29.02.1988
Sameinað þing: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5123 í B-deild Alþingistíðinda. (3469)
Tilkynning frá ríkisstjórninni
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Það er út af fyrir sig til fyrirmyndar að Alþingi fái nú fréttirnar um leið og fjölmiðlar því það hefur því miður allt of oft komið fyrir að alþm. hafa þurft að lesa um slíkt sem hér er á ferðinni í blöðum eða heyra það í útvarpi eða sjónvarpi. Hins vegar ber þessa umræðu ansi brátt að og ég ætla mér ekki þá dul að geta fjallað ítarlega um þær upplýsingar sem hér liggja fyrir eftir þá afar lauslegu skoðun sem mér hefur gefist á þessu. Ég vil reyndar lýsa óánægju minni með að okkur þm. stjórnarandstöðu skyldi ekki gefast kostur á betri tíma til að gaumgæfa þessi mál áður en við tjáum okkur um þau hér. Ég hefði sannarlega viljað fá ráðrúm til að skoða þessar tillögur og átta mig betur á þeim og kynna þær í okkar hópi og fá viðbrögð þar. En til þess hefur vitaskuld ekki gefist neinn tími.
Raunar er ekki margt nýtt í þessum ráðstöfunum því svo mjög hefur verið fjallað um þessar ráðstafanir nú þegar í fjölmiðlum að þær eru orðnar býsna kunnugar má kannski segja. En það má líka segja að þessi ríkisstjórn er mikil ráðstafanaríkisstjórn. Hún hefur verið að gera svokallaðar ráðstafanir í efnahagsmálum nánast allt frá eigin fæðingu og svo böksulega gengur henni að rata á réttu ráðstafanirnar að þær ráðstafanir, sem hún gerir hér, eru að stórum hluta að taka til baka fyrri ráðstafanir. Svo er t.d. um endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts, en eitt af því sem mönnum datt fyrst í hug til að rétta af ríkissjóðshallann á sl. sumri var einmitt að hætta við endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts í sjávarútvegi, enda sýndist sá kostur mögulegur með tilliti til góðrar stöðu í flestum greinum sjávarútvegs á fyrri hluta síðasta árs. En það er auðvitað til marks um hve skjótt skipast veður í lofti í þeim greinum að það var ljóst þegar síðsumars eða á haustmánuðum að hagur flestra greina fiskvinnslunnar fór mjög versnandi og mundi ekki þola að uppsöfnuðum söluskatti yrði haldið eftir. Stjórnarherrar kusu þó að berja höfðinu við steininn og lágu á uppsöfnuðum söluskatti eins og ormar á gulli, þ.e. uppsöfnuðum söluskatti síðasta árs, og hafa aðeins nýlega fallist á að endurgreiða hann. Í fjárlögum þessa árs er ætlunin að greiða aðeins hluta af áætluðum uppsöfnuðum söluskatti þessa árs. Nú hafa menn hins vegar beygt sig fyrir staðreyndum og fyrsti punkturinn í þessum ráðstöfunum að frátaldri gengisfellingu að sjálfsögðu, sem reyndar er aðeins viðurkenning á ástandi sem þegar er orðið eins og reyndar margt annað í þessum ráðstöfunum, er sem sagt um það að uppsafnaður söluskattur verði endurgreiddur að fuliu. Það er vitanlega nauðsynleg ráðstöfun. Næsti punktur er svo niðurfelling launaskatts í sjávarútvegi og samkeppnisgreinum iðnaðarins frá 1. júlí nk. Það er notað til marks um þroska að segja aldrei „þetta sagði ég“, en það verður að hafa það, ég held ég segi það samt: Þetta sagði ég og þetta sögðu mjög margir. Um þennan launaskatt fjölluðum við í kringum hátíðarnar og þá sögðum við kvennalistakonur að enda þótt það væri góð og gild stefna að mismuna ekki atvinnugreinum og að skapa atvinnugreinunum sem jöfnust skilyrði m.a. hvað skattlagningu varðar yrði að taka tillit til aðstæðna. Það var okkar mat að nú væru alls ekki þær aðstæður í sjávarútvegi og ýmsum greinum iðnaðar að fiskvinnslugreinarnar og samkeppnisgreinar iðnaðarins gætu borið launaskatt. Auk þess legðist hann þyngst á atvinnulífið á landsbyggðinni og væri því í raun réttnefndur dreifbýlisskattur. En stjórnarherrarnir hlustuðu ekki á þau rök frekar en önnur og skatturinn var lögfestur. Nú er hann tekinn til baka eins og svo margt annað sem ráðherrar gera í fljótfærni sinni og hugsunarleysi.
