01.03.1988
Efri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5160 í B-deild Alþingistíðinda. (3488)
317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Iðnaðarráðherra (Friðrik Sophusson):
Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. hefur gert grein fyrir því frv. sem hér er til umræðu. Mig langaði til að segja nokkur orð um örfáa þætti þessa frv. og um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur nú gripið til.
Með þessum aðgerðum er tekið á tveimur mjög brýnum vandamálum, sem reyndar eru samofin, annars vegar rekstrarvanda útflutningsgreinanna og hins vegar því jafnvægisleysi í þjóðarbúskapnum sem lýsir sér í mikilli þenslu. Þessar aðgerðir fela m.a. í sér að skattar eru lækkaðir af útflutningsgreinunum um 800 millj. kr. Annars vegar er hér um að ræða endurgreiðslu söluskatts til fiskveiða og fiskvinnslu og hins vegar niðurfellingu launaskatts frá miðju yfirstandandi ári. Nettóskattalækkun í þessu frv. og með aðgerðum ríkisstjórnarinnar eru 500 millj. kr. því að gert er ráð fyrir að tekjuskattar fyrirtækja breytist og skatthlutfall hækki úr 45% í 48% sem á að gefa ríkissjóði 130 millj. kr. Hins vegar er gert ráð fyrir lántökugjaldi vegna lána sem fyrirtæki taka erlendis og það er tvöfaldað og áætlaðar tekjur ríkisins af því nema 160 millj. kr. Þessi skattastefna, sem birtist í þessum aðgerðum, er eins konar undirbúningur undir virðisaukaskattinn og verður að skoðast í ljósi þess að hér er um að ræða tilfærslu í sköttum fyrirtækja. Horfið er frá að verulegum hluta svokölluðum veltusköttum en í staðinn koma tekjuskattar, en það er sú stefna sem ríkisstjórnin hyggst fylgja í þeim málum.
Þá er einnig dregið úr þenslunni með þeim aðgerðum sem birtast í frv. Það gerist annars vegar með niðurskurði ríkisútgjalda að upphæð 300 millj. kr. og hins vegar með því að falla frá erlendum lántökum ýmissa aðila, aðallega fjárfestingarlánasjóða og Landsvirkjunar, en það nemur 300 millj. kr. Með þessum samdrætti í opinberum rekstri, ríkisrekstrinum, er verið að skapa skilyrði til þess að ríkisvaldið geti rætt við sveitarstjórnir um samdrátt framkvæmda á þeirra vegum, en eins og kemur fram í þessu frv. sem hér er til umræðu er jafnframt horfið frá þeim fyrirhuguðu aðgerðum að breyta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, enda reyndist ekki samkomulag hjá stjórnarflokkunum um það mál.
Eins og greinilega kom fram hjá hæstv. fjmrh. hlýtur það ævinlega að vera ákaflega erfitt fyrir þá sem fara með stjórn efnahagsmálanna í þessu þjóðfélagi sem og öðrum þegar aðlaga þarf efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar að breyttum og lakari skilyrðum. Þetta hefur þurft að gera áður, en undantekningarlaust hefur það gerst með þeim hætti að verðbólgan hefur farið á flugstig og er þá hægt að minnast áranna 1982 og 1983 svo ég rifji upp ártöl sem hv. síðasti ræðumaður hlýtur að muna og þekkja, því að þá sat hann sjálfur í ríkisstjórn hér á landi, en á síðasta tímabili þeirrar ríkisstjórnar fór verðbólgan vel yfir 100% þegar mælingar voru gerðar á síðasta þriggja mánaða tímabilinu. Sú ríkisstjórn sem hv. síðasti ræðumaður átti aðild að þurfti enn fremur að grípa til ýmissa aðgerða sem snertu launakjörin í landinu. Auðvitað var það ekki gert af illgirni þegar hv. 7. þm. Reykv., sem sat í þeirri stjórn, greip a.m.k. 13 ef ekki 14 sinnum til þess að nota lög, á grundvelli stjfrv., til þess að skerða laun launamanna í landinu. Þetta þarf að rifja upp fyrir hv. síðasta ræðumanni því að hann virðist hafa gleymt því hvernig þá var staðið að málum. Það sem ég er að segja með þessum orðum er að annars vegar er hægt að grípa til aðgerða á borð við þær sem hér er gert eða að gefast upp og nota verðbólguna til þess að skerða launin. En eins og ég hélt satt að segja að hv. síðasti ræðumaður vissi betur en flestir aðrir þá er verðbólgan versti óvinur þeirra sem minnst bera úr býtum og verst eru settir í þjóðfélaginu.
