23.02.1988
Neðri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4771 í B-deild Alþingistíðinda. (3283)

293. mál, áfengislög

Frsm. meiri hl. allshn. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á áfengislögum nr. 82/1969, með síðari breytingum. Þetta er 293. mál á þskj. 595.

Þetta frv. er flutt af meiri hl. allshn. Nd. Auk mín mynda þann meiri hl. hv. þm. Jón Kristjánsson, Sighvatur Björgvinsson og Guðni Ágústsson.

Aðdragandi að flutningi frv. er athugun allshn. á frv. um sama efni sem flutt var sem 42. mál þessa þings og kom fyrst til umræðu í þessari hv. deild þann 28. okt. sl. Því frv. var vísað til allshn. þann 25. nóv. og vísað til umsagnar ýmissa aðila daginn eftir.

Eftir að hafa athugað það frv. varð nefndin sammála um að afgreiða málið ekki frá sér þar sem á því væru ýmsir annmarkar burtséð frá því hvort nefndarmenn væru hlynntir eða andvígir áfengu öli. Í síðustu viku kynnti ég svo frv. sem ég mæli hér fyrir fyrir nefndarmönnum og varð þá sú niðurstaða að fjórir nefndarmenn lýstu sig reiðubúna að standa að flutningi þess.

Sjálfsagt má um það deila hvort réttara sé að flytja nýtt frv. um sama efni, eins og hér er gert, eða flytja brtt. við hið fyrra frv. og þá eins orðaðar og þetta frv. er orðað. Ég vil ekki gera mikið mál úr því hvort kunni að vera réttara. Mér þykja það hins vegar þinglegri vinnubrögð að flytja nýtt frv. þegar hinu fyrra er breytt svo mjög sem hér hefur verið gert. Hins vegar eru dæmin sjálfsagt fleiri um þá leið að flytja brtt. þótt hvort tveggja hafi raunar verið gert. En þessa leið völdum við og ég vona að andstæðingar frv. væni okkur a.m.k. ekki um neitt gerræði. Einnig vona ég að flm. hins fyrra frv. líti ekki svo á að verið sé að stíga ofan á þá með neinum hætti, enda býst ég ekki við að þeir kæri sig um að fá samþykkt frv. í sínu nafni sem þeir hafa ekki samið.

Ég hef líka verið spurður að því hvort þessi aðferð tefji ekki fyrir afgreiðslu málsins þar sem hér þarf að fjalla um málið við eina umræðu þá til viðbótar við það sem ella hefði þurft. Ég sé ekki ástæðu til að ætla að svo verði. Málið hefur þegar verið kynnt í nefndinni og töf verður ekki á afgreiðslu þess þar. Umsagnar þarf ekki að leita að nýju. Um það eru nefndarmenn sammála. Meginefnið er hið sama í báðum frv., þ.e. að upphefja bannið við innflutningi á áfengu öli með því að fella brott 3. málsl. 3. gr. áfengislaga og svo að leyfa framleiðslu og sölu á áfengu öli þótt farnar séu aðrar leiðir varðandi þær leyfisveitingar en í hinu fyrra frv.

Allar umsagnir sem bárust nefndinni um 42. mál fjölluðu einvörðungu um þá grundvallarspurningu hvort leyfa ætti innflutning, framleiðslu og sölu á áfengu öli en ekki um orðalag einstakra greina frv. Umsagnir þessar eru því jafngildar varðandi það frv. sem hér er nú flutt.

Ég mun þá gera grein fyrir efnisatriðum frv. og síðan greina frá þeim umsögnum sem bárust og helstu atriðum sem þar er tekið á.

1. gr. þessa frv. er samhljóða 1. gr. hins fyrra frv., þ.e. að brott falli úr áfengislögum 3. málsl. 3. gr. sem kveður á um bann við innflutningi á öli sem hefur inni að halda meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli, en skv. þeirri grein telst áfengi hver sá vökvi sem inniheldur meira en þetta magn. Áfengt öl telst því sem hvert annað áfengi. Af þessu leiðir að ríkisstjórninni einni er heimilt að flytja inn áfenga drykki hverju nafni sem þeir nefnast, sbr. 1. og 2. málsl. 3. gr. laganna, og annast Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins innflutninginn.

