01.03.1988
Neðri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5237 í B-deild Alþingistíðinda. (3507)
301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil í upphafi rifja aðeins upp í sambandi við frv., sem hér liggur fyrir um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins með síðari breytingum, það sem liggur til grundvallar frv. í aðalatriðum, þ.e. það samkomulag sem formenn stjórnarflokkanna gerðu í byrjun júlí á fyrra ári um kaupleiguíbúðir, en þar segir svo, með leyfi forseta: „Hugtakið kaupleiguíbúð verði skilgreint í húsnæðislöggjöfinni.“
Annað er um Byggingarsjóð ríkisins: „Í húsnæðislöggjöf komi ákvæði þess efnis að sveitarfélög, félög eða einstaklingar, sem vilja byggja íbúðarhús með það fyrir augum að bjóða íbúðirnar með kaupleigukjörum, njóti lánafyrirgreiðslu úr Byggingarsjóði ríkisins með sömu lánakjörum og þar gilda nú.“
Þriðja lagaákvæðið er um Byggingarsjóð verkamanna: „Sett verði sérstök lagaákvæði um kaupleiguíbúðir fjármagnaðar úr Byggingarsjóði verkamanna og nánari reglur um framkvæmd þeirra að höfðu samráði við aðila vinnumarkaðarins og Samband ísl. sveitarfélaga. Lán úr Byggingarsjóði verkamanna til sveitarfélaga og eða félaga má nema 85% byggingarkostnaðar með sömu kjörum og gilda um lán úr Byggingarsjóði verkamanna.“
Fjórða atriðið var byggingaráætlun og fjármögnun: „Gerð verði þriggja ára áætlun um byggingu kaupleiguíbúða á vegum sveitarfélaga eða félagasamtaka að undangenginni sérstakri könnun meðal sveitarstjórna. Sérstaklega skal taka tillit til þarfa þeirra sveitarfélaga sem þurfa af sérstökum ástæðum að auka framboð íbúðarhúsnæðis. Fjöldi kaupleiguíbúða á ári hverju verði ákveðinn með hliðsjón af heildarframlögum í byggingarsjóðina skv. fjárlögum og lánsfjárlögum.“
Fimmta atriðið var lánafyrirgreiðsla: „Ríkisstjórnin mun veita sveitarfélögum sérstaka lánafyrirgreiðslu til að standa straum af 15% byggingarkostnaðar eða kaupverðs. Þessi lánafyrirgreiðsla má nema umsaminni upphæð á þremur árum (110 millj., tæpar 37 millj. pr. ár). Lánin skulu vera til 25 ára með sömu vöxtum og eru á almennum lánum hjá Byggingarsjóði ríkisins. Lán þessi verði veitt þeim sveitarfélögum og eða félögum sem samkvæmt könnun þurfa mest á þeim að halda og skulu lánakjör, fyrirgreiðsla og skipting fjármagns ákveðin fyrir fram.“
Sjötti liður: „Endurskoðun félagslega húsnæðislánakerfisins. Í samræmi við ákvæði starfsáætlunar ríkisstjórnarinnar fari fram heildarendurskoðun á lögum, fjármögnun og skipulagi félagslega íbúðarhúsnæðislánakerfisins og í nefndinni verði einnig fulltrúar sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins.“
Þetta samkomulag, sem er undirritað af formönnum stjórnarflokkanna, var undirritað 3. júlí 1987 og er raunar grundvöllur þess sem hér er til umræðu. Í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar næstu fjögur ár um húsnæðismál er fyrsti punktaliður, sem tekinn verður til meðferðar, uppbygging og fjármögnun félagslega íbúðarkerfisins, að það verði endurskoðað. Síðan er annar punktaliður: „Sett verði sérstök lagaákvæði um kaupleiguíbúðir og fjármögnun þeirra“ samkvæmt sérstöku samkomulagi sem áður hefur verið rakið.