Það er kannski ekki úr vegi enn einu sinni að rifja það upp fyrir hv. síðasta ræðumanni að þegar hann sat í ríkisstjórn og ákvað með tveggja mánaða fyrirvara um áramótin 1980–1981 að skerða laun frá og með 1. mars 1981 með brbl., þá var einn aðalrökstuðningurinn þessi: Með því að skerða laun um 7% og hætta þannig við að greiða út verðbætur á laun, þá græddi launafólkið 2% vegna þess - og það er best að ég lesi þetta orðrétt úr blaði hv. ræðumanns, Þjóðviljanum. Þetta er leiðari blaðsins frá 6. jan. 1981 og ber yfirskriftina „Slétt skipti — góð skipti“, en það var heiti sem kom fram í áramótagrein hv. síðasta ræðumanns þegar hann var ráðherra í þessari ríkisstjórn og sá sem hefur eftir honum í þessum leiðara segir: „Hvernig á að tryggja kaupmáttinn á árinu 1981?" (SvG: Er það ekki Kjartan?) Það er Kjartan sem skrifar leiðarann, en hann skrifar leiðarann eftir áramótagrein þáv. formanns Alþb. sem þá sat í ríkisstjórn og er sá hinn sami sem síðast talaði hér úr þessum ræðustól. - Hann spurði: „Hvernig á að tryggja kaupmáttinn á árinu 1981?" Og eins og allir þingdeildarmenn heyrðu sem hlýddu á mál hv. síðasta ræðumanns, þá hafði hann miklar áhyggjur af kaupmættinum. Þessu er svarað í þessum ágæta leiðara með þeim hætti að „með því að koma verðbólgunni úr um 70%, sem fram undan var, og niður fyrir 50% á árinu 1981, þá felur slíkur árangur einn sér í sér 2% hærri meðalkaupmátt yfir árið en ella vegna þess að kaupmáttarskerðingin meðan menn bíða eftir næstu verðbótum verður minni sé verðbólgan minni.“ Og síðan er sagt í þessum leiðara: „Hér er því um a.m.k. slétt skipti að ræða fyrir almennt launafólk í landinu hvað kaupmáttinn varðar," og klykkt er út - og ég tek eftir að hv. síðasti ræðumaður gengur úr þingsal þegar rifjað er upp fyrir honum hvað hann sjálfur hefur sagt í Þjóðviljanum. (Gripið fram í: Er það von?) Nei, það er ekki nema von. - er klykkt út: „Auðvitað er aldrei neitt gamanmál að hrófla við kjarasamningum, en krafan um samningana í gildi á því aðeins við að uppfylling þeirrar kröfu færi verkafólki betri kjör.“
M.ö.o.: Það á að ganga á kjarasamninga. Það má beita lögum þegar stjórnarherranum finnst að það sé hægt að tryggja kjörin betur með öðrum hætti.
Þetta hef ég rifjað upp, hæstv. forseti, til þess að benda á þann tvískinnung sem kemur fram í máli hv. síðasta ræðumanns þegar hann nú ræðst á ríkisstjórnina fyrir það að beita aðgerðum sem byggjast samt sem áður á frjálsum kjarasamningum og ganga út á það að ná niður verðbólgunni einmitt, eins og stóð í Þjóðviljanum 6. jan. 1981, til þess að tryggja betur kaupmátt launa. Þetta vil ég, hæstv. forseti, að komi hér fram því að þetta setur ræðu hv. þm. kannski í nýtt ljós. Og það er athyglisvert, hæstv. forseti, að þessi hv. ræðumaður, sem gerði kröfu til þess að hér sæti öll ríkisstjórnin og hlýddi á mál hans, hefur nú horfið úr þingsölum og finnst ekki taka því að hlýða á þau svör sem hann hefur þó beðið um. Ég er ekki að óska eftir nærveru hans hér. Ég held nefnilega að það skipti ekki nokkru máli hvort talað er við hann eða ekki. Það kemst ekkert meira inn í hausinn á honum en þegar er komið og hann heldur áfram með sínar röngu fullyrðingar hversu oft sem reynt er að renna ofan í kokið á honum sannleika í þessu máli sem og öðrum.