2. gr. þessa frv. felur í sér umorðun á 7. gr. áfengislaganna og er tekin nokkuð öðrum tökum en var í 2. gr. hins fyrra frv. Það segir svo í athugasemdum okkar við þessa grein: „Um tilbúning og framleiðslu áfengra drykkja er vísað til laga um verslun ríkisins með áfengi og tóbak nr. 63/1969, sérstaklega 2. gr. eins og henni var breytt með lögum nr. 51/1986. Þar er kveðið á um að Afengisog tóbaksverslun ríkisins sé einnig heimil framleiðsla áfengra drykkja, en þó er fjmrh. heimilt að veita öðrum aðilum en Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins leyfi til að framleiða áfenga drykki, enda sé slík framleiðsla ætluð til útflutnings eða sölu í útsölum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Ráðherra er enn fremur heimilt að setja skilyrði fyrir því að leyfi sé veitt til framleiðslu áfengis.“

Í 5. gr. laga nr. 63/1969, sbr. lög nr. 51/1986, sem ég var hér að vísa til, er kveðið skýrt á um það að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sé einnig heimilt að selja innan lands áfengi sem hún flytur inn og allt áfengi sem framleitt er innan lands.

Í 7. gr. áfengislaganna er að finna fortakslaust bann við bruggun eða tilbúningi áfengra drykkja hérlendis að öðru leyti en því að heimilt er að framleiða áfengt öl til útflutnings. Eins og áður sagði er lagt til að þetta bann verði afnumið, en um tilbúning og framleiðslu áfengs öls fari með sama hætti og um framleiðslu annarra áfengra drykkja, sbr. lög nr. 63/1969, með síðari breytingum. Enn fremur er lagt til að önnur framleiðsla, tilbúningur eða bruggun áfengis sé bönnuð.

Í 2. mgr. 7. gr. áfengislaganna er kveðið á um innheimtu framleiðslugjalds af áfengu öli. Þetta ákvæði er óþarft þar sem í lögum nr. 97/1987, um vörugjald, er beinlínis kveðið á um að framleiðsla öls sé gjaldskyld hvort sem það er áfengt eða ekki. Að öðru leyti ákveður fjmrh. hverjar tekjur ríkissjóðs skuli vera af áfengi í einkasöluverðinu. Þetta var varðandi 2. gr. frv., en hún fjallar sem sagt um að 7. gr. áfengislaganna verði umorðuð alveg.

3. gr. þessa frv. fjallar svo um að upptæk skuli gera öll áhöld sem með ólögmætum hætti á að nota eða hafa verið notuð við bruggun eða tilbúning áfengra drykkja eða til að gera drykkjarhæft það áfengi sem ódrykkjarhæft var. Þetta er nauðsynleg breyting í kjölfar breytinganna á 7. gr., þ.e. að upptæk skuli gerð þau tæki sem hafa verið notuð til ólögmætrar framleiðslu.

4. gr. þessa frv. fjallar svo um að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins annist innflutning, dreifingu og sölu áfengis, sbr. lögin um verslun ríkisins með áfengi og tóbak. Um það er svo sem ekkert sérstakt að segja.

5. gr. fjallar svo um breytingu á 1. mgr. 15. gr. áfengislaga. Í gildandi lögum er notað orðið „vína“, en í stað þess er lagt til að komi orðið „áfengis“ sem tekur þá einnig til áfengs öls. Það er rétt að taka fram að þar sem notað er orðið „vínveitingar“ í áfengislögum verður það að teljast taka til allra áfengisveitinga, þar með talið áfengs öls.

6. gr. frv. fjallar svo um gildistöku þess og þar er gert ráð fyrir að lögin öðlist gildi 1. mars 1989. Þessi tímamörk eru sett til að veita innlendum framleiðendum og þeim sem hyggja á ölframleiðslu nokkurt svigrúm og ekki síður til að gefa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins tækifæri til þess að undirbúa þessa breytingu.

