25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4846 í B-deild Alþingistíðinda. (3332)

233. mál, söluskattur af íslenskum kvikmyndum

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Þegar söluskattsmálin voru hér til meðferðar í vetur, aðallega matarskatturinn, þá fylgdu nokkur önnur atriði og um það sagði í grg. með söluskattsfrv. sem birtist frá fjmrn.: „Þær undanþágur sem verið hafa við lýði en falla nú niður eru þessar ...“ Svo voru þær taldar upp og meðal þessa var aðgangseyrir að sýningum á íslenskum kvikmyndum.

Af þeim ástæðum hef ég borið fram þessa fsp. á þskj. 525:

„Hverju nema áætlaðar söluskattstekjur ríkisins af íslenskum kvikmyndum á árinu 1988?"

En um þessi mál segir í söluskattslögunum í fyrsta lagi að í 6. gr. eru talin upp þau atriði sem undanþegin eru söluskatti. Þar segir, með leyfi forseta: Kvikmyndir, sem keyptar eru eða leigðar til sýninga í kvikmyndahúsum eða sjónvarpsstöðvum, sem leyfi hafa til útvarpsrekstrar. eru allar undanþegnar söluskatti.

Í b-lið 6. gr. segir enn fremur um undanþágur að þar sé undanþegið sala listamanna á eigin verkum, enn fremur sala á einkarétti eða höfundarrétti að uppfinningu eða hugverki. Undanþágan tekur einungis til sölu höfundar á hugverkinu.

Á það hefur verið bent að samkvæmt þessu undanþáguákvæði sé ekki hægt að innheimta söluskatt af kvikmyndum þegar kvikmyndagerðarmenn eru sjálfir í miðasölunni að selja miða á viðkomandi bíómynd. Því er spurt: Hve mikið innheimtist samkvæmt áætlun af íslenskum kvikmyndum í ár og hvernig á að haga innheimtunni?