03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5393 í B-deild Alþingistíðinda. (3588)

267. mál, jöfnuður í verslun við einstök lönd

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Hæstv. forseti. Það er nokkuð erfitt að ráða af þessari fsp. hvað hv. þm. á við þegar hann spyr um það hvort ráðherra hyggist gera eitthvað til þess að jafna óhagstæðan mun sem er á innflutningi Íslendinga frá allmörgum löndum og útflutningi þeirra þangað. Síðan bætti hann við allmörgum viðbótarspurningum í fsp. sína sem gera málið mun skiljanlegra, þ.e. hann talaði þar um ýmsar almennar aðgerðir í okkar efnahagsmálum.

Ég lít svo á að hann sé ekki að leggja það til að tekin verði upp stýring á innflutningi og útflutningi heldur verði frjáls viðskipti áfram hornsteinninn í okkar utanríkisviðskiptastefnu eins og verið hefur um langan tíma. Það má segja að svokallaðir jafnkeypissamningar hafi verið felldir niður smátt og smátt og hinn síðasti var felldur niður við Sovétríkin árið 1975, enda höfðu Austur-Evrópuríkin sett fram óskir þar að lútandi um árabil og þeirra stefna var orðin sú að gera ekki slíka samninga við lönd Vestur-Evrópu.

Það er einnig rétt að benda á það að aðild okkar að EFTA og fríverslunarsamningur okkar við Evrópubandalagið hafa að geyma ákvæði sem gera okkur ókleift að beita innflutningshöftum til að beina viðskiptum til ákveðinna landa. Olíuvörur eru þó þar undantekning því samið var um sérstaka undanþágu vegna þeirra í báðum tilvikum. Það er því stefna þessarar ríkisstjórnar eins og fyrri ríkisstjórna að stefna að því að reyna að halda viðskiptunum í sem mestum jöfnuði á grundvelli almennra aðgerða og það má segja að jöfnuðurinn hafi aukist við hin einstöku lönd. T.d. er rétt að geta þess að innflutningur frá Efnahagsbandalagslöndunum á sl. ári var 52,1% af heildarinnflutningi, útflutningur 57,4%. Að því er EFTA-löndin varðar var innflutningur þaðan 20,7%, en útflutningur aðeins 8,2. Að því er Austur-Evrópu varðar var innflutningur þaðan 5,8% og útflutningur 4,7%. Að því er Bandaríkin varðar var innflutningur þaðan 7,1% og útflutningur 18,3. Að því er önnur lönd varðar var innflutningur þaðan 14,3% og útflutningur 11,4%.

Það má því segja að nokkuð gott jafnvægi ríki í þessum málum ef undan eru skilin annars vegar EFTA-löndin og þá sérstaklega Norðurlöndin og hins vegar Bandaríkin.

Ég held að það sé rétt að beina athyglinni að því að því er varðar Norðurlöndin að þau lönd eru með svipaða efnahagslega uppbyggingu og við og það er ekki mjög margt sem við getum selt þeim til viðbótar nema þá að komi til meiri efnahagssamvinna Norðurlandanna sem er búið að fjalla um á vettvangi Norðurlandaráðs um langan tíma, m.a. að efla þar heimamarkað og gera fjárfestingar í hinum ýmsu löndum frjálslegri, þ.e. að greiða fyrir fjármagnsflutningi og fjárfestingum milli Norðurlandanna. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að það er eitt af því sem gæti orðið til þess að auka jöfnuðinn að nýju. Um það er verið að fjalla á vettvangi Norðurlandaráðs og einnig hefur verið til umfjöllunar í ríkisstjórn frv. til laga um fjárfestingarstefnu.

Ég tek hins vegar undir það með hv. þm. að það er ástæða til þess að hafa miklar áhyggjur af hinum almenna ójöfnuði, þ.e. viðskiptahalla landsins, nú eins og stendur. Þar er verið að gera ákveðnar ráðstafanir sem birtast m.a. í aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem nú er verið að ræða hér á hv. Alþingi. Þar er stigið skref til þess að draga úr viðskiptahalla. Það skref þyrfti að vera stærra, en ég vænti þess að hv. þm., miðað við þær áhyggjur sem hann hefur af þessum málum, muni styðja þá viðleitni ríkisstjórnarinnar hér á Alþingi.