01.03.1988
Neðri deild: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5266 í B-deild Alþingistíðinda. (3517)
301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Ég ætlaði mér ekki að blanda mér í þessa umræðu, en þar sem orðið hafa langar umræður um undirbúning þessa máls get ég ekki láið hjá líða að segja örfá orð um hann vegna þess að ég sat í þeirri undirbúningsnefnd sem fjallaði um málið. Ég kom að vísu ekki í þá nefnd fyrr en á síðari stigum og þegar ég kom þar til verka stóð um það deila hvort setja ætti löggjöf um bæði almenna kerfið og félagslega kerfið. Það mál var leyst, m.a. með samþykkt hjá okkar þingflokki um að standa við það formannasamkomulag sem var í stjórnarmynduninni og túlka það þannig að setja löggjöf um bæði kerfin samtímis.
Ég held að það þurfi í sjálfu sér ekki að deila neitt um þessa málsmeðferð og þessar löngu umræður um þetta mál séu að mestu leyti óþarfar. Ég hef ætíð litið svo á, hvort sem um er að ræða stjfrv. eða önnur frv., að best væri að vinna málin í nefnd til þess að bæta þau og frv. tækju breytingum í nefnd. Hins vegar er eigi að síður rétt að ná sem bestu samkomulagi stjórnarliða um mál áður en frv. um það er lagt fram. Það er hin venjulega aðferð.
Í stuttu máli bar málið þannig að að við framsóknarmenn stóðum í þeirri meiningu að frv. yrði ekki lagt fram fyrr en eftir umfjöllun á þingflokksfundum á miðvikudegi og ætluðum að geyma okkur lokaumfjöllun um málið þangað til þann dag, en síðan kemur frv. fram á þriðjudegi. Um það stendur deilan og hefur verið deilt um það hér í dag. En eins og margsinnis hefur komið fram þá gerðum við ekki athugasemd skriflega um það mál og munum að sjálfsögðu vinna að þessu frv. og framgangi þess. Að sjálfsögðu höfum við óbundnar hendur um að gera einhverjar breytingar ef upp kemur í starfi þeirrar nefndar sem um frv. fjallar, eins og venja er um stjfrv., og það er óþarfi að deila þar um.
Ég held svona almennt talað að stjórnarliðar ættu að temja sér það að undirbúa ekki mál í fjölmiðlum eins og hefur verið um þetta mál í allt of ríkum mæli. Þessi undirbúningur í fjölmiðlum hefur staðið allt fram á daginn í dag að blaðagrein birtist um undirbúning þessa máls. Ég vil segja þetta í allri vinsemd. Ég held að það sé rétt fyrir stjórnarliða að spara sér slíkar yfirlýsingar.
Ég á sæti í félmn. og vil leita þar eftir áliti þeirra aðila sem hagsmuna eiga að gæta í þessu sambandi, hlusta á þeirra sjónarmið, og auðvitað stend ég að þessu máli í samræmi við það samkomulag sem gert hefur verið. En það geta orðið breytingar í einhverjum liðum eða einhverjum atriðum.