02.03.1988
Efri deild: 64. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5300 í B-deild Alþingistíðinda. (3537)

317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Í umræðunni hér í hv. deild í gær þótti hæstv. viðskrh. nauðsynlegt að benda á að hv. 7. þm. Reykv. Svavar Gestsson hefði gerst málsvari útgerðarauðvaldsins hér í hv. deild (Gripið fram í.) og ég heyri að hv. þm. Halldór Blöndal undirstrikar það að þm. hafi gert það. Frá mínu sjónarmiði ber að fagna því að hv. þm. hafi skilað þessari umræðu á þann veg að hann hafi verið tilbúinn að taka málstað sjávarútvegs á Íslandi og þá fyrst og fremst þeirrar greinar sjávarútvegs sem nú stendur hvað verst, þ.e. fiskvinnslunnar.

Það væri aftur á móti ansi gaman að vita hvernig hæstv. viðskrh. eða hæstv. fjmrh. vill skilgreina þetta útgerðarauðvald á Íslandi í dag, jafnvel þótt við förum svolítið aftur í tímann og litum til þeirra aðila sem fást við það að verka fisk á Íslandi og gera út, hvort ætti endilega að kynna þann hóp manna og þeirra fyrirtækja sem eitthvert sérstakt auðvald.

Það er nú svo að líklegast mun meiri hluti íslenskrar fiskvinnslu vera í hendi félagslegra aðila. Hér í Reykjavík er jafnvel stærsta fyrirtæki á landinu í fiskvinnslu, Grandi hf., þó að hann beri það nafn, að meiri hluta til í eigu Reykjavíkurborgar, hún mun vera með 70% eignarhlutfall, Útgerðarfélag Akureyringa, að meginhluta til í höndum Akureyrarbæjar, Fiskiðjusamlag Húsavíkur, Samvinnufélag útgerðarmanna á Neskaupstað, þó að það heiti núna Síldarvinnslan í Neskaupstað, og svo má áfram telja. (Gripið fram í.) Já, hv. þm. Meginhluti frystihúsa sem eru í samtökum fiskvinnslustöðva Sambandsins er í félagslegri eign. Eigum við nú að kalla þetta endilega útgerðarauðvald? Mundi hæstv. fjmrh. hafa kallað Samvinnufélag útgerðarmanna á Ísafirði, sem var blómlegt fyrirtæki og jafnvel stærsta útgerðarfyrirtæki á Ísafirði um nokkurn tíma og sérstakan tíma, auðvald, eða Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, sem ég vona að hann vilji kalla samflokksmenn sína, þá sem stóðu fyrir rekstri þessara fyrirtækja fyrrum, útgerðarauðvald? Það held ég að sé af og frá.

En það hefur ýmislegt breyst í þjóðfélaginu. Það hefur kannski einmitt það breyst að flokkarnir hafa tekið mismunandi afstöðu til uppbyggingar atvinnufyrirtækja eins og kemur fram í því þegar hæstv. viðskrh. talar um fiskvinnslu og útgerð á Íslandi sem eitthvert sérstakt auðvald og auðvald sem sé óeðlilegt að hv. þm. Svavar Gestsson taki upp hanskann fyrir. Ég endurtek að þessi atvinnugrein er að stórum hluta til í félagslegri eign. Ég tel að þegar við erum að ræða um lífskjör á Íslandi, verið er að fjalla um nýgerða kjarasamninga og hvernig þeir geti staðist og hvernig launakjör á Íslandi verði í framtíðinni, þá byggist það fyrst og fremst á því hvernig stjórnvöld í landinu standi að því að tryggja þessum undirstöðuatvinnuvegi okkar rekstursgrundvöll til að skaffa því fólki sem við hann vinnur mannsæmandi laun. Því miður eru þau laun, sem samið hefur verið um í þeim samningum sem nú voru gerðir, ekki á þann veg að við getum lýst því yfir að við teljum þau sæmandi laun fyrir það fólk sem vinnur við þennan atvinnuveg. Því miður ekki. Það er vegna þess að stjórnarherrarnir hafa ekki staðið betur í stykkinu en raun ber vitni við að tryggja þessum undirstöðuatvinnuvegi rekstursgrundvöll. Gæti það verið af því að þessi undirstöðuatvinnuvegur er ekki auðvaldið í landinu? Ég hef því miður grun um að það sé vegna þess. Við höfum fundið fyrir því að málsvarar fjármagnsins, sem flestir halda sig í Sjálfstfl., hafa á undanförnum árum, sumir hverjir, ég ætla að undirstrika að það eru ekki allir, látið hjá líða að halda uppi sókn og vörn fyrir þessa atvinnugrein. Það má vera að það hafi, ef við förum dálítið aftur í tímann, verið tímamót í sambandi við afstöðu Sjálfstfl. til þessara hluta með nýsköpunarstjórninni þegar góði hluti Sjálfstfl. með Sósíalistaflokki og Alþfl. gerði það stórátak í uppbyggingu sjávarútvegsins á Íslandi sem þá var gert og lagði grunninn að félagslegri uppbyggingu þessa atvinnuþáttar.

