02.03.1988
Neðri deild: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5390 í B-deild Alþingistíðinda. (3580)

293. mál, áfengislög

Níels Árni Lund:

Herra forseti. Það er aðeins örstutt vegna þess að ég var ekki viss um að hv. 2. þm. Reykn., formaður allshn., hefði heyrt mál mitt áðan eða lokaorð minnar ræðu. Þau voru á þá vegu hvort nefndin hefði kannað eða hvort hún teldi koma til greina að setja inn í það frv. sem hér liggur fyrir til umræðu svonefnt sólarlagsákvæði sem mundi kveða skýrt á um það að ef tölulegar staðreyndir sýndu fram á aukna neyslu áfengis hér á landi eftir hugsanlega gildistölu laga um sölu áfengs öls, ef tölulegar staðreyndir sýndu á einhverju tilteknu árabili greinilega aukningu, mundu lög þessi þar með verða afnumin. Ég vildi koma þessu að. (ÓE: Ef ég má grípa fram í, þá munum við ræða það.) Þakka þér fyrir.