01.03.1988
Neðri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5225 í B-deild Alþingistíðinda. (3504)

301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Kristín Einarsdóttir:

Herra forseti. Enn einu sinni erum við að ræða húsnæðismál hér á þinginu og enn á að breyta lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins sem þó eru ekki eldri en frá því í september 1986. Þegar breytingar voru gerðar á húsnæðislögunum árið 1986 var einungis tekið til við það íbúðaform sem fjallaði um eignaríbúðir. Félagslega íbúðakerfið og leiguíbúðalán og fleira var algerlega skilið eftir, en þó var talað um að endurskoðað yrði milli þinga. En ekki náðist samkomulag um að það yrði gert. Það voru þáverandi ríkisstjórnarflokkar sem ég vil nánast segja sviku að tekið yrði á þeim málum. Þetta frv. er kannski að einhverju leyti hluti af því máli, sem þar var talað um, að líta að einhverju leyti á félagslega íbúðalánakerfið og leiguíbúðakerfið. Þó að ég telji ekki að það sé rétt að taka einn hlutann út úr og líta eingöngu á það sem hér er til umræðu lít ég samt svo á að þetta sé að mörgu leyti jákvætt.

Í athugasemd við frv. stendur að markmiðið sé að ryðja braut nýjum valkostum í húsnæðismálum. Má vel vera að það sé mjög nauðsynlegt að gera það núna. Ef Litið er á kerfið út frá einstaklingnum hefur það marga kosti. Þó ég hafi kannski ekki ætlað að blanda mér á neinn hátt í þær dellur sem upp virðast komnar á milli stjórnarflokkanna varðandi þetta mál get ég nú samt ekki stillt mig um að segja að þó það sé alls ekki verið að ásaka einn eða annan finnst mér frv. líka mjög flókið. Það má vel vera að það sé nauðsynlegt og ég er ekki þar með að segja að það þurfi ekki að vera flókið, en það er ákaflega flókið og erfitt að skilja. Það tók mig langan tíma að skilja hvernig kerfið væri upp byggt. Það má vel vera að sumt af því sem ég kem til með að ræða um sé vegna þess að ég hafi ekki áttað mig á öllum endum sem mér finnst margir vera lausir þegar frv. er lesið. Ég get á vissan hátt skilið ummæli hv. þm. Páls Péturssonar um að þetta væri flókið þó ég viti ekki hvort hann hafi meint endilega að það væri hægt að gera það miklu einfaldara. Ég skal ekkert um það dæma.

En ef maður lítur á frv. út frá einstaklingnum eingöngu, sem ég ætla að gera til að byrja með, hefur þetta kerfi mjög marga kosti. Lítum fyrst á almenna kerfið og ég ætla að halda mig aðallega við það. Þeir sem kaupa kaupleiguíbúðir geta fengið, ef þeir ákveða að kaupa, 70% lán með þá 3,5% vöxtum til 40 ára, ef við miðum við það sem gildir núna, og 15% lán með 3,5% vöxtum til fimm ára. Ég heyrði að það var einhver ágreiningur á milli Sjálfstfl. og ráðherrans um þetta atriði, en ég skildi þetta svona. Auk þess getur fólk fengið 15% lán frá framkvæmdaaðila, sem þá getur verið bæði sveitarfélag, félagasamtök eða fyrirtæki, með vöxtum sem menn hafa þurft að greiða af þeim lánum sem þeir hafa tekið sem eru þá væntanlega markaðsvextir. Þetta fólk, sem þarna ákveður að kaupa, hefur augljóslega miklu hagstæðara lán en þeir sem sækja um í núgildandi kerfi.

