25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4843 í B-deild Alþingistíðinda. (3329)
191. mál, tjón á ljósleiðurum
Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Tveimur af þremur spurningum á þskj. 220 er beint til samgrh. Varðandi nr. 1 er þeirri spurningu svarað játandi og vísað til 2. málsgr. 11. gr. fjarskiptalaga nr. 73/1984. Skv. þeirri grein ber sá ótakmarkaða ábyrgð sem óvænt eða af gáleysi hefur valdið skemmdum á fjarskiptavirkjum eða truflunum á rekstri þeirra. Honum ber að greiða allan kostnað sem af því leiðir, bæði beinan og óbeinan, t.d. viðskiptatap, nema annað verði að samkomulagi. Honum ber einnig að tilkynna Póst- og símamálastofnun um allar skemmdir. Hins vegar er ýmislegt gert til að koma í veg fyrir tjón. T.d. fer Póst- og símamálastofnunin fram á það við framkvæmdaaðila að þeir kanni gaumgæfilega hvort jarðrask á framkvæmdastað geti valdið skemmdum á símastrengjum og er hún ávallt reiðubúin að senda menn á staðinn endurgjaldslaust til að finna og merkja alla strengi sem gætu legið um eða við væntanlegt framkvæmdasvæði.
Sem svar við nr. 2: Fyrri hlutinn fjallar um nauðsyn sérstakrar lagasetningar um merkingar ljósleiðara. Ekki er talið nauðsynlegt að setja ákvæði í lög um merkingar ljósleiðara og er það stutt eftirfarandi rökum: Nú eru í gildi leiðbeiningar um umgengni við símastrengi frá Póst- og símamálastofnun til landeigenda og ábúenda ábýlisjarða. Leiðbeiningarnar, sem eru frá ágúst 1987, fjalla m.a. um merkingar símastrengja. Flestir strengir utan þéttbýlis eru í dag merktir með merkihælum og enn fremur eru til teikningar af legu strengja sem landeigendur og framkvæmdaaðilar fá afrit af. Helsta undantekningin frá þessu er þegar landeigendur hafa óskað eftir því að ekki séu merkihælar á ræktuðu landi, enda er ávallt haft samráð við landeigendur um legu strengja.
Eins og áður segir er Póst- og símamálastofnunin ávallt reiðubúin að senda menn á viðkomandi staði endurgjaldslaust til að finna og merkja sérstaklega alla strengi sem gætu legið um eða í nálægð framkvæmdasvæða. Um síðari hluta spurningarinnar, hugsanlega lagasetningu um takmörkun á ábyrgð tjónvalds og skyldutryggingar, er því til að svara að ekki sýnist ástæða til slíkrar lagasetningar, enda undantekning í íslenskum rétti. Hætta á tjóni á ljósleiðurunum er ekki meiri en annars staðar. Hins vegar er rétt að benda á að menn eiga kost á að tryggja sig gegn slíku og geta því takmarkað áhættu sína á þann hátt.