Ég taldi rétt, herra forseti, að rifja þetta upp og einnig hvernig svo staðið hefur verið að samningu frv. sem hér liggur fyrir. Það er ekkert ofsagt að það er mjög óvenjuleg aðferð að leggja út í samningu á frv. sem hefur verið ágreiningsefni við stjórnarmyndun án þess að gefa fulltrúum stjórnarflokkanna í ríkisstjórn kost á að vera kvaddir til að semja slíkt frv. Þetta var ekki gert og enginn fulltrúi frá stjórnarflokkunum kom nálægt samningu frv.
Þetta frv. var síðan sent þingflokkunum rétt fyrir miðjan desember sl. í mestu önnum þingsins. Það var frv. upp á 50 bls. með grg. og er ekkert nema gott um það að segja. Það hafði ýmis atriði innanborðs sem sjálfsagt er að skoða og getur skýrt mál með því að lesa það vandlega. Frv. var síðan tekið til meðferðar í þingflokkum ríkisstjórnarinnar eftir þinghlé og tilnefndur einn maður fyrst frá hverjum þingflokki til að yfirfara frv. Það var aldrei skipuð nein nefnd á vegum hæstv. félmrh. eins og hv. 2. þm. Vestf. ruglaði saman áðan heldur voru þetta einvörðungu fulltrúar flokkanna sem voru fengnir til að yfirfara frv. og reyna að ná samkomulagi um gerð þess í aðalatriðum.
Í byrjun febrúar sl. lögðu þingflokkar Sjálfstfl. og Framsfl. fram skriflegar athugasemdir vegna frumvarpsdraganna um kaupleiguíbúðir sem var í meginatriðum samræmd afstaða þessara fulltrúa flokkanna um frumvarpsgerðina og um helstu atriði sem þyrfti að taka fyrst afstöðu til. Vegna þess sem hér hefur komið fram og einnig í fjölmiðlum tel ég ástæðu til að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta, þær athugasemdir sem þannig voru lagðar fyrir sem umræðugrundvöllur í þeirri vinnunefnd stjórnarflokkanna sem hafði með málið að gera.
Það er það fyrsta að í tengslum við afgreiðslu húsnæðisfrv. ríkisstjórnarinnar fyrr á þessu þingi var ákveðið að hafin skyldi heildarendurskoðun hins almenna húsnæðislánakerfis og stefnt að því að ljúka henni fyrir upphaf þings næsta haust, þ.e. þetta er um húsnæðisfrv. sem afgreitt var á haustþingi á sl. ári. „Einnig er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kveðið á um endurskoðun, uppbyggingu og fjármögnun félagslega íbúðarkerfisins. Mun sú endurskoðun standa fyrir dyrum og báðir meginþættir hins opinbera húsnæðislánakerfis eru því til endurskoðunar. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að ríkisstjórnin hafi sett sér starfsáætlun fyrir kjörtímabilið í hinum ýmsu málaflokkum.“
Um kaupleiguíbúðir segir þar eftirfarandi: „Sett verði sérstök lagaákvæði um kaupleiguíbúðir og fjármögnun þeirra samkvæmt sérstöku samkomulagi sem stjórnarflokkarnir hafa gert.“
Hið sérstaka samkomulag er dags. 2. júlí 1987 og undirritað af formönnum stjórnarflokkanna sem ég las upp áðan. Þar eru dregnar upp útlínur þess kaupleiguforms sem samkomulag er um að setja í lög um Húsnæðisstofnun ríkisins.
