02.03.1988
Efri deild: 64. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5279 í B-deild Alþingistíðinda. (3530)

317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Virðulegi forseti. Á þskj. 644 birtist nál. minni hl. fjh.- og viðskn. en hann skipar auk mín hv. 7, þm. Reykn. Hv. 6. þm. Vesturl. tók þátt í störfum nefndarinnar fyrir hönd Samtaka um kvennalista og er hún sammála nál. minni hl.

Í nál. minni hl. eru rakin þau atriði sem fram komu í nefndinni í morgun, en stjórnarandstaðan óskaði eftir viðtölum við allmarga einstaklinga, fulltrúa samtaka og stofnana, og tel ég ástæðu til að þakka formanni nefndarinnar, hv. 2. þm. Norðurl. e. fyrir það hvað hann brást vel við þessari bón og tryggði að umræður gætu farið fram á fundinum með eðlilegum hætti.

Ég bendi á að í nál. er í fyrsta lagi fjallað um þá umsögn sem fram kom frá Seðlabankanum þar sem því var slegið föstu að raunvextir hafa ekki lækkað þó að nafnvextir hafi lækkað á óverðtryggðum lánum. Ég bendi síðan á það sem fram kemur varðandi Fiskveiðasjóð, að skerðingin á Fiskveiðasjóði muni fyrst og fremst koma niður á fiskvinnslunni í landinu. Það voru fróðlegar tölur sem hann lagði fram í sambandi við þær umsóknir sem nú liggja fyrir um innflutning og nýsmíði fiskiskipa sem nemur um 2,5 milljörðum kr. vegna 42 skipa. Þetta tekur hæstv. fjmrh. örugglega til marks um hina miklu þenslu í þjóðfélaginu, til marks um það að það sé mikil framkvæmdagleði í sjávarútveginum, en staðreyndin er auðvitað sú að við erum hér með gamlan og úreltan fiskiskipaflota og það er ekkert skrýtið þó að það komi 40 umsóknir á ári þegar tekið er tillit til aldurs fiskiskipaflotans hér í landinu.

Í nál. er vitnað til forstjóra Ríkisspítalanna sem var kallaður fyrir vegna niðurskurðar á K-byggingu Landspítalans um 20 millj. kr. Gagnrýndi forstjórinn mjög harðlega þennan niðurskurð, sagði að hann mundi koma illa við ríkisspítalana.

Ein athyglisverðasta heimsóknin var þó framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins sem talaði um „kyrkjandi ríkisvald“. Eins og þið munið var það ætlun fyrrv. ríkisstjórnar að Þróunarfélagið yrði uppistaða í nýrri sókn í atvinnulífinu til bættra lífskjara og nýsköpunar, en núna kom forráðamaður Þróunarfélagsins með þau skilaboð frá stjórn Þróunarfélagsins að hún óskaði vinsamlegast eftir því að það yrði tryggt að Þróunarfélagið losnaði úr faðmlögum við ríkisvaldið. Hann sagði: „Öll okkar samskipti við þetta kyrkjandi ríkisvald eru á einn veg.“

Þá kom fram í nefndinni að varaverðlagsstjóri sagði að gasolía til fiskiskipanna hefði lækkað hvort eð var núna 1. mars eins og ég reyndar hafði giskað á hér í ræðu í gær.

Það var einnig athyglisvert sem fram kom hjá forráðamönnum Landsvirkjunar. Þeir töldu að þeir væru í raun og veru ágætlega staddir þrátt fyrir þennan niðurskurð. Ég spurði reyndar að því hvort þeir þyldu þá ekki eitthvað aðeins meiri niðurskurð. Þeir svöruðu því nú ekki en það var bersýnilegt að þeir báru sig í rauninni allvel, enda er það stofnun sem hæstv. utanrrh. kallar ríki í ríkinu eins og kunnugt er og fer sínu fram.

Einna ítarlegastar umræður fóru fram í nefndinni um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Við fengum á fund nefndarinnar formann Sambands ísl. sveitarfélaga og framkvæmdastjóra sömu samtaka. Þeir mótmæltu ákvæðum frv. harðlega. Þeir töldu að skerðing Jöfnunarsjóðsins frá 1984 væri komin talsvert á annan milljarð kr. Þeir bentu á að framlög Jöfnunarsjóðs næmu allt að 55% af tekjum minnstu sveitarfélaganna þannig að þessi skerðing um 260 millj. kr. væri verulegt högg fyrir einstök sveitarfélög.

Þriðjungur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er bundinn í margvíslegum verkefnum, en afgangurinn fer til sveitarfélaganna eftir höfðatölu.

