sé flausturslegur undirbúningur á þessu frv., ekkert samráð hafi verið haft við Alþýðusamband Íslands o.s.frv. Þó hefur fulltrúi ASÍ átt sæti í þeirri nefnd sem hefur fjallað um málið á öllum stigum þess. Ég minni á það að fulltrúar ASÍ í húsnæðismálastjórn, sem samþykktu þær tillögur sem upphaflega voru lagðar fram.

Ég veit að stjórnarliðar, sem tala um slælegan undirbúning á þessu frv., hafa haft erindi sem erfiði vegna þess að því er haldið fram í fjölmiðlum núna og reynt að gefa þá ímynd af mínum vinnubrögðum að flausturslega hafi verið unnið að þessu, ekkert samráð haft við neinn og ég hafi farið einförum í þessu máli. Helst er að skilja að ég hafi bara setið ein við eldhúsborðið heima hjá mér og samið þetta frv. og lagt það svo fyrir Alþingi.

Í leiðara DV í dag er því t.d. haldið fram að það séu ótæk vinnubrögð hjá félmrh. að vinna frv. án samráðs við samstarfsflokkana í ríkisstjórn og aðila vinnumarkaðarins sem í upphafi lögðu grunninn að núverandi húsnæðismálakerfi. Ráðherrann geti ekki búist við að njóta stuðnings við eða skilnings á málstað sínum ef hún sýni samherjum í ríkisstjórnarsamstarfi algjört tillitsleysi.

Ég hlýt að vísa þessu á bug og vísa til þess sem ég sagði áðan um það hvernig undirbúningi var háttað í þessu máli.

Ég vil svo reyna að svara nokkrum af þeim spurningum sem fram hafa komið og geri það í eins stuttu máli og ég frekast get. Ég vísa til ræðu minnar líka þegar ég mælti fyrir þessu frv. sem svarar ýmsum af þeim spurningum sem fram hafa komið. Vík ég fyrst að nokkru af því sem fram kom í máli hv. þm. Alexanders Stefánssonar þegar mál þetta var fyrst tekið til umræðu.

Hv. þm. Alexander Stefánsson talaði fyrst um að það hefði verið að kröfu hæstv. ráðherra sem átti að setja bráðabirgðalög í haust, eins og hann orðaði það, „vægast sagt flausturslegar hugmyndir, en sem betur fer voru þær kæfðar í fæðingu áður en slys hlaust af“. Ég hef svarað þessu þegar og ég hef svarað því hver það var sem óskaði eftir að bráðabirgðalög yrðu sett og ég hef svarað því líka hverjir unnu að þessum tillögum.

Hæstv. ráðherra talar um að það sé í núgildandi lögum, og þar gætir nokkurs misskilnings í máli hv. þm. og fyrrv. félmrh., að forgang til lána hafi þeir sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn og þeir sem af fjölskylduástæðum þurfa að stækka við sig íbúð eða flytjast til á milli svæða. Þetta er ekki rétt vegna þess að meginreglan er að þeir sem hafa forgang eru þeir sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Þeir sem eiga íbúð fyrir eru í þessum víkjandi hóp. Að vísu er það svo að ef umsækjandi á íbúð sem á hvílir mikil skuld og skuldin er það mikil að viðkomandi á ekki nema sem samsvarar 25% af hámarksláni má setja viðkomandi í forgang. Meginreglan er hins vegar sú að það eigi að setja þá í víkjandi hóp sem eru að kaupa í annað sinn.

Hv. þm. talar um að hámarksstærð íbúðar megi vera 180 fermetrar og að þeir sem byggi stærra fái ekki lán miðað við núgildandi ákvæði laga. Þetta er ekki alls kostar rétt vegna þess að í núgildandi lögum er kveðið á um að lán byrja að skerðast um 2% á hvern fermetra þegar íbúð, sem lánað er til, er stærri en 180 fermetrar. Þetta er því ekki alls kostar rétt hjá hv. þm. Alexander Stefánssyni. Þetta er kannski einmitt það sem er verið að reyna að breyta sem hv. þm. Alexander Stefánsson heldur fram að sé í núgildandi lögum.

Hv. þm. talar um að — eins og orðað er hér, með leyfi forseta: „Vilja menn taka upp skömmtunarkerfi eftir einhvers konar efnahagsmati stjórnenda Húsnæðisstofnunar ríkisins með alls konar vottorðakerfi.“

Ég benti á það og skal ekki hafa um það mörg orð, herra forseti, að þegar er fyrir hendi í húsnæðiskerfinu það að metinn er lánsréttur viðkomandi eftir efnahag, eftir tekjum, og það er þegar um láglaunahópana er að ræða. Ég hygg að Húsnæðisstofnun eigi eins að vera treystandi fyrir þessu ákvæði í 1. gr. varðandi efnameiri hópana og þá efnaminni.

