14.10.1987
Efri deild: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

8. mál, Skattadómur og rannsókn skattsvikamála

Flm. (Svavar Gestsson):

Hæstvirtur forseti. Á þskj. 8 flytjum við þrír þm. Alþb. í hv. deild frv. til laga um skattadóm og rannsókn skattsvikamála. Þetta frv. var lagt fyrir síðasta þing en hlaut þá ekki afgreiðslu og hafði reyndar sést áður á hv. Alþingi í formi stjfrv. sem flutt var á sínum tíma af þáverandi hæstv. dómhsmrh., Vilmundi Gylfasyni.

Kveikjan að flutningi þessa frv. á síðasta þingi og nú var fyrst og fremst sú að árið 1986 kom út skýrsla um skattsvik sem unnin var af nefnd undir forustu Þrastar Ólafssonar hagfræðings. Í þessari skýrslu er rækilega staðfest það, sem lengi hefur verið á almannavitorði hér á landi, að skattsvik eru verulegt efnahagslegt vandamál. Er löngu fullreynt að ekki verður tekið á þeim vandamálum eftir hefðbundnum leiðum og því óhjákvæmilegt að grípa til sérstakra ráða. Frv. um skattadóm er því endurflutt hér af þm. Alþb. og er það í samræmi við ákvarðanir og samþykktir sem flokkur okkar hefur markað, m.a. á aðalfundi miðstjórnar Alþb. í nóvember 1986 þar sem það var samþykkt að flokkurinn skyldi beita sér fyrir því að stofnaður yrði skattadómstóll ásamt því að tekin yrði upp öflugri meðferð skattsvikamála en verið hefur til þessa.

Jafnframt þessu frv., virðulegi forseti, sem ég mæli hér fyrir, flytjum við sömu þm. frv. um breytingar á tekju- og eignarskattskerfinu sem lýtur að breytingum á sköttun fyrirtækja og einföldun á meðferð skattamála einstaklinga. Þessi frv. eiga því í raun og veru samleið, bæði það frv. sem hér er mælt fyrir svo og það frv. sem birtist hv. deild á þskj. 9.

Nú er það svo að skattamál eru mjög til umræðu þessa dagana vegna framlagningar fjárlagafrv. þar sem ríkisstjórnin hefur undir forustu Alþýðufl. kosið að finna matinn, sem fólkið verður að borga, sem meginskattstofn og er það vissulega nokkuð fróðlegt að „alþýðuflokkur“ skuli hafa forustu um skattlagningu af þeim toga. Þar sem hér er um að ræða tengd mál sem óhjákvæmilega tengjast skattamálum á mikið víðara sviði en gert er ráð fyrir í frv. þessu fer ég þess á leit við hæstv. forseta að hún kanni hvort hæstv. fjmrh. er við í dag þannig að hann megi taka þátt í þessari umræðu. Ég mun hins vegar halda framsöguræðu minni áfram fyrir þessu máli meðan þetta yrði kannað ef hæstv. forseti sér sér það kleift.

Frá því að frv. um skattadóm og meðferð skattsvikamála var flutt fyrst af Vilmundi Gylfasyni, hæstv. þáverandi dómsmálaráðherra, á þinginu 1979 hefur ýmislegt breyst í meðferð þessara mála. M.a. það að Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú starfandi á sínum vegum sérstaka deild sem rannsakar svokölluð hvítflibbabrot. Þar starfa nú lögreglufulltrúi og lögreglumenn, en enginn þeirra er sérmenntaður til þessara starfa. Þá hefur sakadómurum í Reykjavík verið fjölgað og var fyrirhugað að þeir tækju sérstaklega að sér að sinna málum af því tagi sem frv. fjallar um. Ekki er þó um að ræða deildaskiptingu í sakadómi í þessu skyni, en vegna fjölgunar sakadómara er þó talið að mál hafi gengið hraðar fyrir sig þar að undanförnu en áður hafi verið. Þrátt fyrir þetta töldu flm. þessa frv. rétt að halda inni ákvæðum 6. gr. frv. eins og það var upphaflega með lítils háttar breytingum.