„Þar sem ákveðið hefur verið að taka húsnæðislánakerfið í heild til endurskoðunar á næstunni virðist órökrétt að bæta nú inn í það nýjum veigamiklum þáttum. Eðlilegast er því að fella hugmyndir um kaupleiguíbúðir inn í endurskoðun á heildarlöggjöfinni og finna þeim þar stað í samræmi við væntanlega framtíðarskipan þessara mála. Aðaltillaga þingflokkanna er því sú að mál þetta verði tekið fyrir við heildarendurskoðun húsnæðislánakerfisins þar sem fulltrúar allra stjórnarflokkanna munu væntanlega eiga hlut að máli en ekki embættismenn einvörðungu eins og við samningu þess frv. sem nú liggur fyrir. Kaupleiguforminu verði þá fundinn staður í samræmi við samkomulag formanna flokkanna í endurskoðaðri húsnæðislöggjöf sem komi til afgreiðslu á næsta þingi.
Varatillaga þingflokksins er sú að vinnuhópur með tveimur fulltrúum frá hverjum stjórnarflokkanna endurskoði fyrirliggjandi frv. Þingflokkurinn getur alls ekki fallist á að málið verði lagt fram á Alþingi fyrr en stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um frv.
Þingflokkurinn telur rétt að fyrst í stað og þar til einhver reynsla er fengin nái kaupleiguformið einvörðungu til hins félagslega húsnæðiskerfis og skilyrði er að jafnframt verði lánstími skv. 33. gr. b- og c-lið laga nr. 60/1984 sá sami og í verkamannabústöðum, þ.e. 43 ár, og sömu lánakjör.
4. Sett verði skýr ákvæði um að lán til byggingar kaupleiguíbúða verði veitt þeim sveitarfélögum og eða félögum sem þurfa mest á þeim að halda samkvæmt nákvæmri könnun er Húsnæðisstofnun ríkisins lætur framkvæma.
5. Fá fram samanburð á greiðslubyrði kaupleiguíbúða skv. frv. og í verkamannabústöðum skv. núgildandi lögum og leiguíbúðum sveitarfélaga miðað við meðalíbúð og enn fremur í leiguíbúðum skv. 6. lið 33. gr. núgildandi laga með lengingu láns í 43 ár.
6. Þingflokkurinn telur rétt að kannað verði, áður en frv. þetta er lagt fram, viðhorf launþegasamtaka og aðila vinnumarkaðarins í heild, lífeyrissjóðanna og eigenda þeirra sem leggja til mest af fjármagni byggingarsjóðanna.“
Þetta voru viðræðupunktar sem við lögðum fram og er nokkuð samhljóða í fyrstu þremur atriðunum því sem fulltrúar Sjálfstfl. lögðu fram, enda vorum við búnir að samræma þessar skoðanir í umræðunum um málið í heild.
Þrátt fyrir þetta tel ég rétt að taka fram hér að það náðist ekki samkomulag um að tengja lagaákvæði um kaupleiguíbúðir heildarendurskoðun húsnæðislánakerfisins á þessu ári né heldur samkomulagi um að fyrst í stað, meðan reynsla er fengin, nái kaupleiguformið einvörðungu til félagslega íbúðarhúsakerfisins. Var því ákveðið í þessum viðræðuhópi að fara yfir almenna kerfið miðað við samkomulag formanna stjórnarflokkanna þar sem ákveðið er að lánafyrirgreiðsla úr Byggingarsjóði ríkisins verði með sömu lánakjörum og almenn lán er þar gilda. Það voru haldnir margir fundir um þessi atriði og allir fulltrúar sem hér voru tilnefndir tóku þátt í því að reyna að lagfæra og breyta ýmsum óljósum atriðum í frv.
Það voru settar ýmsar breytingar fram og á lokafundi viðræðunefndanna var óskað eftir viðbrögðum hæstv. ráðherra við athugasemdum og breytingum á frv. Jafnframt var óskað eftir upplýsingum um samanburð á leigukjörum við verkamannabústaðakerfið og um leigukjör miðað við breytingar á 33. gr. núgildandi laga b- og c-lið úr 30 árum í 43 ár. Það var óskað eftir skilgreiningu á því í frv. hvernig meta skal mestu þörf fyrir slíkar íbúðir og þar með gert ráð fyrir vissri tryggingu fyrir vissan forgang landsbyggðar í þessum málaflokki. Enn fremur hvernig eða hvort þessi lagabreyting skaraðist við önnur lagafyrirmæli í húsnæðiskerfinu. Það var beðið um viðhorf helstu aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóða.