Hv. þm. Alexander Stefánsson vísar í sínu máli í bréf frá Hallgrími Snorrasyni sem var formaður þeirrar nefndar sem samdi frv. á sínum tíma og núgildandi lög. Þar vísar hann í að Hallgrímur Snorrason hafi talið að þegar í hlut á fólk sem á alveg fullnægjandi húsnæði en vill minnka við sig megi breyta frv. þannig að húsnæðismálastjórn verði heimilað að stytta lánstíma og taka markaðsvexti af lánum. Hér vitnaði hv. þm. í Hallgrím Snorrason, sem segir að til þess að ná þessu markmiði, sem verið er að reyna að stefna að núna með 1. gr., megi stytta lánstímann og taka markaðsvexti af lánum. Og hv. þm. Alexander Stefánsson segir síðan, með leyfi forseta: „Þessa sjálfsögðu breytingu samkvæmt þessum lið er hægt að gera án lagabreytinga“, þ.e. að beita markaðsvöxtum á þessa hópa. Hér er hv. þm. raunverulega að tala um mismunandi vexti innan lánaflokks. En síðar í sinni ræðu segir hv. þm. þegar hann ræðir um 4. gr. frv., þ.e. vaxtaákvæðið, með leyfi forseta: „Ég get ekki séð rökin fyrir misháum vöxtum innan hvers lánaflokks.“ Mér finnst þetta því nokkuð stangast á sem fram kemur í ræðu hv. þm. Alexanders Stefánssonar um þetta efni.

Hv. þm. talar um að vonlaust mál sé að hafa svona mikinn vaxtamismun í húsnæðiskerfinu eins og er núna og hann geti ekki verið við lýði lengur. Þetta er út af fyrir sig rétt og ég kom mjög ítarlega inn á það í minni ræðu um daginn og skal ekki hafa um það mörg orð. Jafnvel þótt við förum með vextina upp um 2% er enn of mikill vaxtamismunur í kerfinu ef allir eiga að fá lán með þessum sjálfvirka hætti sem verið hefur.

Hv. þm. Alexander Stefánsson hefur lagt mikið upp úr samráði við aðila vinnumarkaðarins. Það er út af fyrir sig alveg rétt og ég tel mig hafa reynt að gera það líka. Forseti ASÍ kom í útvarp í gær og minnti á að ASÍ hefði óskað eftir því í febrúarmánuði þegar hv. þm. Alexander Stefánsson var félmrh. að það yrði einmitt reynt að draga úr þessari sjálfvirkni í húsnæðiskerfinu og að erindi hefði verið sent til félmn. í því máli. Það er rétt. Það var gert. Það var sent erindi til félmn. frá ASÍ í febrúarmánuði að mig minnir. Þar kemur einmitt fram að Alþýðusamband Íslands leggur til að dregið verði úr sjálfvirkni. Hv. þm. Kjartan Jóhannsson lagði fram brtt. þegar frv. Alexanders Stefánssonar, hæstv. þáv. félmrh., var til umræðu hér í þinginu en brtt. hljóðaði svo, með leyfi forseta:

„Heimilt er húsnæðismálastjórn að hafna eða skerða lánveitingu úr Byggingarsjóði ríkisins ef umsækjandi á íbúð sem talist getur fullnægjandi að dómi húsnæðismálastjórnar.“

Þessi tillaga var felld af þáv. stjórnarliðum, framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum. Frsm. nefndarinnar var Friðrik Sophusson og rökstuðningur hans fyrir að fella þessa tillögu var eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Í framsöguræðu minni fyrir nál. las ég bréf frá Alþýðusambandi Íslands þar sem minnst var á það mál sem hér er verið að gera tillögu um. Það er okkar skoðun í meiri hl. nefndarinnar að hægt sé með reglugerð að nota mismunandi vexti eftir því hverjum lánað sé og hægt að taka þannig tillit til þeirra efnisatriða sem þarna er minnst á. Hér er um að ræða nokkra grundvallarbreytingu frá því sem er í lögunum, en þar er gert ráð fyrir því að lífeyrisréttindi skapi rétt. Ég tel að þetta sé óþarft að hafa í lagagrein og segi nei.“

Hér var alveg talið nóg, þó að beita ætti mismunandi vöxtum, að setja það í reglugerð. Þarna þurfti ekki að breyta lögunum til þess að beita mismunandi vöxtum. Mér finnst líka þau ummæli sem þarna koma fram skjóta nokkuð skökku við þegar þingflokkur Sjálfstfl. er einmitt að hnýta í það ákvæði sem er í frv. nú um að beita megi mismunandi vöxtum en þar er um heimildarákvæði að ræða. Eins og ég hef sagt eru vaxtaákvæðin í frv. einmitt ekki síst tekin inn í það vegna óska frá Sjálfstfl.