Þeir töldu að skerðingin væri um það bil 1000 kr. á mann í sveitarfélögunum og það væri sérstaklega alvarlegt að þessi skerðing kæmi nú eftir að sveitarfélögin hefðu gengið frá fjárhagsáætlunum sínum. Þeir sögðu að Jöfnunarsjóðurinn hefði þegar gengið frá greiðslum til sveitarfélaganna miðað við fyrri fjárlagatölur þannig að sjóðurinn yrði nú að lækka þær tölur sem hann greiddi einstökum sveitarfélögum það sem eftir væri ársins. Sem dæmi var nefnt að skerðingin nemur um 15 millj. kr. á Akureyri, en fjárhagsstaða Akureyrar væri á ýmsa lund erfiðari en annarra sveitarfélaga. Þar yrði ekkert eftir til eignabreytinga eftir þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin er að grípa til í þessu frv.

Talið var að velta sveitarfélaganna næmi 12,5–13 milljörðum kr. Þar af væru 20% til eignabreytinga að meðaltali yfir landið eða um 2,6 milljarðar kr. Skerðing Jöfnunarsjóðsins næmi því um 10% niðurskurði af framkvæmdagetu sveitarfélaganna.

Talsmenn sveitarfélaganna lögðu áherslu á að ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú um skerðingu á Jöfnunarsjóðnum væri „rothögg“, eins og þeir orðuðu það, á samskipti ríkis og sveitarfélaganna eftir það sem á undan væri gengið.

Það er ekki of mikið sagt að gagnrýni sveitarstjórnarmanna á frv. var harðari en frá nokkrum öðrum aðila sem kom á fund nefndarinnar og er þá langt til jafnað.

Ég vil einnig geta þess að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir því að það verði rætt við Samband ísl. sveitarfélaga um að sveitarfélögin skeri niður hjá sér framkvæmdir. Það kom fram í máli forráðamanna sveitarfélaga að sá fundur væri óþarfur. Í rauninni væri búið að búa svo um hnútana að sveitarfélögin yfirleitt hefðu ekkert til framkvæmda þannig að það væri ástæðulaust að eyða tíma í fundahöld til að skera þær framkvæmdir niður eftir að ríkisstjórnin hefði tekið þessa ákvörðun um skerðingu á fjárhag sveitarfélaganna. Eina sveitarfélagið sem eitthvað ætti eftir í þessu skyni væri Reykjavík og eðlilegast að ríkisvaldið og ríkisstjórnin sneri sér beint að borgarstjóranum í Reykjavík með þetta mál.

Þá komu á fund nefndarinnar fulltrúar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Þeir skýrðu frá því að niðurskurðurinn á framlögum til Byggingarsjóðs ríkisins kæmi sérstaklega niður á framkvæmdalánum þessa árs sem væri eini lánaflokkurinn sem ekki hefði þegar verið tæmdur og meira en það með lánsloforðum. Þessi lán hafa ekki síst runnið til sveitarfélaganna á undanförnum árum.

Þeir kvörtuðu undan því að lífeyrissjóðirnir hefðu ekki gengið frá kaupsamningum á skuldabréfum sem skyldi. Þannig væru aðeins 54 sjóðir af 76 búnir að ganga frá skuldabréfakaupum fyrir árið 1989 og aðeins 33 fyrir árið 1990.

Þeir skýrðu frá því að forgangshópar sem sæktu um núna gætu fengið afgreiðslu sinna mála þegar komið væri fram á árið 1990; allt árið 1989 væri upppantað!

Þá kom fram að frv. félmrh., sem samþykkt var með miklum látum hér fyrir áramótin, hefur aukið eftirspurn eftir húsnæðislánum þar sem forgangshópurinn var stækkaður frá því sem áður var, en fækkun umsókna vegna skerðingarákvæða var aftur á móti óveruleg.

Frá 13. mars 1987 til áramóta komu inn um 6000 umsóknir sem fá ekki lán fyrr en á árinu 1989. Gert er ráð fyrir 400–600 umsóknum á mánuði á þessu ári þannig að stofnunin liggi með óafgreiddar umsóknir sem nemi um 12 000 um næstu áramót! 12 000 óafgreiddar umsóknir um næstu áramót ef svo fer fram sem horfir.

Þá var í nefndinni ítarlega rætt um misvísandi upplýsingar sem fram komu frá fjmrn. og Þjóðhagsstofnun varðandi viðskiptahalla. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, taldi að það væru tálvonir að gera ráð fyrir minni viðskiptahalla en Þjóðhagsstofnun bendir á. Taldi hann líklegra að viðskiptahallinn yrði enn meiri. Hann minnti einnig á í því sambandi að útflutningsgreinum er þröngur stakkur sniðinn með ákvörðunum stjórnvalda og það gæti skapað vaxandi þrýsting á gengið þegar kæmi fram eftir ári.

