23.02.1988
Neðri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4790 í B-deild Alþingistíðinda. (3293)

293. mál, áfengislög

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég þakka fyrir að forseti lét vit ráða.

Örfá orð á ég vantöluð við hv. 13. þm. Reykv. Ég veit ekki til að hv. 13. þm. Reykv. hafi unnið hér um jólin. Ég veit ekki betur en hv. 13. þm. Reykv. hafi farið til útlanda og haft þar náðarsamlegt jólafrí. Og ég veit ekki til að hv. 13. þm. Reykv. hafi verið hýrudreginn fyrir að mæta ekki til vinnu á þessum tíma.

Ég biðst undan því að það sé á mig borið að ég hafi fyrirskipað svo að hér yrði unnið á þessum tíma. Ég hélt að hv. 13. þm. Reykv. vissi að þingið kýs sér forseta og forsetar hafa mikil völd og því skiptir verulegu máli hvernig þeir fara með þau völd. Hér er og starfandi ríkisstjórn í landinu og með fullri virðingu fyrir einstökum þm. hélt ég að hv. 13. þm. Reykv. gerði sér grein fyrir því að ríkisstjórn og forsetar ráða mestu um hvernig staðið er að vinnu í þinginu. Ég segi ekki að þeir ráði öllu.

Mig undrar satt best að segja ef hv. 13. þm. Reykv. telur að það sé óeðlilegt þó að þm. leyfi sér að spyrja forseta að því stundum hvernig hagað verði vinnu til að átta sig á því á einhvern hátt hvenær hér sé unnið og hvenær ekki. Ég leyfði mér að gera það og tel mig ekki þurfa að biðjast afsökunar á því. Þar fékk ég ákveðið svar.

Mér skilst aftur á móti að hv. 13. þm. Reykv. telji að það sé óheimilt að slíkar viðræður eigi sér stað milli þm. og forseta. Vissulega má þm. hafa þá skoðun fyrir mér. En satt best að segja undrar mig ef svo er komið að hennar mati réttindum og skyldum þm. að það sé óheimilt að spyrja forseta að því um miðjan dag eða að morgni dags hvernig störfum verði hagað í þinginu.