23.02.1988
Neðri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4758 í B-deild Alþingistíðinda. (3275)

60. mál, iðnaðarlög

Páll Pétursson:

Herra forseti. Þeir hafa nú verið svo vitrir hér í ræðustólnum hv. 4. þm. Norðurl. v. og hv. 2. þm. Vestf. að ég hef litlu við ræður þeirra að bæta. Ég get einungis tekið undir það að hér er um mjög af drifaríkt frv. að ræða ef að lögum verður. Það veldur auðvitað hver á heldur. Það getur vel verið að gætnum og yfirveguðum iðnrh. sé treystandi fyrir svona valdi, en það er ekkert í lögum eða hefðum þingsins sem heimtar það eða tryggir það að iðnrh. á hverjum tíma sé gætinn og yfirvegaður og ef hann er það ekki, ef svo kynni að fara, getur vel verið að illa fari. Ríkisstjórnin er ekki fjölskipað stjórnvald eins og menn hafa hamrað á hér á undanförnum árum, kannski hamrað óþarflega mikið á, og ráðherrarnir eru farnir að bauka óþarflega mikið hver í sínu horni og taka sér vald yfir sínum málaflokkum eins og þeir væru einhverjir smáguðir. Ég held að stjórnarsamstarf verði ekki farsælt eða langvinnt nema menn ráðfæri sig hver við annan og samstarfsflokkar ræði saman og ráðherrar hafi samráðherra sína með í ráðum um afdrifaríkar ákvarðanir. Samráðið þarf að vísu ekki að verða eins ítarlegt og hæstv. félmrh. hafði við hæstv. forsrh. um síðustu helgi, en allt um það, þá held ég að það sé heppilegt að ráðherrarnir ráðfæri sig hver við annan.

Ég tel að það sé algerlega fráleit kenning að halda því fram að það hafi gleymst 1978 við setningu iðnaðarlaga að hafa þetta ákvæði inni í. Ég stóð að afgreiðslu iðnaðarlaga 1978 og það hefði ég ekki gert ef þetta ákvæði hefði verið þar inni. Ég tel, eins og hér hefur komið fram, miklu eðlilegra að setja sérstök lög í hverju tilfelli þegar hagkvæmt kann að vera að láta útlendinga eiga meiri hluta í fyrirtækjum hér. Ég er alveg sannfærður um að ef við hefðum ekki staðið vörð um virk yfirráð yfir fyrirtækjum svona að mestu leyti hér á Íslandi værum við miklu verr settir en við erum í dag. Ef við nú gerðum bæði þessi dagskrármál að lögum, þ.e. breyttum iðnaðarlögum, svo sem hér er lagt til, og áfengislögum, svo sem lagt er til í öðru dagskrármálinu, er út af fyrir sig ekkert því til fyrirstöðu að á góðum degi gæti Carlsberg gamli verið búinn að yfirtaka alla ölbruggunina hér.