Það er líka gert ráð fyrir að fólk sem ákveður að kaupa þurfi að hafa rétt til láns hjá Húsnæðisstofnun ríkisins skv. 12. gr. laganna sem ég tel vera eðlilegt ákvæði. Þetta kemur fram í j-lið 4. gr. frv. En ég gat ekki séð og sé hvergi í frv. hvað verður með biðröðina eftir láni. Ef við lítum á ástandið eins og það er er tíminn mjög langur sem fólk þarf að bíða eftir því að fá lán frá því að umsókn er lögð fram. Það er talað um að það verði fljótlega fjögur til fimm ár. Ég velti fyrir mér hvernig þetta verði gert, hvort fólk þurfi að fara í einhverja röð eða hvort það fer fram fyrir hitt fólkið í röðina ef það ákveður að kaupa í þessu kerfi. Þetta finnst mér frekar óljóst. Þó má vel vera að það standi þarna einhvers staðar þó ég hafi ekki komið auga á það. Ég tel á vissan hátt að þetta sé ósanngjarnt gagnvart því fólki sem er að sækja um, sérstaklega ef það er búið að sækja um og er þar með komið í einhverja ákveðna biðröð að því er það telur í almenna kerfinu, þá er ég ekki að tala um kaupleigukerfið. Þetta finnst mér að þurfi að athuga vel og eins með vexti af lánum, hvort þarna er verið að búa til annað kerfi við hliðina á hinu sem er augljóslega miklu hagstæðara. Ekki er ég að finna að því í, sjálfu sér að gera lánin hagstæðari fyrir fólkið. Ég er bara að velta fyrir mér muninum á þessu og hinu kerfinu.

Ég gat ekki komið auga á hvernig á yrði haldið ef margir vilja sækja um kaupleiguíbúð, komast inn í það kerfi. Með þessum hagstæðu lánum tel ég að það muni sjálfsagt margir reyna það. Á að fara eftir einhverri ákveðinni röðun, á að fara eftir félagslegum aðstæðum, þá er ég að tala um almenna kaupleigukerfið, eða hvernig er hugmyndin að búa til röð, umsóknaröð inn í þetta kerfi? Er það bara einföld númeraröð eftir því hvenær umsókn berst eða er eitthvað annað sem haft er í huga? Til þess að þetta gangi upp þarf að sjálfsögðu að auka fé til Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna til þess að hægt sé að koma til móts við þetta kerfi þar sem það virðist eiga að vera við hliðina á hinu almenna kerfi.

Það eru líka ákvæði í frv. um kaupskyldu svokallaðra framkvæmdaaðila í fimm ár eftir að kaupin eru ákveðin. Það er ákaflega hagstætt fyrir fólkið að geta verið tryggt með það að ef það ákveður að hætta við kaupin geti það fengið til baka það sem það hefur greitt verðtryggt. Auðvitað gildir þetta sérstaklega úti á landi þar sem það hefur verið mjög erfitt að selja íbúðir og fólk er jafnvel bundið á þeim stöðum sem það býr. Þó það kjósi að fara burtu, þó að atvinnuástand breytist eða það af einhverjum ástæðum þarf að flytja burt er það nánast bundið vegna þess að það getur ekki losað sig við sitt húsnæði og það er mikið fé bundið í því. Þetta er því ótvíræður kostur fyrir fólkið.

En hvað gerist nú ef sveitarfélagið, félagasamtökin eða fyrirtækin hafa ekki bolmagn til að sinna þessari kaupskyldu? Verða þá byggingarsjóðirnir bakhjarl eða hvernig hafa hæstv. félmrh. og frumvarpshöfundar hugsað sér framkvæmd á þessu atriði frv.? Það getur t.d. orðið að fyrirtækin fari á hausinn og félagasamtökin hætti eða leggist niður og sveitarfélögin og allir þessir aðilar hafa ekki neitt fjármagn til að sinna þessari kaupskyldu. Sérstaklega getur þetta átt við ef skyndileg breyting verður í einhverju þorpi úti á landi, allt í einu verður atvinnutæki seli út byggðarlaginu eða eitthvað þess háttar og þar eru margar svona íbúðir. Þá er hætta á að sveitarfélög hafi ekki bolmagn til að sinna þessari kaupskyldu.