Þetta eru efnisatriði frv. sem ég hef gert hér grein fyrir og aðdraganda þess að þetta nýja frv. er flutt. Ég kem þá að umsögnum þeim sem nefndinni bárust. Án þess að ég ætli að fara að rekja þær umsagnir í ítarlegu máli, það tæki allt of langan tíma, tel ég rétt og sjálfsagt að gera hér grein fyrir niðurstöðum þeirra sem sent hafa nefndinni umsagnir um leið og ég nefni þá aðila.

Það verður þá fyrst fyrir umsögn Æskulýðsráðs ríkisins, en í samandregnu máli segir æskulýðsráðið: „Afstaða Íslendinga til bjórneyslu er gjarnan sú að bjórinn sé vægasta áfengi á markaðnum og teljist varla til áfengis á sama hátt og aðrir alkóhóldrykkir. Þó er ljóst að til eru létt vín sem hafa minna áfengismagn en mörg bjórgerðin. Því er mjög varasamt að innleiða hann hingað til lands án mikils fræðslu- og áróðursátaks þannig að menn séu vel upplýstir um hætturnar sem fylgja bjór sem og öðru áfengi.“

Þá er hér næst umsögn félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar og þar er mjög svipuð umsögn í lokin. „Því er mjög varasamt“, segir hér, með leyfi hæstv. forseta, „að innleiða bjórinn hingað til lands án þess að á undan fari mikið fræðslu- og áróðursátak þannig að Íslendingar séu vel upplýstir um hætturnar sem fylgja bjór sem og öðru áfengi.“

Ferðamálaráð Íslands sendir stutta umsögn sem endar á þessum orðum: „Samþykkt var að mæla með að frv. verði samþykkt.“ Það var á fundi stjórnar Ferðamálaráðs.

Alþýðusamband Íslands segir að miðstjórnin hafi fjallað á fundi sínum 10. des. um málið. „Af hálfu miðstjórnar ASÍ hefur ekki verið tekin sérstök afstaða til frv., en miðstjórn minnir á samþykkt 34. þings Alþýðusambands Íslands 1980. (Gripið fram í: Hvernig var sú samþykkt?) Sú samþykkt var svohljóðandi:

„34. þing ASÍ bendir á niðurstöður Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna“, það á sjálfsagt að vera Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, „þar sem fram kemur að þau vandamál er stafa af áfengisneyslu verði í beinu samhengi við heildarneyslu þess. Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna telur helstu ráðin til úrbóta á þessu sviði vera að halda verðlagi á áfengi háu og fækka dreifingarstöðum áfengis. 34. þing ASÍ lýsir yfir fullum samstarfsvilja við þá aðila sem berjast gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu og aðstoða þá einstaklinga sem háðir eru þessari neyslu.“ Þannig var samþykktin.

Íþróttasamband Íslands sendir umsögn og tekur eftirfarandi fram:

„Það hefur verið stefna Íþróttasambands Íslands frá upphafi að vinna gegn áfengisneyslu og kemur það fram í margendurteknum samþykktum íþróttaþinga ÍSÍ svo og annarra funda er tekið hafa afstöðu til áfengismála.“ Þessi afstaða ÍSÍ er óbreytt.

Þá er Læknafélag Íslands hér næst, en það fylgir bréfi Læknafélagsins allítarleg umsögn og ég tek hér lokaorðin, með leyfi forseta: „Eins og fram kemur hér að framan eru þargreindir aðilar“, þ.e. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sem þar er fyrst og fremst vísað til, „sammála um nauðsyn þess að draga úr heildarneyslu áfengis. Stjórn félagsins, þ.e. Læknafélags Íslands, tekur undir þessi sjónarmið, en bendir á að skoðanir eru mjög skiptar meðal lækna um leiðir til að ná þessum markmiðum.“

Áfengisvarnaráð sendir ítarlega umsögn, auk þess sem fulltrúar frá áfengisvarnaráði og áfengisvarnaráðunautur ríkisins komu til viðtals við nefndina. Ég þarf vart að geta um þeirra niðurstöðu þar sem hún hefur æðioft komið fram. Þeir eru alfarið andvígir þessu frv.

