02.03.1988
Neðri deild: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5355 í B-deild Alþingistíðinda. (3564)
293. mál, áfengislög
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Þar sem nú hefur verið upplýst að margir þeir sem þurfa að vinna í sambandi við þetta mál verða erlendis í næstu viku og það verður því ekki til umfjöllunar þá, þeir hinir sömu eru flestir mjög uppteknir við að vinna að hinum stóru málum ríkisstjórnarinnar, sem nú eru til umfjöllunar í Ed. og koma hingað væntanlega á morgun og verða í vinnslu hinn daginn, þá sé ég ekki að hv. allshn. hafi nokkurn einasta tíma til að sinna frv. þessa dagana. Ég veit ekki betur en hv. formaður hennar og fleiri þm. sem um málið fjalla verði erlendis í næstu viku. Því sé ég ekki að það skipti nokkru að ræða málið í kvöld, því að það er ekkert komið á leiðarenda þó að 1. umr. ljúki. Mér finnst þess vegna það eina sem upp úr því hefst vera þetta: gagnvart þjóðinni mun það líta þannig út að hér séu þau jafnþung sitt á hvorri vogarskálinni í vinnu þingsins í kvöld, hin stóru efnahagsmál í Ed. og bjórmálið í Nd. Ég hefði haldið að það væri fremur hyggilegt að sleppa kvöldfundinum. Ég vildi ítreka þetta. En auðvitað hlíti ég úrskurði hæstv. forseta um þetta efni.