Það er alveg hárrétt sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni að kaupmáttur mun dragast saman á yfirstandandi ári og það er gert ráð fyrir því að kaupmáttur verði 3–4% minni á þessu ári en á síðasta ári. En þetta verður að skoða með tilliti til þess að á undanförnum tveimur árum hefur kaupmátturinn vaxið um 28–30% og það er talsvert meira en þjóðartekjurnar hafa vaxið eins og kom greinilega fram í ræðu hæstv. fjmrh. Og það er alveg ljóst að slík þróun á milli kaupmáttar launanna og þjóðarteknanna, þetta hlutfall getur ekki gengið um langan aldur.
Hv. síðasti ræðumaður, sem kýs að hlusta ekki á þau svör sem hann bað um, minntist á vexti og spurðist fyrir um þann kafla í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem fjallar um vexti. Ég vil benda á að þegar áhrifin koma fram af þeim aðgerðum, sem hér er verið að efna til með því frv. sem hér er til umræðu, er tímabært að endurskoða raunvexti á spariskírteinum ríkissjóðs og slíkt hlýtur að hafa áhrif á raunvaxtastigið í landinu. Þannig ber að skilja þennan kafla í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Hæstv. forseti. Það er full ástæða til þess að viðurkenna að viðskiptahallinn er of mikill. Í raun veit enginn nákvæmlega hve mikill hann verður á þessu ári. Í vinnuskjali Þjóðhagsstofnunar kemur fram að þar er talið að viðskiptahallinn muni verða liðlega 10 milljarðar á þessu ári, en sú spá er talin allsvartsýn. Aðrir, sem um þetta mál hafa fjallað, telja að viðskiptahallinn verði heldur minni. Það ber að viðurkenna að þessi staða er ekki góð og jafnframt að með þessu eru gerðar talsverðar kröfur til útflutningsfyrirtækjanna um það að þau standi sig betur en þau hafa gert. Það verði hagrætt í fyrirtækjunum og þau endurskipulögð fjárhagslega. En þá má spyrja: Hvers vegna var ekki efnt til meiri gengisfellingar? - Ég fagna því að hv. síðasti ræðumaður kemur hér í salinn og telur ástæðu til þess, kannski fyrir kurteisis sakir eða einhverjar aðrar, að hlýða a.m.k. á tíunda hluta þeirrar ræðu sem hér er flutt, en hann hefur sem kunnugt er, hæstv. forseti, gert kröfu til þess að a.m.k. hálf ríkisstjórnin hlýði á hans mál en bregður sér svo strax úr þingsal er hann hefur lokið sér af. (SvG: Má ég fara í tvær mínútur, hæstv. ráðherra?) Ég gef hv. þm. leyfi til þess að gera nákvæmlega það sem lund hans liggur til. (SvG: Vér kvökum og þökkum.) Það er ekkert að þakka, hv. þm. - Ástæðan fyrir því að ekki var efnt til meiri gengisfellingar var ósköp einfaldlega sú að það var mat ríkisstjórnarinnar að sú gengisfelling hefði hreyft við ýmsum stærðum í þjóðfélaginu með þeim hætti að um kollsteypu gæti orðið að ræða. Við vonumst vissulega til þess að ekki þurfi að koma til hækkunar á fiskverði í kjölfar þessara ráðstafana, en við vitum að ef um meiri gengisfellingu hefði verið að ræða hefði orðið talsverð hætta á því að fiskverð hefði hækkað og þar af leiðandi rekstrarafkoma frystihúsanna orðið lakari. Það aftur kallað á ný gengislækkunartilefni og síðan koll af kolli. Þá hringekju þekkjum við öll.