Landssamband lögreglumanna sendir umsögn og þar segir svo: „Stjórn Landssambands lögreglumanna telur ljóst að mikið magn af áfengu öli sé nú þegar flutt inn í landið með ferðamönnum og áhöfnum fara. Með slíkum innflutningi verði til óeðlilegur aðstöðumunur þegnanna.

Að lokum vill stjórn Landssambands lögreglumanna undirstrika mikilvægi þess að áfengt öl verði aldrei selt í öðrum versfunum en ÁTVR og eftirlit með sölu þess verði ekki lakara en með sölu annars áfengis. Áfengt öl verði ekki ódýrara en sambærilegur vínandi í öðrum áfengistegundum. Þá verði fræðsla um skaðsemi alls áfengis stóraukin.“

Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið senda umsögn eða framkvæmdastjórn þeirra samtaka og þar segir svo: „Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, SÁÁ, er hópur 8 þúsund einstaklinga sem hafa sameinast undir einu merki til þess að berjast á raunhæfan hátt við áfengisvandamálið. Félagsmenn eru nánast þverskurður af þjóðfélaginu með ólíkar skoðanir á opinberum málum. Innan SÁÁ rúmast bindindismenn, hófdrykkjumenn og drykkjusjúklingar. Stjórn SÁÁ getur því ekki tekið afstöðu fyrir hönd þessa hóps með eða á móti fram komnu frv. þess efnis að leyfð verði bruggun og sala bjórs á Íslandi.“

Kvenfélagasamband Íslands telur að ekki beri að rýmka ákvæði núgildandi áfengislaga. Verkamannasamband Íslands vísar til ályktunar sem samþykkt var á 13. þingi þess á Akureyri dagana 29.–31. okt. sl., en ályktunin er svohljóðandi:

„13. þing Verkamannasambands Íslands lýsir fyllsta stuðningi sínum við öll félagasamtök sem berjast gegn notkun vímuefna. Jafnframt skorar þingið á alþm. að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um fram komið bjórfrv.“

Þá er hér næst fyrir Samband veitinga- og gistihúsa og þar segir svo: „Stjórn Sambands veitinga- og gistihúsa fagnar ef Alþingi tekst að lokum að leiða viðkomandi breytingar á áfengislöggjöfinni til lykta og samþykkir að heimilaður verði innflutningur og framleiðsla á bjór með þeim skilyrðum sem fram koma í frv.“

Vinnuveitendasamband Íslands gerir ekki athugasemdir við efni frv., þ.e. að sala og bruggun áfengs öls verði leyfð.

Geðlæknafélag Íslands ályktaði á almennum fundi sem fjallaði um málið 21. jan. sl. og á fundinum var eftirfarandi ályktun gerð:

„Geðlæknafélag Íslands telur að vísa beri frá fram komnu frv. til l. um breytingu á áfengislögum nr. 82 1969 vegna þess að framleiðsla og sala áfengs öls hér á landi mundi leiða til aukinnar áfengisneyslu og aukins tjóns á heilsufari þjóðarinnar. Jafnframt leggur félagið til að Alþingi taki til umræðu tillögur áfengismálanefndar ríkisstjórnarinnar frá því í janúar 1987.“

Stórstúka Íslands sendir umsögn og þar segir svo, með leyfi forseta: „Hinn 7. maí 1981 samþykkti Alþingi þingsályktun um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum sem fyrst og fremst fæli í sér minnkun vímuefnavandans. Öllum dómbærum mönnum, læknum, lögreglu og æskulýðsleiðtogum ber saman um að bruggun og sala áfengs öls hér á landi eins og gert er ráð fyrir í frv. muni hafa í för með sér allverulega aukningu á áfengisneyslu þjóðarinnar. Einkum mundi áfengis- og vímuefnaneysla unglinga aukast. Í trausti þess að Alþingi vilji enn sem fyrr standa við samþykkt sína frá 7. maí 1981 leggjum við til að frv. verði fellt.“

Ég hef þá farið yfir, herra forseti, þær umsagnir sem nefndinni bárust og hef aðeins stiklað á því stærsta í þeim umsögnum en þó getið niðurstöðu þeirra allra. Ég ætla ekki að leggja neinn dóm á það sem þar hefur verið sagt heldur aðeins greina hér frá þessu.