Ég held því miður að Sjálfstfl. hafi aldrei tekið reglulega vel upp hanskann fyrir sjávarútveginn síðan þetta gerðist, því miður. Það hafa verið fjármagnseigendurnir, fjármagnsbraskararnir sem hafa átt hug flokksins. Það er svo frekar nöturlegt þegar það gerist, jafnvel þó Alþfl. sé í stjórn með Sjálfstfl., að Alþfl. fer að vinna á svipuðum grunni. Hann telur það ekki lengur skyldu sína að tryggja að þessi atvinnurekstur standi sig, tekur ekki tillit til þess að þessi atvinnurekstur er félagslega uppbyggður. Það er undirstaða þess að við lifum sæmilegu lifi í þessu landi og að launakjör séu mannsæmandi að þessum atvinnuvegi séu tryggð almennileg rekstrarkjör. Það hefur því miður ekki gerst og gerist ekki þó að það lagafrv. sem hér er til umræðu verði samþykkt. Það er nokkuð langt frá því. Það mun ekki aðeins vera skoðun okkar alþýðubandalagsmanna heldur er það, miðað við það sem maður les í blöðum og heyrir í öðrum fjölmiðlum, álit flestra þeirra sem við þennan atvinnuveg fást að hér sé að meginhluta til gengið of stutt, of lítið að gert.

Um þetta má halda nokkuð langa ræðu, en ég ætla að geyma mér það, láta það eiga sig nú, en aðeins að fara nokkrum orðum um þá punkta sem í frv. eru taldir aðgerðir til að bæta hag útflutningsgreina.

Fyrstu tveir punktarnir, þ.e. að uppsafnaður söluskattur skuli endurgreiddur og fallið skuli vera frá því að heimta launaskatt af launum í fiskvinnslu, eru þannig að núverandi hæstv. ríkisstjórn taldi nauðsynlegt í sumar og í haust að breyta því að söluskattur yrði endurgreiddur og að fiskvinnslan væri launaskattsfrí, taldi nauðsynlegt, á þeim tíma sem viðurkennt var að fiskvinnslan væri jafnvel komin í mínus í sumar, þegar söluskatturinn var tekinn af, besta lagi stæði á núlli, að breyta stöðu fiskvinnslunnar á þann veg að þetta, sem var frá því í samningunum 1985 í þjóðarsáttinni, yrði fellt niður og sjávarútvegurinn fengi ekki endurgreiðslu söluskattsins. Það er í sjálfu sér nokkuð merkilegt að ríkisstjórnin skuli koma svo eftir nokkra mánuði og segjast vera að lagfæra stöðu fiskvinnslunnar með því aðeins að breyta því sem áður hafði verið frá henni tekið. Það var tekið frá henni við þær aðstæður, miðað við fyrri rekstursgrundvöll fiskvinnslunnar og þá samninga sem gerðir voru 1985 þegar dollaragengi mun hafa verið í rúmum 42 kr., þegar dollarinn var kominn í ágúst í sumar líkast til niður í 38 kr. Þá var talið nauðsynlegt að bæta við þessum þætti.

