01.03.1988
Neðri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5235 í B-deild Alþingistíðinda. (3506)

301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Hér er til umræðu frv. um Húsnæðisstofnun ríkisins. Ég verð að segja eins og er að mér rann til rifja að hlusta á lýsingu hv. 17. þm. Reykv. á því harðræði sem hæstv. félmrh. hafði beitt hann. Í fyrsta lagi kom fram að gerð var krafa um vinnu á helgidegi og jafnframt að ekki hafði hv. þm. verið sent frv. til aflestrar þegar hann var erlendis. Jafnframt kvartaði hann yfir því að fá ekki að lesa þennan lagatexta yfir.

Nú er það svo að þess er engin von að menn lesi lagatextana yfir fyrr en búið er að samþykkja frv. hér í þinginu, en hin aðferð ráðherrans minnir að harðfylgi mest á það þegar Grettir Ásmundsson gerði það við einn fyrirsátursmann sinn að hann elti hann með hrísvendi og fór þó ekki nær honum en svo að hinn gat kastað af sér klæðum á flóttanum þar til hann lagði til þess ráðs að henda sér út í á eina alófæra og synda þar yfir til að halda lífi. Auðvitað verður hæstv. ráðherra að hafa hóf á sinni harðneskju gagnvart samflokksmönnum þannig að þeir líði hvorki kvalir á sál né líkama þó að þeir þurfi að vinna nefndarstörf fyrir hæstv. ráðherra.

En ég verð að segja að önnur ásökun sem kom fram, að það væri visst hik á ráðherranum að samþykkja 100 millj. kr. niðurskurð á peningum til húsnæðismálakerfisins, er atriði sem að mínu viti horfir dálítið öðruvísi við. Ég veit ekki betur en það sé búið að gefa út skuldbindandi loforð frá Húsnæðisstofnun ríkisins um ráðstöfun á fjármagni allt þetta ár. Mér er þess vegna til efs að Húsnæðisstofnun ríkisins geti svikið þau loforð nema hún sé skaðabótaskyld og þar með ríkissjóður fyrir hennar hönd.

Allir ráðherrarnir munu hafa varist niðurskurði á þeim forsendum að búið væri að gera skuldbindandi samninga um þetta eða hitt og þess vegna væri ekki hægt að skera það niður. Mér er ekki ljóst að það sé hægt að ganga þannig til leiks gagnvart þeim sem hafa lánsloforð frá Húsnæðisstofnun ríkisins að það sé tilkynnt að þau verði bara svikin og bótalaust komist stofnunin upp með slík vinnubrögð. Eitt er víst, að ef sú regla yrði upp tekin tæki enginn banki mark á lánsloforðum frá Húsnæðisstofnun ríkisins þó að menn héldu með þau á fund bankastofnunar til að fá lán út á loforðin ef þeir þyrftu að hraða framkvæmdum.

Ég tel að þessi umræða hafi á marga vegu snúist upp í of heitar trúarkenningar um hvaða húsnæðislánaform væri það sem ætti að taka upp í landinu. Hér var talað um Búseta, hér hefur verið talað um að það væri nauðsyn að varðveita það að hver maður ætti sína íbúð og hér hefur verið talað um að það þyrfti að hafa leiguíbúðir og það þyrfti að hafa félagslegar íbúðir. Það er ábyggilega hollt hjá okkur í dag að horfa á þessa stöðu mála út frá því hvernig ástandið er. Við höfum í gildi lánskjaravísitölu sem hefur orðið til þess að húsnæðismálastjórnarlán hafa í mörgum tilfellum hækkað meir en verðmæti eignanna úti á landi. Menn hafa lent í því að þurfa að tapa sinni eign og sitja uppi áfram með skuldakvöð. Auðvitað er alveg vonlaust með þá lánskjaravísitölu sem við erum með, sem hefur hækkað jafnmikið, að gera ráð fyrir því að menn fjárfesti á ýmsum stöðum þar sem slíkt hefur gerst í húsnæði og það blasir við að stór hluti þeirra sem hafa verið að sækja um lán á landsbyggðinni hafa uppi áform um að byggja á höfuðborgarsvæðinu þó að þeir jafnframt vilji búa úti á landi. Ég tel þess vegna að við séum komin í vissar ógöngur.