Til viðtals komu við nefndina fulltrúar frá áfengisvarnaráði, eins og ég sagði áðan, og áfengisvarnaráðunautur ríkisins. Landlæknir kom til viðtals einnig, en landlæknisembættið hafði sent umsögn um þetta sama mál þegar það var síðast til meðferðar hér á hv. Alþingi og hafði þar engu við að bæta og er andvígt frv. Þá ræddum nefndarmenn einnig við póst- og símamálastjóra og forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. (ÓÞÞ: Hvað höfðu þeir að segja?) Þeir höfðu sitt af hverju til málanna að leggja. Póst- og símamálastjóri var kvaddur á fund nefndarinnar til þess að gera henni grein fyrir viðhorfum sinnar stofnunar til þessa máls að því leyti sem það tekur til póstflutninga á bjór sem vafalaust yrði nokkurt mál fyrir póstmálastofnunina ef frv. yrði samþykkt. Póst- og símamálastjóri sendi nefndarmönnum stutt plagg að loknum fundinum og ég get hlaupið á niðurstöðum hans. Hann segir þar, með leyfi forseta:

„Verði hafin sala á öli hjá ÁTVR hlýtur sami háttur að verða hafður á af póstþjónustunnar hálfu og með aðrar sendingar ÁTVR sem á annað borð uppfylla viðtökuskilyrði póstþjónustunnar um frágang og hámark stærðar og þyngdar. Ölsendingar væru að vísu margar hverjar“... (GHelg: Þeir eru nú í þessu hvort eð er.) Þeir eru í þessu, já, já, það kemur fram. „Ölsendingar væru að vísu margar hverjar fyrirferðarmeiri en aðrar sendingar ÁTVR og tækju meira geymslurými á pósthúsum. Jafnframt mætti ákveða skemmri geymslufrest en hinn almenna fyrir þessar sendingar. Ekki má heldur gleyma að sendingar til fólks utan þéttbýlis eru fluttar heim með landpóstum.“ - Góð þjónusta það.

Að öðru leyti held ég að hafi mátt ráðá í mál póst- og símamálastjóra þannig að hann hefði ekki verulegar áhyggjur af þessu frv. eða afgreiðslu þess. Hans stofnun mundi sinna þeim viðfangsefnum sem henni yrðu lagðar á herðar.

Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins benti nefndarmönnum á ýmis atriði sem nauðsynlegt væri að lagfæra í frv. sem þá var til meðferðar hjá nefndinni og veitti okkur verðmætar upplýsingar af reynslu sinni, bæði sem forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins og sem fyrrv. ráðuneytisstjóri í fjmrn. Ég held að ég megi segja að í frv. sem ég er hér að mæla fyrir hafi verið tekið tillit til ábendinga forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.

Nefndarmenn allshn. hafa sem aðrir haft undir höndum ýmis fleiri gögn en hér hafa verið talin. Ég nefni þar áskorun nokkurra prófessora læknadeildar Háskóla Íslands og áskorun lækna sem vinna að meðferð áfengissjúklinga. Ég verð að segja að eftir að þessar ályktanir voru birtar virtist umræðan taka á sig þá mynd að það væri læknisfræðilega sannað og um það full samstaða í læknastétt að bjór skyldi áfram vera bannvara á Íslandi að svo miklu leyti sem hægt er að tala um hann í alvöru sem bannvöru. Umræðan á hv. Alþingi tók líka á sig þessa mynd að nokkru leyti. En ég segi það líka sem mína skoðun að það er miður þegar menn fara að alhæfa eins og komið hefur of oft fyrir í umræðum um bjórmálið.