Í lok nál. á þskj. 644 er síðan fjallað um einstök efnisatriði frv. og yfirlýsing birtist þar í lokin um afstöðu minni hl. til einstakra greina þess.

Ég taldi ekki ástæðu til þess að fara ítarlegar yfir þetta mál núna, virðulegi forseti, en það er annað sem ég vil hér nefna.

Í umræðum um þetta mál í gær óskaði ég eftir því að hæstv. félmrh. yrði viðstaddur þessa umræðu um málið. Því miður sá hún sér ekki fært að verða hér í gær, en er mætt hér nú og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það. Ég á við hana spurningu varðandi bókun þá sem hún að sögn hefur gert í ríkisstjórninni. Er hún með þeirri bókun að mótmæla meðferðinni á húsnæðiskerfinu eða Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eða hvort tveggja? Ég vil benda henni á það að það er algjörlega óvenjulegt að þegar ráðherra málaflokks setur sig upp á móti tiltekinni tillögu ríkisstjórnar þá skuli ráðherra úr öðru ráðuneyti, í þessu tilviki fjmrn., flytja tillögu í frumvarpsformi á Alþingi um að ganga yfir vilja fagráðherrans. Með þessu móti er hæstv. fjmrh. í rauninni að segja við hæstv. félmrh. að hún hafi lítið í ríkisstjórninni að gera, a.m.k. á meðan ákvörðun um þessi mál gengur yfir. Ég tel að það sé óhjákvæmilegt að fá upplýsingar um afstöðu hæstv. félmrh. í þessu efni og bendi á að hver ráðherra er stjórnvald á sínu sviði. Hæstv. félmrh. er stjórnvald húsnæðismála. Hæstv. félmrh. er stjórnvald Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Það er því jafngildi tillögu um vantraust á viðkomandi stjórnvald eða ráðherra ef annar ráðherra flytur tillögu um allt annað en fagráðherrann vill fallast á.

Hæstv. félmrh. hefur átt í miklum erfiðleikum í núverandi ríkisstjórn. Sl. haust reyndi hún að fá hér flutt frv. í þinginu varðandi breytingar á húsnæðislögum og gekk af því tilefni út úr ríkisstjórn um skeið eða fór í verkfall eins og það var kallað. Síðan hefur hæstv. ráðherra reynt hvað eftir annað að koma hér inn í þingið frv. til laga um kaupleiguíbúðir. Að lokum var það lagt fram hér í þinginu. En þegar umræður fara fram um málið í Nd. í gær kemur það í ljós að stjórnarflokkarnir, samstarfsflokkar hennar, eru á móti frv.

Síðan lýsir hæstv. fjmrh. því yfir fyrstur manna hér á hv. Alþingi að nú sé það ætlunin að taka húsnæðismálin í hendur sérstakrar nefndar vísra manna, en nefndin sé undir forustu hv. þm. Kjartans Jóhannssonar. Hæstv. fjmrh. upplýsir að nefndin eigi að skila af sér innan tíu daga, þ.e. innan níu daga frá og með deginum í dag að telja miðað við yfirlýsinguna í gær.

Síðan gerist það eftir allar þessar greiningar, búið að skipa nefnd til að fara í málaflokkinn með þessum hætti, kaupleigufrv. aftur og aftur búið að valda „krísu“ í ríkisstjórninni, frv. í haust orðið til þess að hæstv. ráðherra hefur neyðst til þess að ganga út úr stjórninni um skeið, ofan á allt þetta eru hér flutt frv. sem samkvæmt fréttum sem við höfum úr fjölmiðlum hæstv. ráðherra er á móti. Þetta er auðvitað hrikaleg meðferð á hæstv. ráðherra og málaflokki hennar og ég votta henni samúð mína í þeim efnum. Það er kannski ekki sérkennilegt að niðurstaðan sé þessi þegar formaður og varaformaður Framsfl., formaður og varaformaður Sjálfstfl. fá að sinna málinu en varaformaður Alþfl. kemst þar hvergi nærri þegar um málið er fjallað á undirbúningsstigi. Þar er kallaður fyrir yfirembættismaður Alþfl., hæstv. viðskrh., fyrrv. þjóðhagsstjóri.

Ég óska eftir því að hæstv. félmrh. geri þingdeildinni grein fyrir því hvernig hún hyggst bregðast við þessari framkomu og hvernig sú bókun er sem hún birti ríkisstjórninni í gær.