Og það var ekki nóg með það heldur var á haustþinginu samþykkt að koma með launaskatt, jafna stöðu atvinnugreina í landinu. Það var talið sjálfsagt að sjávarútvegurinn tæki þátt í því að borga launaskatt eins og aðrar atvinnugreinar og það var eitt af því sem ríkisstjórnin taldi réttlætismál. Það réttlætismál fýkur hér og hv. þm. Halldór Blöndal sagðist vera mjög feginn að fá að greiða atkvæði með því að þetta réttlæti væri ekki lengur til staðar.

Þriðji punkturinn er um það að skuldum sjávarútvegsfyrirtækja við ríkissjóð og greiðslum vegna lána ríkissjóðs, sem afgreidd voru frá Fiskveiðasjóði 1984, væri breytt í lán til lengri tíma. Áætlaðar skuldbreytingar þær sem hér um ræðir létti greiðslubyrði þeirra fyrirtækja sem í hlut eiga í málinu um 370 millj. kr. á árinu 1988. Þetta er góðra gjalda vert, en hvers eiga hinir að gjalda og hvers vegna var ekki hugað að þeim sem þurftu að taka skuldbreytingalán á sama tíma hjá sínum viðskiptabönkum, höfðu verið góðir greiðendur ríkissjóðs og opinberra gjalda, reynt að standa sig betur á þeim þætti en öðrum, en stóðu frammi fyrir því að þurfa að fá konverteringarlán til að bæta stöðu sína á öðrum sviðum? Ég tel að til þess að ekki sé verið að mismuna aðilum í fiskvinnslunni hefði hæstv. ríkisstjórn átt að sjá til þess að bankakerfið í landinu væri tilbúið að skuldbreyta lánum sem tekin voru á þessum tíma á nákvæmlega sama hátt og gert er með ríkissjóðslánin. Annars er verið að mismuna og raunverulega verið að mismuna þeim sem stóðu sig vel gagnvart ríkissjóði og sveitarfélögum á tímabilinu fyrir 1984 og 1985, þeim sem reyndu að standa í stykkinu gagnvart opinberum aðilum, frekar en að leysa málin gagnvart öðrum viðskiptamönnum. Þeir fá enga fyrirgreiðslu frá hæstv. ríkisstjórn nú á þessum vettvangi.

Svo er talið upp að það skuli lækka vexti um 0,25% á afurðalánum, dollaralánum. Vitaskuld er allt af því góða sem heitir lækkun á þessum vettvangi en ekki finnst mér neitt sérstaklega stórt skref stigið þarna og hefði mátt vera meira. Það er broslegt þegar ríkisstjórnin fer að hæla sér af því og telur það eitt af aðgerðum til að bæta hag útflutningsatvinnuveganna að nú skuli viðskiptabönkunum gert að vera með svipuð gjöld gagnvart afurðalánum, kostnað við töku afurðalána og var á árinu 1987. Óskaplega mikil aðgerð er þetta. Það er naumast. Það er furðulegt að bönkunum skuli líðast við aðstöðu eins og var á síðasta ári, án þess að væri hreyft við hönd eða fót, að hækka gjöld. Það kemur reyndar ríkisstjórninni til góða á þann veg núna að hún getur hælt sér af því að láta þá ekki komast upp með það.

Það má segja að nú komi rúsínan í pylsuendanum í sambandi við bjargráðin í sjávarútveginum. Og sú rúsína er þannig, með leyfi forseta: Seðlabanki mun beina því til bankanna að þeir leysi með sveigjanlegum hætti rekstrarvandamál þeirra fyrirtækja sem þurfa á afurðalánafyrirgreiðslu umfram 75% af verðmæti birgða að halda.

Ja, nú er langt seilst um. Hér er vitaskuld lítið verið að gera annað en að reyna að lengja lífdaga fyrirtækja sem hafa erfiðan rekstrargrundvöll, og þau verða mörg eftir þetta, án þess að nokkuð sé verið að gera. Að lyfta lánum út á afurðir upp fyrir 75% er aðgerð sem ég held að flestir telji algjöra neyðarráðstöfun. Ef ekki er hægt að tryggja fyrirtæki rekstursgrundvöll á annan máta en þann að hækka lán út á afurðalánabirgðir þeirra held ég að sé til lítils unnið. Vitaskuld koma slíkar lánahækkanir í bakið á fyrirtækjunum þegar þau selja sínar afurðir. Það sem skilast heim eftir sölu verður minna, staða fyrirtækisins jafnvond og jafnvel verri eftir en áður.