Það getur ekki verið málstaðnum til framdráttar. Ég nefni í þessu samhengi ályktun um bjórmálið, sem svo heitir, sem 133 sérmenntaðir læknar undirrituðu í tilefni af áskorun prófessoranna. (ÓÞÞ: Geturðu ekki lesið upp nöfnin.) Nei, ég held að ég sé ekki að tefja tímann á því. Það geta aðrir lagt sig í það að stunda málþóf á þinginu í þessu efni, (Gripið fram í.) en ég efast ekkert um að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson á eftir að tala í þessu máli og ég get vel unnt honum þess að lesa þessa nafnarunu ef honum finnst nauðsynlegt að fá það inn í þskj. (ÓÞÞ: Ég er ekki með það fyrir framan mig.) Ég skal lána þér mitt eintak á eftir. — En í ályktun þessara lækna segir m.a., með leyfi forseta:

„Þá er líklegt að neyslan beinist frekar að veikari drykkjum og frá þeim sterkari. Að áliti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar eru virkustu ráð til að stjórna heildarneyslu markviss verðstýring og takmörkun dreifingar en ekki bann á einstökum tegundum.“ Þeir segja hér einnig: „Þá er einnig ljóst, ef litið er til faraldsfræðilegra rannsókna, að lítið samband er milli heildarneyslu áfengis og fjölda drykkjusjúkra. Þannig er hlutfall drykkjusjúkra svipað á Íslandi og í Bandaríkjunum þrátt fyrir mun meiri neyslu þar. Hlutfall drykkjusjúkra er og svipað á Íslandi og í Svíþjóð og Noregi, en í þeim löndum er bjór leyfður með líku fyrirkomulagi og fyrirhugað er hér á landi. Við undirritaðir teljum því ekki ástæðu til að ætla að íslenska þjóðin muni missa fótfestuna í áfengismálum þó leyfð verði sala bjórs í áfengisútsölum.“

Mér sýnist nú satt að segja mikilvægara fyrir hv. þm. að heyra hvað læknar eða hópar lækna hafa að segja frekar en heyra lesna nafnarununa þó að hún kunni að skipta máli.

Þessi mismunandi álit lækna segja mér eitt og aðeins eitt og það er þetta: Það verður ekki lagt læknisfræðilegt mat á skaðsemi þess að leyfa bjór á Íslandi, ekki óumdeilanlegt læknisfræðilegt mat, en það hafa sumir viljað gera. Kveikjan að undirskrift þessara 133 sérmenntuðu lækna var auðvitað áskorun prófessoranna sem auglýstu álit sitt í dagblöðunum á bjórfrv. í krafti sinna embætta. Það var ekkert óeðlilegt við það heldur að allur almenningur skildi það svo að hér væri á ferðinni skoðun læknastéttarinnar almennt og að stuðst væri við vísindaleg rök eins og Grétar Sigurbergsson geðlæknir segir í grein í Morgunblaðinu þann 10. febr. sl. Umræðan í þessari hv. deild fyrr í vetur einkenndist að nokkru leyti af þessum skilningi eða öllu heldur misskilningi eins og ég nefndi áðan án þess að ég ætli að fara að vitna sérstaklega í einstaka þm. en gæti þó gert það.

Herra forseti. Ég þarf í sjálfu sér ekki að hafa þessi orð mín öllu fleiri og get stytt mál mitt. Ég læt í ljós þá von að þessi umræða verði með málefnalegri hætti en hún stundum hefur verið. Alþingi verður að taka afstöðu í þessu mjög svo mikilvæga og viðkvæma deilumáli. Til þess gefst nú tækifæri og tími þar sem málið er nú fyrr á ferðinni á þingtímanum en oftast áður.

Þótt þetta frv. hafi verið kynnt í allshn. þessarar hv. deildar legg ég samt til að því verði vísað til nefndarinnar. Slíkt verður að teljast eðlilegt og raunar þingleg vinnubrögð til þess að nefndarmönnum gefist tóm til að ganga frá nál.

Eins og ég áður sagði er skilningur á því hjá nefndarmönnum að afgreiða málið til 2. umr. frá nefndinni án sérstakra tafa og óþarfi er að senda það að nýju til umsagnar.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og allshn.