25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4856 í B-deild Alþingistíðinda. (3352)
280. mál, rannsóknarnefnd umferðarslysa
Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):
Hæstv. forseti. 19. mars 1987 voru samþykkt ný umferðarlög sem taka gildi 1. mars nk. eða eftir fimm daga. Ýmis nýmæli er að finna í þessum lögum sem miða að því að auka umferðaröryggi og fækka slysum. Eitt af þeim nýmælum er að finna í 114. gr. laganna og varðar starfsemi Umferðarráðs. Í síðustu mgr. þessarar greinar segir, með leyfi hæstv. forseta:
"Dómsmrh. getur skipað sérstaka rannsóknarnefnd umferðarslysa fimm mönnum með sérfræði- og tækniþekkingu sem varðar slysalækningar, umferðarskipulag, bifreiðaeftirlit, löggæslu og tryggingamál. Umferðarráð skal hafa eftirlit með störfum nefndarinnar.“
Það hefur margsinnis komið fram hjá þeim sem afskipti hafa af umferðarslysum, ekki síst læknum sem taka við þeim sem slasast í umferðinni ásamt landlækni, hversu þýðingarmikið er að slík rannsóknarnefnd sé til vegna umferðarslysanna, sambærilegt við rannsóknarnefndir flugslysa og sjóslysa sem eru taldar sjálfsagður þáttur í öryggismálum.
Varðandi umferðarslysin hefur verið bent á að þegar alvarleg umferðarslys verða þurfi að liggja fyrir upplýsingar t.d. um hverjir verða fyrir þessum slysum, hvenær þau verða, við hvers konar aðstæður, hvar, hvers vegna, hvernig og hverjar urðu afleiðingar slyssins fyrir einstaklinginn og fyrir þjóðfélagið.
Umferðarslys eru heilbrigðisvandamál þó að þessi málaflokkur heyri undir dómsmálayfirvöld því að óhöpp í umferðinni leiða því miður oft til alvarlegra slysa og jafnvel dauða eins og dæmi um hörmuleg slys að undanförnu staðfesta. Til þess að hægt sé að vinna markvisst að fyrirbyggjandi aðgerðum og koma í veg fyrir umferðarslys er nauðsynlegt að áreiðanlegar og ítarlegar upplýsingar um sem flesta þætti umferðarmála liggi fyrir í aðgengilegu formi. Þess vegna hef ég leyft mér, herra forseti, að bera fram fsp. til hæstv. dómsmrh., sem er að finna á þskj. 580, um það hvort hann hyggst skipa slíka rannsóknarnefnd skv. 114. gr. nýrra umferðarlaga.