Ég þarf ekki að rekja þessa sögu öllu lengur. Hæstv. ráðherra lagði frv. fram á Alþingi án þess að svara formlega þessum tilmælum fulltrúa þingflokka stjórnarflokkanna. Þetta eru að mínu mati vinnubrögð í stjórnarsamstarfi sem eru óverjandi í umdeildum málum, ekki síst þegar búið er að leggja mikla vinnu í að ná samkomulagi. Svona aðgerðir leysa því engin mál á hv. Alþingi heldur setja mál frekar í harðari hnút.
Þingflokkur framsóknarmanna afgreiddi málið þannig við þessar aðstæður að þar sem frv. hafði verið lagt fram án þess að leita formlegs samþykkis þingflokksins séu þm. flokksins ekki skuldbundnir að samþykkja frv. eins og það liggur fyrir. Það hefur áður komið fram við þessar umræður að þingflokkur sjálfstæðismanna skrifaði ráðherra bréf, sem hefur verið útskýrt, um þessi vinnubrögð og þarf ekki að ræða það nánar.
Ég taldi nauðsynlegt að rekja þetta því þannig er staða þessa máls í stórum dráttum. Það er alveg ljóst að frv., ef samþykkt yrði, leysir ekki vanda og boðar heldur ekki nein þáttaskil í húsnæðismálum hér á landi. Þetta eru miklar umræður um miklar umbúðir um lítið mál sem hægt væri að leysa við þessar aðstæður í núgildandi löggjöf með tiltölulega litlum breytingum. Aðalmálið er það, sem hér hefur komið fram hjá fleiri hv. þm., að það vantar meira fjármagn í húsnæðislánakerfið. Frv. leysir á engan hátt þann vanda.
Ég hef síður en svo á móti því að auka valfrelsi í húsnæðislánakerfinu og hef raunar boðað það áður, en meðan ekki er til fjármagn til að leysa félagslega þörf fyrir húsnæði fyrir þá sem ekki hafa nægileg efni til að byggja eða kaupa, hvers vegna þá t.d. að setja af stað kaupleiguform í almenna húsnæðiskerfinu fyrir þá efnameiri í þjóðfélaginu og skapa þeim forgang? Það eru engin ákvæði í almenna kerfinu sem reisa neinar skorður gegn því að hver sem er, hvernig sem aðstæður eru, geti ekki gengið inn í það form og krafist þar húsnæðis.
Ég ætla ekki efnislega að ræða þetta mál við þessa umræðu vegna þess að ég geri ráð fyrir því að félmn. muni taka þetta mál til efnislegrar meðferðar eins og venja er til. En það verður fróðlegt að fá viðbrögð launþega við þessum áformum og þá ekki síður lífeyrissjóða sem eiga að fjármagna lán til framkvæmdaaðila, 15%, með kaupum á skuldabréfum til 25 ára umfram þá kvöð sem 55% skyldan í almenna kerfinu leggur þeim á herðar. Það er ekkert leyndarmál að í dag er ástandið þannig að það er aðeins lítill hluti af lífeyrissjóðunum sem hafa séð ástæðu til að verða við þeim skyldum sem þeir eiga að inna af hendi í sambandi við fjármagn fyrir árin 1989 og 1990.
