24.02.1988
Efri deild: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4812 í B-deild Alþingistíðinda. (3312)

285. mál, sala hluta ríkisjarðarinnar Þóroddsstaðar í Ljósavatnshreppi

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Það kom fram hér hjá hv. síðasta ræðumanni, 7. þm. Reykv., að hann flytti sína venjulegu ræðu með almennum athugasemdum, en ég vildi þá aðeins í því sambandi benda á að Alþingi markaði að sjálfsögðu stefnu í þessum málum þegar það ákvað að ábúendum jarða væru heimil kaup á þeim eftir ákveðinn árafjölda búsetu þeirra á jörðinni. Langflestar þær sölur sem fram fara byggjast á þessu ákvæði um það.

En í sambandi við þetta frv. þá er þarna aðeins um að ræða að verið var að lagfæra skipti milli þessara jarða sem var í mörgum skikum og ákaflega óhagkvæm til nýtingar. En um leið og það var gert þótti eðlilegt að heldur drýgri hluti rynni til býlisins Engihlíðar sem hafði fengið svo lítinn hluta af upphaflegu jörðinni við fyrstu skipti. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að landbn. kynni sér þetta mál vandlega og þá komi þar greinilega fram um hversu mikinn hlut af jörðinni er þarna að ræða og þá kort yfir þá skiptingu sem þarna hefur verið gerð.