Fleiri dæmi mætti nefna um slíka tiltekt, t.d. stendur hér að Seðlabankinn beiti sér einnig fyrir því að umsjónar- og eftirlitsgjald vegna afurðalana verði lækkað í fyrra horf hjá þeim bönkum sem hækkuðu gjaldið árið 1987. Hér er því enn verið að taka aftur ráðstöfun sem einhvern tíma hefur þótt heillaráð.
Ég ætla ekki að fara í öll þessi atriði. En það er t. d. talað hér um að olíuverð lækki 1. mars með hliðsjón af stöðu innkaupajöfnunarreiknings, verði birgða og horfum um þróun olíuverðs á alþjóðamarkaði. Það er ágætt, en minnir okkur kannski á að alltaf þegar olíuverð hækkar er það vegna markaðsmála erlendis og ekkert við því að gera rétt eins og það séu náttúruhamfarir. Nú er hægt að lækka og segir það sína sögu. Hins vegar sakna ég þess að ekki er fjallað um aðra orku en olíuna. Það er ekki staður né stund til spurninga hér, en ég leyfi mér þó að spyrja hvort ekki hafi komið til greina að lækka aðra kostnaðarliði svo sem vegna raforku. Því hefur oft verið haldið fram að íslensk fiskvinnsla þyrfti að greiða margfalt raforkuverð á við t.d. nágrannalöndin, en um það verður væntanlega fjallað nánar þegar þessar ráðstafanir liggja fyrir á þingskjölum.
Í kafla um bætt starfsskilyrði launafólks eru þar atriði sem eru góð og gegn en kosta væntanlega nokkurt fé og breytingu á útgjaldahlið ríkissjóðs sem greinilega er ekkert vitað um eins og reyndar marga útgjaldaliði þessara ráðstafana.
Sama má segja um aðgerðir til að hamla gegn við skiptahalla og erlendri skuldasöfnun. Þar er margt opið og óljóst og vekur spurningar. Það á að lækka ríkisútgjöld, m.a. útgjöld til vegamála. Hvað hefur það í för með sér? Það sjáum við ekki af þessu. Við sjáum ekki hvaða framkvæmdir það eru sem verða skornar niður eða hvernig á að standa að því sem að sjálfsögðu er heldur ekki von.
Það á að lækka framlög í byggingarsjóði ríkisins. Ég hélt reyndar að það væri hreinlega búið að ráðstafa þessu fé - eða hvar mun þessi niðurskurður koma niður? Við því fást vonandi svör fyrr en síðar en mig undrar ekki að hæstv. félmrh. er ekki við þessa umræðu.
Síðan eru hér áform um að frv. um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga verði ýtt til hliðar og ekki harma ég það. Við höfum talað gegn því frv. þar sem okkur þótti það illa undirbúið. En hér er þá enn ein ráðstöfunin af hendi hæstv. ríkisstjórnar sem er tekin til baka. Vonandi nota ráðherrar þá tækifærið og ráðrúmið sem gefst til að íhuga það mál betur og undirbúa á þann veg að þessar breytingar verði til bóta og í fullu samráði við sveitarstjórnarmenn. En heldur leggst nú lítið fyrir kappana að kippa þeirri fjárupphæð til sín sem þarna var um að ræða svo að segja formálalaust og segja fagnandi: Við það styrkist fjárhagur ríkissjóðs um 250 millj. kr. Sem sagt gott.
Það á enn fremur að beina því til sveitarfélaga og annarra framkvæmdaaðila að draga úr framkvæmdum. Úr því að það er verið að ganga á þeirra ráðstöfunarfé geta sveitarfélögin sjálfsagt orðið við því, en ætli borgarstjórinn í Reykjavík sé ekki helst aflögufær í þeim efnum hvernig sem hæstv. ráðherrum gengur að ráða við hann.
Ég held ég hafi ekki fleiri orð um þessar ráðstafanir og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, enda allt galopið og óljóst, svo sem aðgerðir í vaxtamálum sem hér eru boðaðar, en um það verður nánar fjallað þegar þetta kemur allt fram á þingskjölum.
Ég vil aðeins að lokum segja að enn fær launafólk sendingu frá hæstv. ríkisstjórn. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er vitnað til þeirra samninga sem þegar hafa verið gerðir en reyndar ósamþykktir enn nema á Vestfjörðum og sagt að sú stefna sem þar er mörkuð sé forsenda þess að þessar ráðstafanir haldi og að sjálfsögðu gefið í skyn að ef menn haldi sig ekki á sömu nótum í öðrum samningum sé allt í voða. M.ö.o.: enn er stefnan og ábyrgðin lögð á herðar launafólks. Hæstv. ríkisstjórn treystir sér ekki til að axla þá ábyrgð, enda kann hún fá ráð önnur en að kyngja þeim ráðum sem henni fundust eitt sinn vænleg.