Með ákvæðum 6. gr. hefði umrædd deild Rannsóknarlögreglu ríkisins fengið lagagrundvölI að starfa á, jafnframt því sem greinin gerir ráð fyrir því að deildarstjórinn þar hafi sérmenntun til að rann saka skattsvik og bókhaldsmál. Í frv. er gert ráð fyrir að skattrannsóknarstjóri annist almennt eftirlit og rannsókn á skattkröfuþætti mála. (Forseti: Má ég aðeins trufla hv. þm. til að tilkynna að fjmrh. er ekki í húsinu, en það er verið að athuga hvar hann muni vera og hvort hann gæti komið hingað.) Ég þakka hæstv. forseta fyrir að hafa kannað málið og mun halda áfram framsöguræðu minni fyrir þessu máli og sjá þá hvað fjmrh. líður þegar henni er lokið.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, virðulegi forseti, eins og ég gat um, að skattrannsóknarstjóri annist almennt eftirlit og rannsókn á skattkröfuþætti mála. Síðan er gert ráð fyrir að deild Rannsóknarlögreglu ríkisins annist rannsókn skattsvika og brota sem þeim tengjast. Embætti ríkissaksóknara fari sem áður með ákæruvald í þeim málum. Þá taki við sérstakur sakadómur í skattamálum, skattadómur, og skal umdæmi hans vera landið allt. Heyrst hafa hugmyndir um að hafa alla rannsókn og dómsmeðferð skattsvikamála á einni hendi. Þeirri hugmynd er í raun og veru hafnað með þessu frv. því flm. telja ekki rétt að blanda þannig saman rannsóknarvaldi og dómsvaldi. Þá er þeirri hugmynd einnig hafnað, sem gæti komið til greina, að skattrannsóknarstjóri annist rannsókn á refsiþætti skattamála. Ástæðan er m.a. sú að slíkt ákvæði gæti dregið úr almennu eftirliti hjá embætti skattrannsóknarstjóra.

Oft hefur verið rætt um ókosti þess að hafa sérdómstóla. Þar hefur einkum verið bent á þann vanda sem upp kemur þegar sami maðurinn er grunaður um mörg mismunandi brot, bæði skyld og óskyld skattsvikamálum. Í frv. er gert ráð fyrir að skattadómstóllinn geti fjallað um skattabrot og tengd brot, svo sem skjalafals, brot á bókhaldslögum eða gjaldeyrislögum. Aðaláherslan er lögð á skattalagabrotið, enda geta brot á þeim lögum varðað allt að sex ára fangelsi. Telji hins vegar ríkissaksóknari aðalþátt brotastarfsemi vera annan en skattalagabrot getur hann höfðað mál fyrir almennum dómstóli.

Í grg. frv. er gerð ítarleg grein fyrir þeim breytingum sem þetta frv. hefði í för með sér ef að lögum yrði og tel ég enga ástæðu til að rekja það ítarlega hér en vísa til athugasemda við einstakar greinar frv.

Það er hins vegar rétt að vekja athygli á að kveikjan að flutningi þessa frv. í fyrra og nú líka er niðurstaða þeirrar skýrslu um skattsvik sem unnin var af nefnd sem starfaði undir forustu Þrastar Ólafssonar hagfræðings sem ég reyndar gat um í upphafi máls míns áðan. Í þessari skýrslu koma fram hrikalegar upplýsingar um ástandið í þessum málum og um það hefur verið rætt á liðnum þingum aftur og aftur að nauðsynlegt sé að grípa til ráðstafana í þessum efnum. Það er t.d. talið samkvæmt niðurstöðu þessarar skýrslu um skattsvikin að umfang svokallaðrar „dulinnar starfsemi“ - þetta er orðalag nefndarinnar, tek ég fram, en ekki mitt — sé á bilinu 5–7% af vergri landsframleiðslu. Ef við gerum ráð fyrir því að verg landsframleiðsla á þessu ári sé í kringum 150 milljarðar kr. er hér um að ræða upphæð á stærðarbilinu 71/2 til 10 milljarðar kr. Tap hins opinbera vegna vangoldinna beinna skatta og söluskatts, sem hefði átt að koma inn af þessum upphæðum, er talið hafa verið á árinu 1985 2500–3000 millj. kr. sem hið opinbera, þ.e. ríkið aðallega en líka sveitarfélög, missir af út úr sinni samneyslu. Það er ljóst að þessi upphæð er miklu hærri, t.d. á forsendum fjárlagafrv. fyrir árið 1988 sem hæstv. fjmrh. hefur lagt hér fyrir þingið. Ekki treysti ég mér til að giska á hversu miklu hærri sú upphæð gæti verið, en þar munar verulegum tölum og það er augljóst mál að að minnsta kosti þessi upphæð, ef hún hefði náðst inn, hefði dugað til að brúa það bil sem var fyrirsjáanlega á fjárlögunum á árinu 1987 til 1988. Þessar tölur hefðu í raun og veru dugað til að brúa það bil ef þetta hefði allt náðst inn.

Samkvæmt könnun sem nefndin lét gera til að kanna hvar aðallega væri um að ræða svokallaða dulda efnahagsstarfsemi og skattsvik bárust böndin mjög að byggingarstarfsemi af ýmsu tagi, svokallaðri persónulegri þjónustustarfsemi, einnig iðnaði, verslun og veitinga- og hótelrekstri. Nefndin telur engar óyggjandi leiðir til að áætla söluskattssvik, en samkvæmt þeirri aðferð sem nefndin lýsir ítarlega í skýrslu sinni gerir hún ráð fyrir að umfang söluskattssvika hér á landi sé um 11% af innheimtum söluskatti, en þessi upphæð jafngilti 1300 millj. kr. fyrir árið 1985.