Með þessu er ég ekki að gagnrýna þau lög sem sett voru um Húsnæðisstofnun ríkisins í tíð fyrrv. félmrh. og ég tel stórmerk hvað það atriði snertir að þá náðist í fyrsta skipti samkomulag við lífeyrissjóðina um aðild þeirra að uppbyggingu húsnæðismálakerfisins og afleiðing þess varð sú að meiri fjármunum var varið til húsnæðismála en verið hafði. Ég hef þess vegna talið að það yrði að standa þannig að þessum málum að aðilar vinnumarkaðarins teldu ekki að á þeim væri svikið samkomulag og teldu að þeir væru skuldbundnir að standa við það sem þá var samþykkt og fór af stað gagnvart kaupum lífeyrissjóðanna á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar. Ég held aftur á móti að í dag sé það ærin nauðsyn fyrir sveitarfélög úti á landi að koma uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á ný af stað. Ég segi á ný vegna þess að sums staðar hefur það algerlega stöðvast vegna lánskjaravísitölunnar eins og ég gat um hér að framan.

Mér sýnist að sú leið að bjóða mönnum fyrst upp á að leigja húsnæði en að þeir seinna geti tekið ákvörðun um að kaupa það sé að mörgu leyti aðgengileg. Þess vegna vænti ég þess að þó að menn deili um vinnubrögð og e.t.v. hafi orðið einhver fljótaskrift á því að hafa þar öll formsatriði í lagi setjist menn niður þegar þetta mál kemur í nefnd, yfirfari þennan texta og afgreiði þetta mál til þingsins aftur þannig að hér verði tekin um það ákvörðun hvort menn samþykkja þær breytingar sem verið er að leggja til á þessu frv. til laga um Húsnæðisstofnun ríkisins.

Það eru ýmis ákvæði í þessu frv. sem ég játa fúslega að ég vildi hafa á annan veg. Það vill löngum verða svo þegar ýmis og ólík sjónarmið verða uppi í samningu frv. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að ég tel að eitt af því sem við þurfum alveg sérstaklega að leggja áherslu á, þessi þjóð, sé að ná þeim árangri í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis að fólk dvelji ekki erlendis vegna þess að það treysti sér ekki til að koma heim til Íslands vegna húsnæðismála. Því miður hygg ég að svo sé í dag. Þeir séu þó nokkuð margir sem dvelji á Norðurlöndum og komi ekki heim vegna húsnæðismála.

Ég veit að sumir eru hörundsárir yfir því að þetta frv. gæti e.t.v. orðið til þess að raska að einhverju leyti þeirri röð sem menn telja að þeir hafi fengið og komist í með því að sækja um lán til Húsnæðisstofnunar. Auðvitað má segja sem svo að það fer eftir heildarfjármagninu hvort það á eftir að breyta þeim tíma sem gert var ráð fyrir. En það er jafnframt mjög alvarlegt mál ef þróunin er sú í þessu landi að frumatvinnuvegir þjóðarinnar, m.a. sjávarútvegurinn, eru stundaðir í hinum dreifðu byggðum hringinn í kringum landið með verulegum hópum af erlendu vinnuafli á sama tíma og húsnæðisuppbyggingin á sér fyrst og fremst stað á þéttbýlissvæðunum við Faxaflóa og vinnumarkaðurinn býður fyrst og fremst upp á atvinnu í þjónustu. Auðvitað hlýtur það fyrr eða síðar að koma niður á lífskjörum þjóðarinnar ef við stöndum þannig að þessum málum. Ég tel þess vegna að það samkomulag, sem gert var af stjórnarflokkunum, að það yrði farið í að setja í lög ákvæði um kaupleiguíbúðir, beri að efna og það beri að efna það í hinu almenna kerfi. Ég efa að sumu leyti að það sé jafnmikil þörf á þessari fjölbreytni í félagslega húsnæðiskerfinu þó að ég leggi ekki neinn stein í götu þess, en mér er ljóst að sum sveitarfélög binda vonir við að þau geti komið af stað byggingum í sínum byggðarlögum verði það frv. að lögum sem hér liggur fyrir þó að ég telji að það sé að sjálfsögðu ekki svo heilagt að það megi ekki breyta þar einhverju áður en það kemur aftur til deildarinnar.