29.02.1988
Sameinað þing: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5098 í B-deild Alþingistíðinda. (3454)

107. mál, lýsing á Suðurlandsvegi um Hellisheiði

Guðni Ágústsson:

Herra forseti. Ég hefði nú getað sparað mér þessi spor því hv. þm. Albert Guðmundsson sagði kannski það í sínu máli hér áðan sem segja þarf.

Mér finnst að þm. hrökkvi hér við og vilji leggjast gegn þessu máli. Ég tek undir það að hér er ekki verið að ákveða neitt. Það er nú svo að í hverju máli erum við alltaf að stíga ný og ný skref til framtíðarinnar. Þetta er eitt skref. Mér dettur ekki í hug að heiðar Íslands verði í stórum stíl lýstar upp. En ein er sú heiði sem er fjölfarnari en aðrar, 2800 bílar að meðaltali dag hvern fara yfir Hellisheiði, háan fjallveg með sérstöku veðurfari, slysaleið. Ég hygg að flestir sem hér eru hafi farið um þennan veg. Hann er fjölfarinn af stærstum hluta þjóðarinnar. Það er ekki bara vegna þess að Sunnlendingar fari um veginn heldur sækja þéttbýlisbúar héðan austur í sumarlandið og dvelja þar einnig yfir veturinn í vaxandi mæli í fríum og þess vegna er þessi vegur svo fjölfarinn sem raun ber vitni. 2800 bílar að meðaltali, dimm þoka og veðrabrigði á þessari leið. Rafmagnið er nú framleitt einu sinni hjá okkur þarna fyrir austan.

Það kann að vera að þessi till. sem hér er sett á blað og byrjað að hugsa um, eitt nýtt skref til framtíðarinnar, verði ekki að veruleika fyrr en ég og hv. 1. flm. höfum gránað enn meira um kollinn. En þó hygg ég að hún muni nú einhvern tímann líta dagsins ljós. Ég tek undir það að ég bið menn að skoða þessa till. með velvilja í ljósi þeirrar umferðar sem um heiðina er af svo stórum hluta þjóðarinnar, af svo stórum hluta allra þeirra ferðamanna sem til þessa lands koma, í ljósi þess hversu þessi heiði er stutt en há og hættuleg.

Þess vegna bið ég menn um það að þó Vegagerðin hafi gert þarna lauslega kostnaðaráætlun þá þarf að taka þetta verk út, móta það til framtíðarinnar, því auðvitað er það svo að þegar þetta skref verður stigið, farið að lýsa fyrir utan þéttbýlið, þá verður Hellisheiði þar fyrst á dagskrá, það er enginn vafi í mínum huga. Þess vegna mæli ég með því að ríkisstjórnin láti „plana“ það verk sem hér er hugsað og sett í tillöguform.