Ég skal fara að stytta mál mitt, herra forseti. Ég verð þó aðeins að svara þeim spurningum sem til mín hefur verið beint.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon ræddi ítarlega um hverja grein í þessu frv. og undir margt má taka sem fram kom í hans máli. Hann ræddi greinar frv. mjög málefnalega. Hann talaði um það sem fram hefur komið í máli sumra stjórnarliða að erfitt væri að sjá hverja ætti að útiloka og hverja ekki í 1. gr. frv. Ég vil í því sambandi benda á að 1980 var ákvæði svipað þessu sett í lög og þegar mælt var fyrir því ákvæði sagði sá sem þá mælti fyrir þessari breytingu, hæstv. núv. heilbr.- og trmrh., eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Heimild er opnuð fyrir húsnæðismálastjórn til að skerða lán til þeirra sem áður hafa fengið lán úr hinu almenna veðlánakerfi. Um slíka skerðingu þarf að setja nánari ákvæði í reglugerð og beita henni með mannlegri tillitssemi. Tilgangur slíkra takmarkana er að sjálfsögðu að hafa meira fjármagn til lánveitinga til þeirra sem enga íbúð eiga og hljóta að sitja í fyrirrúmi.“

Hér var því um að ræða miklu opnara ákvæði en nú er lagt til að samþykkt verði og talað var um, eins og kom fram, að beita ætti þessu með mannlegri tillitssemi.

Þm. Sjálfstfl. virtust ekki vera sammála þessari leið og kom það fram hjá hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni sem talaði þá fyrir hönd Sjálfstfl. Hann mælti gegn því að þetta væri lögfest og sagði, með leyfi forseta:

„Þá kem ég að 5. brtt. á þskj. 509. Hún er við 12. gr. og er um að 3. mgr. 12. gr. falli niður. Það koma fleiri brtt. á eftir, þar sem við leggjum til að það séu felldar niður mgr. og heilar greinar. Stundum er þetta af efnisástæðum, en oftast nær er þetta ekki af efnisástæðum, heldur af því að við teljum að það sé ekki eðlileg lagagerð að hafa þessi ákvæði í lögunum, það sé í hæsta lagi eðlilegt að hafa þau í reglugerð og stundum aðeins í auglýsingu og kannski þyrfti stundum ekkert um þau að hugsa fyrr en upp kæmi við framkvæmd málanna. Tillaga okkar um að 3. mgr. 12. gr. falli niður er ekki af efnisástæðum, heldur af þessum ástæðum og ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um það.“

Það var sem sagt nóg að hafa þetta í reglugerð samkvæmt því sem þarna kemur fram hjá talsmanni Sjálfstfl.

Þegar til þessa er litið sem ég hef greint frá er nokkuð erfitt að átta sig á þeim gagnrýnisröddum sem eru uppi varðandi ákvæði 1. gr. frv.

Að því er vaxtamálin varðar sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon spurði um vísa ég til þess sem ég sagði í framsöguræðu minni um málið. Ég tel að þar komi margar leiðir til greina og á þessu máli verður að taka þegar þetta frv. hefur fengið afgreiðslu á þinginu.

Það er talað um að hafa verði samráð við lífeyrissjóðina í þessu máli. Það kom einmitt fram í Þjóðviljanum í dag. Þar er viðtal við Hrafn Magnússon, formann Sambands almennra lífeyrissjóða, og hann er spurður að því hvort ekki hafi verið haft samráð við lífeyrissjóðina um mótun þessa húsnæðisfrv. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Hrafn sagðist ekki vilja dæma um það hvort það væri óeðlilegt að félmrh. ræddi ekki við lífeyrissjóðina við mótun húsnæðisfrv. „Ég veit ekki hvort lífeyrissjóðirnir geta blandað sér í þessa deilu. Við lánum fé í ýmsa aðra atvinnustarfsemi í landinu án þess að við blöndum okkur í það hvernig með það fé er farið.“

Aðild lífeyrissjóðanna í húsnæðiskerfinu er til komin vegna tilmæla aðila vinnumarkaðarins og ríkissjóðs.

„Það var Alþýðusambandið og aðrir aðilar vinnumarkaðarins sem komu þessu kerfi af stað og áttu meginþátt í að móta það. Síðan komu tilmæli til lífeyrissjóðanna um fjármögnun kerfisins.“

Hér talar formaður Sambands almennra lífeyrissjóða og veit ekki hvort það er eðlilegt að lífeyrissjóðirnir blandi sér í þetta mál og vitnar til þess að hér hafi fyrst og fremst verið um að ræða samkomulag aðila vinnumarkaðarins um þessa löggjöf.

