29.02.1988
Sameinað þing: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5097 í B-deild Alþingistíðinda. (3451)
107. mál, lýsing á Suðurlandsvegi um Hellisheiði
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Það kom mjög skýrt fram hér í máli hv. 1. þm. Norðurl. v. að sú könnun, sem þessi till. gerir ráð fyrir að fram fari, hefur þegar farið fram og liggur fyrir. Og ég spyr: Ætlar hið háa Alþingi að fara að samþykkja að láta gera könnun sem þegar er búið að gera? Ég held að það væri mjög óskynsamlegt og út í hött.
Í öðru lagi segir hinn efnisliður þessarar till.: „Jafnframt verði leitað leiða til framkvæmda við verkið.“ Ég er ekki tilbúinn til að ákveða það hér og nú að þessi vegur eigi að hafa einhvern sérstakan forgang að því er þetta varðar. Ég held að það mál þurfi að skoða í miklu stærra samhengi og líta til miklu fleiri staða eins og hér hefur verið bent á. Þess vegna held ég að það sé ekki rétt að samþykkja þessa till. á þessu stigi.
Varðandi ummæli hv. 13. þm. Reykv. Guðrúnar Helgadóttur um að þetta mál hafi ekki verið kynnt í þingflokkum, má það vel vera rétt, en hins vegar er hér kannski um að ræða eina af þeim till. sem ekki eru ævinlega kynntar í þingflokkum og ekki er mótuð flokksstefna um það hvernig menn greiða þar um atkvæði þegar mál koma hér til atkvæða. Það má rétt vera að kannski hefðu nefndarmenn átt að segja frá þessu í þingflokkunum. En ég vek athygli á því að Alþingi getur ekki samþykkt þessa till. eins og hún liggur nú hér fyrir vegna þess að sú könnun, sem þar er gert ráð fyrir að verði látin fram fara, hefur þegar farið fram og liggur fyrir. Svo einfalt er það.