02.03.1988
Neðri deild: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5389 í B-deild Alþingistíðinda. (3579)
293. mál, áfengislög
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Þessi umræða hefur því miður farið með nokkuð dapurlegum hætti út í persónulegar orðahnippingar. Ég mun ekki skipta mér af því en ég leyfi mér að nefna tvennt, annars vegar það sem hv. 2. þm. Reykn. fór orðum um úr bréfi 133 sérmenntaðra lækna sem reyndar eru ekki sérmenntaðir í þeim fræðum sem sérstaklega fást við þá sem eru sjúkir vegna áfengisneyslu, heldur í ýmsum öðrum greinum. Hv. þm. gat um þá skoðun sem fram var sett í bréfinu og þessir læknar rituðu undir, að þeir teldu að hin virkasta vörn gegn aukinni heildarneyslu áfengis væri stjórnun á verðlagi. Þeir höfðu í bréfi sínu nefnt þetta og þeir vitnuðu m.a. til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, en 1. greinin í ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismalastofnunarinnar er einmitt um stjórnun á innflutningi og framleiðslu. Þeir létu hjá líða að nefna þá grein. Þetta vildi ég láta koma fram af því að hv. þm. vitnaði til þessara orða sem túlkuðu skoðun læknanna sem staðreynda. Þetta var skoðun þeirra en ekki staðreyndir því að gögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segja annað.
Hv. þm. nefndi í ræðu sinni að Grétar Sigurbergsson geðlæknir, sem er eini geðlæknirinn sem hefur skrifað þessu frv. til stuðnings með einhverjum hætti, leiddi að því líkur að með þeim bjór sem keyptur væri í Fríhöfninni og því sem farmenn flyttu og því sem smyglað væri til landsins væri heildarneyslan líklega svipuð og á Norðurlöndum. Ég vil aðeins nefna það sem ég held að mönnum sjáist yfir í þessu sambandi að á hinum Norðurlöndunum er líka heilmiklu áfengi smyglað til landanna þannig að þetta er ekki rétt viðmiðun. Þetta er heldur ekkert aðalatriði í málinu. Það sem er aðalatriði er þetta að það sem mér virtist hv. 2. þm. Reykn. byggja á sem upplýsingum var skoðun þessara umræddu lækna, en það liggja fyrir vísindalegar rannsóknir frá mörgum löndum og niðurstöður þeirra liggja fyrir í alþjóðlegum gögnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og það er hægt að útvega hv. þm. þessi gögn til úrvinnslu í nefndinni. Ef nefndin vill meðhöndla þetta mál sem heilbrigðismál eða taka mark á því hvaða þýðingu þetta hefði fyrir heilbrigðismál landsmanna, bæði heilsu einstaklinganna sem áfengisins neyta, tjónið sem slys valda, bæði á þeim sjálfum og öðrum, svo og tjón á munum. Þetta liggur fyrir og ég taldi upp þessi gögn og rit, mörg þeirra, hér í kvöld. Meginatriðið er þetta að þau leiða það í ljós að nýtt form áfengis bætist við þá neyslu sem fyrir er og það eykur heildarneysluna og það liggur fyrir margrannsakað að heildarneyslan eykur heildarvandann og fjölda þeirra sem eiga við vandamál vegna ofneyslu að stríða.
Hæstv. dómsmrh. kom og ræddi um þetta mál og ég heyri að hann spyr: Er hættan sem þessu er samfara svo mikil að það sé ekki tilvinnandi að koma á því aukna frelsi sem af samþykkt frv. leiddi? Ég spyr hæstv. ráðherra: Telur hann að hættan af því að keyra með ljóslausar bifreiðar í dagsbirtu sé meiri ... (Forseti: Ég vil minna hv. ræðumann á að þingsköp leyfa aðeins örstutta athugasemd. Ég gef honum kost á að ljúka máli sínu.) Hve löng telst örstutt athugasemd almennt í ræðum? (Forseti: Fimm mínútur munu vera nokkuð ríflegur tími.) Já, mig minnti að það væru 10 mínútur, hæstv. forseti. En ég vil aðeins ljúka þessari spurningu og svo skal ég láta þessu máli lokið. Telur hæstv. dómsmrh. að hættan af því að keyra ekki með ljósin á bifreiðum í dagsbirtu sé ekki meiri en svo, að það hefði ekki átt að skylda menn til að keyra með ljós? Þetta er nærtækasta dæmið um það að við settum lög sem takmarka frelsi til þess að verjast slysum í umferðinni. Hér erum við að setja lög sem við getum gengið út frá að muni fjölga slysum í umferðinni.