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég hafði hugsað mér að eiga hér orðastað við hv. síðasta ræðumann, en hann kýs að fara í felur, en er nú kominn hér í salinn. Ég vil aðeins beina því til hans - ég ætla ekki að endurtaka það sem ég hef sagt um hans ræðu hér áður, hann kaus að fara hér úr þingsal þegar ég byrjaði að lesa úr hans eigin verkum og telur það erfitt fyrir sig að þurfa að hlýða á þann boðskap sem hann boðaði þegar hann sat í ríkisstjórn á sínum tíma. (SvG: Var það ekki 6. jan. 1981?) Það var 6. jan. 1981. (SvG: Já, ég man þetta alveg.) Það er gott að minni hv. þm. er ekki farið að bresta né kölkun komin fram. (SvG: Þetta var leiðari eftir Kjartan, var það ekki rétt?) Þetta var leiðari sem Kjartan, þáv. ritstjóri Þjóðviljans, skrifaði eftir áramótaræðu fyrrv. formanns Alþb. (SvG: Þú meinar áramótagrein?) Það var áramótagrein, já. Það er gott að fá viðurkenningu á því að rétt er farið með allt sem ég hef sagt fyrr í minni ræðu um þetta atriði.
Það sem skiptir máli, hæstv. forseti, er að með þessum ráðstöfunum er gerð tilraun til þess að komast út úr þeim vanda sem við er að etja án þess að magna verðbólguna í landinu. Auðvitað getur menn greint á um leiðir, en ríkisstjórnin hefur komið sér saman um þessar ráðstafanir og sá málflutningur sem uppi var hafður af hv. síðasta ræðumanni er ekki beysinn þegar hann annars vegar segir: Það er ekki nóg að gert, það verður að fella gengið síðar á bessu ári, og hins vegar, þegar fjallað er síðan um þær aðgerðir sem grípa á til, er sagt: Það má ekki gera svona mikið, það bitnar á einhverjum, það bitnar á húsnæðismálunum, það bitnar á vegamálunum, það bitnar á hinum sjúku o.s.frv. Sé þessi málflutningur skoðaður í þessu ljósi stendur auðvitað ekki steinn yfir steini í slíkum málflutningi. Það er athygli vert að hv. síðasti ræðumaður sagði svo: Ég hef orðið var við það að fjármagnskostnaður fyrirtækjanna hefur stórkostlega hækkað, og síðan sagði hann: Ég styð að lántökugjaldið skuli tvöfaldast. Það var eini stuðningurinn. Eina atriðið sem stuðningur kom fram við hjá hv. síðasta ræðumanni var að auka fjármagnskostnaðinn.
Ég vil aðeins segja hv. síðasta ræðumanni það að fjármagnskostnaður fyrirtækjanna hlýtur að vaxa þegar taprekstur verður. Á meðan fyrirtæki ganga eðlilega, sérstaklega í útflutningsgreinum sem njóta þess að geta tekið afurðalán, er fjármagnskostnaður alls ekki óeðlilega hár, en auðvitað gerist það að þegar um taprekstur er að ræða og stjórnendur fyrirtækjanna verða að ganga á fund bankastjóra og slá lán til skamms tíma vex fjármagnskostnaðurinn. Þetta hélt ég að hv. síðasti ræðumaður skildi. Á þetta vil ég benda og þykir nokkuð sérkennilegt að á sama tíma og hann kvartar fyrir hönd Sambands ísl. samvinnufélaga um of háan fjármagnskostnað er það eina aðgerðin sem hann lýsti yfir stuðningi við og sagðist mundi greiða atkvæði með og ég er vissulega þakklátur fyrir það. Það er sú aðgerð sem kemur til með að hækka lántökukostnað og þar með fjármagnskostnað þeirra fyrirtækja sem þurfa að taka lán erlendis.
Hæstv. forseti. Ég hef lokið máli mínu.