25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4842 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

236. mál, raforkuframleiðsla

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. skýr og greinargóð svör.

Það var athyglisvert sem hann sagði síðast, þ.e. ég skildi ummæli hans svo, að það væri úr sögunni þetta fáránlega fyrirkomulag sem var í janúar og ber vissulega að fagna því, þ.e. þegar við notum innflutta sovéska olíu til að framleiða raforku með kostnaði sem er tæpar 6 millj. kr., en ef Rafmagnsveitur ríkisins hefðu átt að kaupa þessa orku af Landsvirkjun á gildandi töxtum hefði kostnaðurinn verið 36,6 millj. kr. Þetta sýnir auðvitað svo ekki verður um villst að eitthvað er bogið við þessar verðskrár og það meira en lítið. Ég er ekki að gagnrýna Rafmagnsveitur ríkisins, síður en svo. Þetta er bara einföld vörn og skynsamleg rekstrarráðstöfun af þeirra hálfu. En hins vegar eru þessir taxtar þá rammvitlausir. Ég fagna þeirri yfirlýsingu ráðherra að samkomulag hafi tekist um að nú skuli látið af þessu og þessu muni linna. Það var tími til kominn.