Hv. þm. Geir H. Haarde hafði ýmislegt að athuga við þetta frv. Hann spurði hvort ekki væri nægjanlegt að breyta reglugerð til þess að ná þeim markmiðum sem að er stefnt með frv. Það var einmitt það sem ég reyndi þegar ég lagði málið fyrir húsnæðismálastjórn, að breyta þessu með reglugerð, en húsnæðismálastjórn taldi að það væri ekki nægjanlegt.

Hv. þm. Geir H. Haarde taldi að það væri ekki sambærilegt að vera að tala um að láglaunahópunum væri synjað úr kerfinu og þegar nú ætti að synja þeim efnameiri. Hann talaði um að láglaunahóparnir ættu þá að fá aðgang að félagslega kerfinu, en ég vil minna hv. þm. á að þegar láglaunafólkinu var úthýst og hefur verið úthýst á þessu ári, þá hefur það ekki fengið aðgang að félagslega kerfinu af því að það hefur einfaldlega ekki verið sett nægilega mikið fjármagn í félagslega kerfið til þess að þessir láglaunahópar hafi getað átt aðgang að því.

Ég tel, herra forseti, ekki ástæðu til að hafa miklu fleiri orð um þetta frv. enda sé ég að fáir þm. eru í salnum þannig að ég tel ekki ástæðu til þess að vera að fara ítarlega út í það eða svara þeim fsp. sem til mín hefur verið beint þegar fyrirspyrjendur hafa ekki meiri áhuga en svo að hlýða hér á svörin að þeir ýmist eru ekki hér í salnum eða kannski farnir.

Ég tel, herra forseti, að það sem gagnrýnt hefur verið hérna, um að þessi ákvæði frv. séu of óljós og að of mikið vald eigi að setja í mat Húsnæðisstofnunar, sé ekki á rökum reist þegar mál þetta er allt skoðað. Það er mjög algengt að ákvæði séu sett í reglugerð um ýmis mál án þess að það hafi verið gagnrýnt á Alþingi þannig að ég tel ekki ástæðu til þess að gera mjög mikið úr því. Hér er fyrst og fremst að því er 1. gr. varðar, sem mikið hefur verið rætt um, um að ræða að þessu ákvæði verði beitt mjög þröngt eftir ákveðnum reglum sem settar verða. Ég vil segja það, herra forseti, að ég er ekkert viðkvæm fyrir því þó að menn séu með einhverjar brtt. um orðalag á þessari grein sem betur mætti fara. Ég spyr t.d. hvort menn séu tilbúnir að taka upp opnara orðalag eins og var í lögunum 1980 og eins og húsnæðismálastjórn lagði til. Hér talaði hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon um að það vantaði inn í að taka tillit til fleiri atriða en íbúðareignar, það ætti að taka tillit til efnahags og ég spyr: Verða menn ekki hræddir við það að taka tillit til efnahags, fara að athuga peningaeign hjá,fólki, hvað það á mikið í verðbréfum og annað? Ég er hrædd um að þar væri um ansi mikið mat að ræða einnig.

Ég sé út af fyrir sig ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta mál. Ég óska eftir því, herra forseti, að þetta mál fái hraða afgreiðslu hér í hv. Alþingi og legg áherslu á að það komist hið skjótasta til nefndar þannig að hægt verði að opna fyrir húsnæðislánakerfið á nýjan leik. Ég tel að það sé ábyrgðarhluti af okkur hv. þm. ef það á að tefja málið mjög lengi hér í þinginu. Ég nefndi það þegar ég ræddi um þetta mál í minni framsögu að ef mikill ágreiningur er um ákvæðið í 4. gr. um vextina, þá er ég alveg tilbúin fyrir mitt leyti að beita mér fyrir því að það ákvæði verði tekið upp í sérstakt frv. og fellt út úr þessu frv. ef það má verða til þess að hraða afgreiðslu málsins. Ég minni á að það ætlaði ég að taka sem næsta stig í þessu máli þegar þetta frv. hefði verið afgreitt þó að samstarfsaðilar hefðu óskað eftir því að það væri tekið inn í frv. nú. En ýmsir í samstarfsflokkunum gagnrýna nú að það sé inni.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að svara þessu frekar vegna þess að þeir eru hér farnir flestir hverjir sem hafa beint til mín spurningum, en legg áherslu á að málinu verði hraðað og því verði vísað sem fyrst til nefndar.