Ég hef nokkrar áhyggjur af þessu og bendi á að þetta kaupskylduákvæði hefur reynst mjög erfitt sveitarfélögunum í verkamannabústaðakerfinu og er einmitt hætta á að svo verði einnig hér. Ég get ekki séð á frv. að sveitarfélög úti á landi hafi meiri möguleika á að leggja fé í þetta íbúðaform frekar en þau hafa nú með verkamannabústaðakerfinu. Ég get heldur ekki séð hvernig þetta kemur sér betur fyrir sveitarfélögin úti á landi og átta mig alls ekki á af hverju það verður meiri hvatning fyrir sveitarfélögin að nota þetta form en hefur verið með verkamannabústaðakerfið. Eins og kom fram í máli hæstv. félmrh. áðan hefur verið samdráttur í byggingu verkamannabústaða úti á landi þannig að ég er ekki alveg búin að sjá að þetta komi í staðinn fyrir það.

Ég tel varla réttlætanlegt að koma með nýtt kerfi núna við hliðina á öðru kerfi vegna þess að núverandi húsnæðislánakerfi er í miklu fjársvelti og biðtíminn er langur og mikil óvissa um framtíð lánasjóðanna beggja. Nú síðast er boðað að minnka eigi fjárveitingar til húsnæðislána um 100 millj. kr., 75 millj. til Byggingarsjóðs ríkisins og 25 millj. til Byggingarsjóðs verkamanna. Ég býst við að hæstv. ráðherra viti það jafn vel og ég og væntanlega allir aðrir að Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna eru búnir að ráðstafa öllu því fé sem þeir töldu sig hafa til umráða á þessu ári þannig að til þess að hægt sé að skera niður lánveitingar um 100 millj. hlýtur að þurfa að svíkja einhvern. Mér finnst alveg ótækt að svíkja það fólk sem þegar hefur fengið loforð fyrir láni, hvort sem það er hjá Byggingarsjóði ríkisins eða Byggingarsjóði verkamanna. Ég teldi þá frekar koma til greina að fresta gildistöku einhvers nýs kerfis eins og t.d. þessa, hvaða skoðun sem maður hefur á ágæti þess, því lögleiðing á því mun ekki leysa þann vanda sem blasir við.

Ég tel það þess vegna nánast blekkingu og sýndarmennsku að leggja þetta fram núna þar sem ríkisstjórnin hefur skorið verulega niður fé til byggingarsjóðanna. Það er ómögulegt að svíkja fólk sem núna hefur fengið loforð og samþykkja að setja peninga í eitthvað annað sem enginn hefur fengið loforð fyrir að fá.

Ég endurtek að ég tel að hugmyndin að baki frv. sé góð. En það er alveg sama hversu fallegt kerfi er sett á pappír ef ekki fæst fjármagn til kerfisins. Ég minni á að ein aðalröksemdin gegn því kerfi sem nú gildir er að það var fyrirsjáanlegt þegar það var samþykkt að það fengist ekki nægjanlegt fé til að mæta þörfunum. Það hefur sýnt sig að það sem talað var um á þeim tíma hefur ræst því núna er biðtíminn orðinn óheyrilega langur. Það virðist jafnvel að þetta frv. sé fyrst og fremst lagt fram til að geta staðið við loforð um að eitthvað kæmi sem heitir kaupleiguíbúðir þó það hljóti að vera augljóst að með samþykkt frv. verður húsnæðisvandi þeirra sem verst eru settir því miður ekki leystur.

Þetta er eins og ég sagði áðan flókið frv. og erfitt að fá heildarmynd af því hvernig kerfinu er ættað að virka. Enn eru í mínum huga mjög margir lausir endar.

Ég vonast til að félmn. deildarinnar, sem ég á sæti í, gefist kostur á að fá svar við ýmsum þeim spurningum sem vöknuðu við lestur frv.