25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4879 í B-deild Alþingistíðinda. (3386)
259. mál, fiskvinnsluskólar
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson hefur hreyft ágætu máli sem við þm. á Norðurlandi vestra höfum oft vakið máls á. Ég var einmitt með fsp. um þetta mál fyrir tveimur árum og þetta hefur verið kappsmál okkar lengi.
Hv. þm. gat þess að ég hefði á sínum tíma setið í ráðherrastól og þá hefði uppbygging fiskiðnskólans í Hafnarfirði verið á döfinni. Það er rétt að þegar ég kom í menntmrn. hafði þegar verið ákveðið af Alþingi að fiskiðnskóli fyrir allt landið skyldi rísa þar. Þó var hann ekki kominn á fót og ekki búinn að eignast eigið húsnæði þegar ég var þar í ráðuneytinu. Að sjálfsögðu var brýnt á þeim tíma að tryggja tilvist þessa eina skóla sem Alþingi hafði þá ákveðið að þar yrði settur á stofn. Hins vegar höfum við alla tíð haft auga með því að skóli af þessu tagi rísi á Norðurlandi og ég tek mjög eindregið undir ábendingar hv. þm. í þeim efnum. Það hefur lengi verið kappsmál mitt.