Það er alveg ljóst að þörf er á byggingu leiguíbúða í landinu þar sem hægt er að leigja út húsnæði með viðráðanlegum leigukjörum. Ég hef því talið og við framsóknarmenn settum það sem skilyrði við þessar umræður að það yrði fallist á það að breyta 33. gr. núgildandi laga, þ.e. b- og c-lið, þannig að lánstíminn verði 43 ár í stað 30. Frv. um þetta atriði átti að vera með í samkomulagi fulltrúa stjórnarflokkanna um þetta mál, en svar kom ekki frá hæstv. ráðherra eða fulltrúa hans við þessu skilyrði okkar í viðræðuhópunum. Frv. um þetta atriði verður því lagt fram sem mun auðvelda sveitarfélögum og samtökum fatlaðra, aldraðra, námsmanna og fleiri samtökum að byggja ódýrar leiguíbúðir. Ég tel rétt við þessar umræður að lýsa því frv. sem er aðeins ein grein, þ.e. að 5. mgr. 58. gr. núgildandi laga orðist svo: Lán samkvæmt b- og c-lið 33. gr. eru til 43 ára, afborgunarlaus fyrsta árið en endurgreiðist síðan að fullu með jöfnum greiðslum vaxta og afborgana að viðbættum verðbótum samkvæmt lánskjaravísitölu á eftirstöðvum lánstímans. Lánin skulu bera sömu vexti og lán samkvæmt 49. gr. 2. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ég þarf ekki að eyða orðum á nauðsyn þessa. Það hefur verið krafa sveitarfélaganna og ósk þeirra um nokkurt skeið að þessu ákvæði í lögunum verði breytt þannig að þau gætu nýtt sér þennan lánaflokk í félagslega íbúðakerfinu til að leysa úr leiguíbúðaþörfinni. Hér hefur verið nefndur í umræðunum húsnæðishópurinn „Þak yfir höfuðið“, þ.e. Öryrkjabandalagið, Sjálfsbjörg, Landssamband Þroskahjálpar, Samtök aldraðra, stúdentaráð Háskóla Íslands, Bandalag ísl. sérskólanema, Leigjendasamtökin og Búseti — landssamband húsnæðissamvinnufélaga. Þau hafa sent bréf á Alþingi og til félmrn. þar sem sérstaklega er lögð áhersla á það, eins og stendur hér í 3. lið í því bréfi, að lán til leiguíbúða skv. b- og c-lið 33. gr. núgildandi laga um Húsnæðisstofnun ríkisins verði lengd úr 30 árum í 43 ár til samræmis við lánakjör í félagslega kaupleigukerfinu. Þau leggja sérstaka áherslu á þetta ákvæði í lok þeirrar samþykktar og þess bréfs sem þessi samtök sendu félmrh. 4. des. sl. og raunar nokkrum fleiri alþm. einnig.
Miðað við þá breytingu sem hér hefur verið kynnt er ljóst að miðað við að leggja til grundvallar sömu lánakjör og gert er í útreikningum með frv. sem er til umræðu eru leigukjörin, miðað við fjármagnskostnaðinn, ekki lakari, heldur frekar hagstæðari í þessu kerfi en í kaupleigukerfinu. Ef við leggjum til grundvallar íbúð sem er á 4 millj. kr. og fái 85% lán í verkamannabústaðakerfinu og síðan þurfi 15% að fjármagnast með láni úr lífeyrissjóðum með 7% vöxtum er mánaðarleiga reiknuð út miðað við 43 ár með þessari breytingu á fjármagnskostnaðinum 11 795 kr. á mánuði. Ef hins vegar væri farið út í að 15% yrðu fengin með 3,5% vöxtum, eins og gert er ráð fyrir að hluta til í frv., yrði fjármagnsleigan ekki nema 10 045 kr. á mánuði. Þannig er alveg ljóst að hér er um valkost að ræða sem nauðsynlegt er að leiðrétta í núgildandi kerfi en þarf ekki til þess annað en samþykkja eina litla grein í viðbót við núgildandi kerfi.
