02.03.1988
Neðri deild: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5352 í B-deild Alþingistíðinda. (3559)
293. mál, áfengislög
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég hjó eftir því að hæstv. forseti tók það fram í upphafi fundar í dag að hann gerði ráð fyrir því að haldið yrði áfram þingfundum þar til dagskrá yrði tæmd og ekkert ætla ég út af fyrir sig að hafa neitt á móti því og vil ekki vera kenndur við það að tefja umræður, enda þótt ég biðji hann nú fyrir það núna að setja mig á mælendaskrá.
Ég vil aðeins vekja athygli hans á því, sem ég veit að hann vill, að nauðsynlegt er að góð samvinna sé um þingstörfin og nú á þessi hv. deild í vændum með fullri vissu fyrst og fremst að byrja á fundi kl. 10 í fyrramálið í sameinuðu þingi og um eittleytið að því er gert er ráð fyrir verði hafin umræða um mjög mikilsvert ríkisstjórnarfrumvarp og er nú skaði að enginn af oddvitunum sjálfum, sem hér eiga stólana ellefu allt um kring, skuli vera sem fjarlægastir því að ég trúi að þeir hafi áhuga á framgangi þess máls.
En forseti hlýtur að gera ráð fyrir því þess vegna, þar sem mér er tjáð að áhersla sé lögð á að afgreiða málið fyrir helgi, að við eigum fram undan kvöldfundi bæði fimmtudag og föstudag. Það er ekkert of í lagt að ætla e.t.v. að afgreiðsla þess máls nái fram á laugardag. Hann ræður því auðvitað og til er ég að hafa kvöld- og næturfund nú í kvöld, þann fyrsta af þremur eða svo sem þarf að halda fyrirsjáanlega. En ég spyr nú upp á liðkun og góða samvinnu: Gætum við e.t.v., af því sem ég hygg nú að ekki sé mjög langt eftir af umræðu um þetta mál, hugsað okkur að skjóta því inn í milli umræðna um það mál sem nú er þæft í Ed. og við væntanlega fáum til afgreiðslu hið fyrsta? Ég spyr að þessu án þess að ég sé að leggja eitt eða neitt til.