25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4849 í B-deild Alþingistíðinda. (3338)

234. mál, söluskattur af heilsurækt

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin. Í b-lið 6. gr. laga um söluskatt segir svo í tölul. 9 að undanþegið sé frá söluskatti: lækningar, þar með taldar ljós- og nuddlækningar. Og í tölul. 14. stendur: „Aðgangseyrir að íþróttasýningum, íþróttamótum, sundstöðum og skíðalyftum er undanþeginn söluskatti.“

Ég sé ekki betur en ef það gerðist sem spurst hefur og sagt hefur verið frá í blaðafréttum að einstaklingar hyggist stofna íþróttafélög um heilsuræktarstarfsemi af ýmsu tagi, þa geti fjmrh. ekki innheimt söluskattinn. Og það verður einkar fróðlegt líka fyrir hann að undanþiggja meðferð á ljósa- og nuddlækningastofum söluskatti og greina hana frá almennri meðferð af því tagi sem ekki er samkvæmt læknisráði. Það verður fróðlegt þegar embættismenn fjmrh. fara inn á ljósastofurnar og nuddstofurnar að skoða og tékka: Er verið að nudda þig samkvæmt læknisráði? Er verið að lýsa þig samkvæmt læknisráði? Eða er þetta einkaframtak? Baðstu um það sjálfur án ráðleggingar frá lækni að þú yrðir nuddaður eða upplýstur? Ef hvort tveggja er án læknisráðs þá rukkar fjmrh. Ef menn aftur á móti sýna tilvísun frá sérfræðingi eða lækni þá eru þeir ekki rukkaðir. Og þetta er hið einfalda, skilvirka, pottþétta 100%-söluskattskerfi, ergo óframkvæmanlegt, herra forseti.