02.03.1988
Neðri deild: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5321 í B-deild Alþingistíðinda. (3551)
278. mál, sálfræðingar
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Á 108. löggjafarþingi Íslendinga var flutt till. til þál. um könnun á áhrifum lögbundinna forréttinda til atvinnurekstrar og vinnu. Flm. þessarar till. voru á sínum tíma Friðrik Sophusson, Guðmundur J. Guðmundsson, Karl Steinar Guðnason, Stefán Benediktsson og Páll Pétursson.
Ég vil, með leyfi forseta, leyfa mér að lesa þáltill. eins og hún var samþykkt, en ekki þann upprunalega texta sem var í tillögunni ef þar skyldi vera einhver munur á, því að hin samþykkta þáltill., sem var samþykkt á Alþingi 22. apríl 1986, lýsir vilja þingsins í þessum efnum. Vilja menn endalaust halda áfram að hólfa niður forréttindi manna til starfa í landinu og hvaða áhrif hefur það? Með leyfi forseta vil ég lesa þá þáltill. sem samþykkt var:
„Þingsályktun um könnun á áhrifum lögbundinna forréttinda til atvinnurekstrar og vinnu.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna áhrif lögbundinna forréttinda, m.a. einkarétt til tiltekinna starfa eða atvinnurekstrar. Í könnun þessari skal einkum leitast við að varpa ljósi á þýðingu einkaréttar eða lögbundinna forréttinda á stöðu þeirra er slíks réttar njóta, áhrif þessa á verðlag og hagsmuni neytenda.
Könnuninni skal einnig ætlað að leiða í ljós áhrif lögbundinna takmarkana af þessu tagi á tækniþróun, hagvöxt og atvinnustig. Skýrsla um niðurstöðu könnunarinnar skal lögð fyrir Alþingi.“
Ég vil lýsa því yfir að ég tel að Alþingi Íslendinga hafi nú þegar gengið allt of langt í að samþykkja ýmis forréttindi fyrir starfshópa og það sé farið að skaða þetta þjóðfélag. Auðvitað hlýtur menntmrn. á hverjum tíma eða önnur ráðuneyti að geta valið úr þá umsækjendur sem þeir telja hæfasta til að gegna hinum ýmsu störfum og þar með metið þeirra menntun á eðlilegan hátt. En ég efa að það sé verjandi að menn geti í kjarasamningum farið að panta einhverja sérstaka sérfræðiviðurkenningu á sig. Hvar endar þetta? Hversu langt á að ganga? Mér finnst það óvirðing við Alþingi Íslendinga ef sú ríkisstjórn sem nú situr framkvæmir ekki þessa könnun og leggur hana fyrir þingið. Og ég skora á þá ráðherra sem hér eru að taka þetta mál upp í ríkisstjórninni og fara fram á það að sú þáltill., sem samþykkt var 22. apríl 1986 og fjallar um þetta mál sem hér er á dagskrá og mörg önnur hliðstæð, verði framkvæmd.
Ég þarf ekki að hafa um þetta langt mál en ég hygg að þeir sem samþykktu þessa þáltill. á sínum tíma hafi ekki verið í neinum vafa um það að við séum komnir allt of langt í þessum efnum og það er vandséð hvar verður stöðvað. Hver stéttin eftir aðra heimtar múra í kringum sig út á það að þeir séu þeir einu sem hafi vit og þekkingu til að gegna ákveðnum störfum.