01.03.1988
Efri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5128 í B-deild Alþingistíðinda. (3480)

Framvinda þingfundar

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ekki efumst við alþýðuflokksmenn um gott innræti hv. þm. Svavars Gestssonar í okkar garð. Ég vil hins vegar vekja athygli á því að hér er engin nýlunda á ferð. Það er að vísu ekki oft sem háttar svo til sem hér gerir núna, en ég hygg að þess muni býsna mörg dæmi í önnum á Alþingi að svipað hafi verið staðið að. Mér finnst það fullkomlega eðlilegt að þó svo máli, sem átti að vera komið hingað, hafi seinkað um einhverjar mínútur úr prentsmiðju, þá sé fundi frestað í stundarfjórðung eða svo. Raunar kann nú að vera að þess þurfi ekki með því að vera má að verið sé að útbýta þessu frv. nú þessar mínúturnar. En allt tal hv. 7. þm. Reykv. Svavars Gestssonar um eitthvert sérstakt brautryðjendastarf og einhverja sérstaka nýlundu hér í þingstörfum er auðvitað gjörsamlega út í hött. Hér er ekkert nýtt á ferðinni. Þetta eru auðvitað ekki hin venjulegu vinnubrögð hér, en ég vek athygli á því að þetta hefur gerst áður og það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að ég hygg og það hygg ég að hv. þm. viti líka mætavel sjálfur enda þótt hann kjósi að vekja athygli á sér og sínum flokki með þeim málflutningi sem hann hefur nú haft hér uppi.