Það má segja að það sé ekki aðeins eitt sem sé lítils gilt í þeim punktum sem hér eru taldir heldur fleira en eitt og jafnvel fleira en tvennt. Í lokin kemur svo punkturinn um olíuverðslækkun 1. mars. Getur verið að ríkisstjórnin telji sér það til ágætis og telji það veigamikið atriði í því sem verið er að gera hér og gera þarf í sambandi við rekstursafkomu sjávarútvegsins að það sé viðurkennd sú staðreynd að olíuverð hefur lækkað? Vitaskuld hefði þessi lækkun komið hvort sem ríkisstjórnin hefði flutt þetta frv. á hv. Alþingi núna eða ekki. Það var ekki hægt að ganga fram hjá þeirri verðlagsþróun sem átt hefur sér stað að undanförnu í sambandi við lækkun á olíu.

Svona má reyndar áfram telja. En hitt er kannski verst að það er kominn 2. mars. (EG: Þriðji á morgun.) Og 3. á morgun. En það hefur verið vitað, eins og hæstv. sjútvrh. sagði í ræðu sinni í gær, að við höfum staðið frammi fyrir því með fiskvinnsluna að vandamál hennar hafa verið til staðar undanfarna mánuði. Þetta hefur blasað við í allt of langan tíma og ríkisstjórnin hefur ekki verið tilbúin að gera eitt eða neitt. Staða vinnslunnar hefur versnað dag frá degi. Ýmsir aðilar í þjóðfélaginu hafa hagnast á þessu á meðan byrðar sjávarútvegsins hafa verið að þyngjast. Vitaskuld hafa þeir sem höfðu peninga á milli handanna og gátu notfært sér það að leysa út erlendar vörur, nota erlendan gjaldeyri, hagnast á því að það væri þarna bið. Það vissu allir strax í haust að það hlaut að koma til gengisfellingar hvort sem hún væri eins og hér er lagt til eða er orðin eða meiri og menn bjuggu sig undir þetta. En fiskvinnslan þurfti að bera þennan bagga og hefur á undanförnum mánuðum verið að éta upp sína eiginfjárstöðu.

Þetta hefur fyrst og fremst bitnað á landsbyggðinni og verið skattur sem landsbyggðin hefur orðið að borga til eyðslunnar á suðvesturhorninu.

Aðeins til viðbótar: Það hefur nokkuð verið talað um að það væru mikil vandræði í fiskvinnslu og sjávarútvegi hvað eiginfjárstaða margra fyrirtækja í þeirri grein væri vond og hefur hún ekki batnað síðustu mánuði. Það hefur jafnan verið látið fylgja að þyrfti að laga þessa eiginfjárstöðu. Hverjir ætli að séu tilbúnir í dag að leggja fjármagn sitt í fiskvinnslu á Íslandi þegar við stöndum frammi fyrir þeirri rekstrarafkomu sem nú er? Þegar verið er að tala um að þetta þurfi að gera er eins og menn ætlist til þess að eigið fjármagn í fyrirtækjunum þurfi ekki að bera vexti, þurfi ekki að skila neinum arði, menn eigi að hafa eiginfjármagnið í fyrirtækjunum aðeins til að geta hlaupið upp á um tíma eins og núna til að éta það upp. Er líklegt meðan hugsunarháttur landsfeðranna er á þann veg að nokkur sé tilbúinn að leggja sína eigin peninga í fyrirtæki eins og fiskvinnslu? Ég get ekki ímyndað mér það. Ég held að menn hljóti að ætlast til þess að eigið fjármagn í fyrirtæki þurfi að skila á lengri tíma, ég er ekki að segja að það þurfi að gerast á hverju ári en á lengri tíma, svipuðum arði, helst betri arði en fæst á innlánsmarkaði lánakerfisins eða bankanna. Hvenær skyldi sú staða hafa verið uppi í íslenskum sjávarútvegi? Það hefur a.m.k. ekki verið á tímabili núverandi ríkisstjórnar og ég held ekki heldur á tímabili þeirrar ríkisstjórnar sem skilaði af sér í hendurnar á þeirri ríkisstjórn sem núna situr.