Mér þykir ástæða til að lokum að nefna að það er mitt álit að það hefði þurft að skoða þetta mál í stærra samhengi við allt félagslega íbúðakerfið í landinu eins og ráð var fyrir gert og raunar númer eitt í stjórnarsáttmála sem ég hef lýst hér fyrr. Það er ekkert sjálfgefið að þetta form, kaupleiguformið eins og hér er stillt upp, sé eitthvað betra en önnur form. T.d. er kaupleiguíbúðafyrirkomulagið mjög umdeilt á Norðurlöndunum og hafa Finnar lagt það niður að nokkru leyti og miklar deilur eru um þetta form í Svíþjóð þar sem aðilar sem nálægt þessum málum koma della nú um það og segja að ástæðan sé sú að einstaklingar vilji hagnast á íbúðunum. Þeir sem eru hlynntir þessu fyrirkomulagi búast við því að íbúðir muni stíga í verði, en þeir sem vilja hamla gegn þessu telja að það sé óréttlátt að nota opinbert fjármagn á þann hátt eins og þar er farið að verða vandamál í sænskum húsnæðismálum. Við skulum vona að þetta komi ekki inn á okkar borð, en alla vega er þetta þess eðlis að það þarf a.m.k. að gjalda varhug við ýmsum atriðum í okkar kerfi sem eru erfiðari en hjá þessum milljónaþjóðum. Það er þess vegna fullkomin ástæða til að vanda sig vel þegar verið er að breyta sí og æ húsnæðislánakerfinu.
Frv. þetta sem hér er til umræðu mun að sjálfsögðu fá þinglega meðferð og hafa aldrei verið uppi nein áform um að koma í veg fyrir það með neinum bolabrögðum eða öðru slíku. Síður en svo. Það hefur verið talin ástæða til að fara vel ofan í þetta mál og hefði verið ástæða til þess. Og ég endurtek að það er alveg ófyrirgefanleg aðferð í svona málum að láta ekki fulltrúa þeirra stjórnmálaafla sem eiga að fylgja slíku máli fram miðað við stjórnarsáttmála koma að því að semja frv. sem slíkt á frumstigi. Þetta eru vinnubrögð sem er ekki hægt annað en að mótmæla hér á hv. Alþingi þegar um stjórnarfrv. er að ræða.
Ég ætla ekki á þessu stigi að fara nákvæmlega meira ofan í þessi mál né eltast við ýmsar uppákomur í kringum þetta mál. Ég verð að segja að það kom mér svolítið á óvart að hv. 5. þm. Norðurl. v. skyldi dýfa niður penna og reyna að skrifa grein með sérstöku formi eins og birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar gerir hann tilraun til þess að stílfæra mál í líkingu við það sem Þórbergur gerði í ævisögu séra Árna Þórarinssonar og auðvitað mistókst þessum hv. þm., enda varla fær um að feta í fótspor meistara Þórbergs. Dagbók hans er greinilega röng. Niðurstaða þessara hugleiðinga hans eru reyfarakenndar og algjörlega út í hött og ég nenni satt að segja ekki að fara að svara þessari grein á einn eða neinn hátt á annan veg, þar rekur sig hvað á annars horn, því að ég geri frekar ráð fyrir því að hv. þm. hafi verið a.m.k. heldur ofhlaðinn af þeim umræðum og athugasemdum sem komu frá fulltrúum Framsfl. og Sjálfstfl. um meðferð þessa máls heldur en hitt að hann hafi saknað þess að við legðum ekkert þar til mála. Missagnir og hrein ósannindi í fjölmiðlum eins og þarna eru viðhöfð eru ekki svaraverð.
Frv. fær að sjálfsögðu þinglega meðferð. Ég geri ráð fyrir því að félmn., ég mun a.m.k. beita mér fyrir því að hún muni senda þetta frv. ýmsum aðilum, svo sem aðilum vinnumarkaðarins, lífeyrissjóðum, sveitarfélögum og mörgum fleirum til þess að fá a.m.k. það viðhorf fram sem getur gefið frv. það gildi að það hafi einhverja þýðingu til lausnar á þessum mikilvæga málaflokki, sem við erum öll sammála um sjálfsagt að reyna að leysa úr, sem eru húsnæðismál þjóðarinnar.