Það er rétt að geta þess hverjar nefndin, sem rannsakaði skattsvikin, telur í raun og veru helstu ástæður skattsvika. Það er í fyrsta flókið skattakerfi með óljósum mörkum milli hins löglega og ólöglega. Frádráttar- og undanþáguleiðir íþyngja mjög framkvæmd skattalaga og opna margvíslegar undankomuleiðir.

Í öðru lagi er skattvitund almennings tvíbent, eins og það er orðað, og verður óljósari eftir því sem einstök skattaleg ívilnunarákvæði einstakra hópa aukast og skatteftirlitið versnar. Þetta grefur undan réttlætiskennd skattgreiðenda.

Í þriðja lagi: Há skatthlutföll hafa áhrif á umfang skattsvika. Þau hvetja til þess að nýta sér undankomuleiðir og það mun meira sem hlutföllin eru hærri.

Í fjórða lagi: Auk þess ber að nefna að eflaust á tilhneiging til lagasetningar og opinberra hafta á ákveðnum sviðum sinn þátt í örvun til skattsvika. - Og ég verð að segja það með fullri virðingu fyrir þessari ágætu nefnd að ég skil ekki þessa síðustu setningu nema þá að eigi að skilja hana þannig að það beri að koma í veg fyrir lagasetningu yfirleitt og þar með að leggja verulegan hluta af starfi Alþingis niður. Ég átta mig ekki alveg á því hvað þarna er verið að fara. En í heildina tekið held ég að það sé ljóst að þær ástæður sem nefndin tilgreinir fyrir skattsvikum hér á landi eru ástæður sem við öll, sem höfum setið á hv. Alþingi, höfum í raun og veru verið sammála um. Um það hefur ekki verið ýkjamikill ágreiningur.

Nefndin leggur fram ýmsar ábendingar um úrbætur, ítarlegar tillögur til úrbóta, bæði varðandi skattalögin sjálf og skattaframkvæmd, bókhaldslög og framkvæmd þeirra, skatteftirlit og svo eru ábendingar um úrbætur þar sem ítarlega er farið yfir hlutina, vísað t.d. til fyrirkomulags í þessum málum í grannlöndum okkar og fleira mætti nefna. Ég held að þó að það sé út af fyrir sig rétt, sem hreyft hefur verið sem andmælum við þessu frv., að sérdómstólar séu að mörgu leyti óheppilegir sé ástandið í þessum málum svo alvarlegt hér á landi að það eigi að grípa til sérstakra og takmarkaðra ráðstafana, t.d. þess að stofna skattadóm, jafnvel þó að menn hugsi sér t.d. að þessi skattadómur starfaði aðeins í 2, 3 eða 4 ár meðan væri verið að vinna sig út úr því skattsvikakerfi sem er við lýði hér á landi og er útmálað með mjög skýrum hætti í áliti skattsvikanefndarinnar.

Ég held að með ákvörðun um skattadóm samhliða einföldun skattalaga, einkum að því er varðar fyrirtækin, því að það er þar sem undankomuleiðirnar eru flestar, tækist að ná verulegum fjármunum inn í samneysluna frá þeim sem núna sleppa við að borga til hinnar félagslegu þjónustu þrátt fyrir rífandi tekjur og lúxus í lifnaðarháttum svo að engu tali tekur.

Hæstv. fjmrh. hefur á undanförnum árum sem formaður Alþfl. iðulega haft uppi allítarlegt mál um þessi efni og ég efast ekki um að á bak við þær ræður er af hans hálfu góður vilji. Hins vegar hefur þessi vilji ekki birst okkur þm. enn þá í öðru en fjárlagafrv. þar sem uppistaðan er skattur á matvæli en ekki brotið upp á neinum róttækum nýjungum í skattakerfinu að öðru leyti því að þetta kalla ég ekki róttæka nýjung. Þar sem hann hins vegar lýsir því yfir í fjárlagafrv. og grg. þess og í stjórnarsáttmálanum að unnið skuli að þessum málum áfram finnst mér nauðsynlegt að við, sem erum hér úr stjórnarandstöðuflokkum, alla vega fyrir okkar hönd þm. Alþb., látum sjást hvernig við viljum með þessi mál fara því að við viljum auðvitað ekki einasta veita ríkisstjórninni aðhald í þessum efnum eins og öðrum heldur viljum við einnig sýna með hvaða hætti við viljum reyna að taka á þessum málum. Vænti ég þess að þær ábendingar sem fram koma frá stjórnarandstöðunni fái hljómgrunn þegar fjmrh. fer að fjalla um þessi mál.

Ég mun ekki fara nánar út í fyrirtækjaskattana að sinni heldur ræða það undir næsta dagskrárlið þar sem um er að ræða frv. til l. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt og rækilega er farið út í verulegar nýjungar varðandi fyrirtækjaskattana og sömuleiðis gert ráð fyrir breytingum á sköttum og einkanlega framtölum einstaklinga.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.