03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5396 í B-deild Alþingistíðinda. (3591)
267. mál, jöfnuður í verslun við einstök lönd
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég get ekki á mér setið að standa upp og segja nokkur orð um þá furðulegu ræðu sem kom frá bæði hæstv. núv. utanrrh. eða „acting“ utanrrh. og hæstv. viðskrh. Ég vil heldur tala sem talsmaður frjálsrar verslunar og í framkvæmdastjórn verslunarráðs um áraskeið.
Að bjóða upp á það sem svar við fsp., sem hér liggur fyrir, að þær efnahagsráðstafanir sem nú er verið að gera og allar eru íþyngjandi fyrir fólkið í landinu, mjög svo íþyngjandi, og til háborinnar skammar fyrir ríkisstjórnina, að þurfa að grípa til sömu efnahagsráðstafana á nokkurra mánaða fresti. Efnahagsráðstafanir hafa verið gerðar í þessa veru fjórum sinnum á sjö mánuðum sem ríkisstjórnin hefur setið sem eins konar liður í því að jafna viðskipti við útlönd. Við hvern eruð þið að tala? Hverjum eruð þið að svara og hverju eruð þið að svara? Það er til háborinnar skammar að svona svör komi og það frá fagmönnum, að vísu sem aldrei hafa notað sitt fag til að vera beint í viðskiptum og vita ekkert hvernig þau ganga fyrir sig öðruvísi en á pappírnum.
Og segja að það sé ekki stefnt að því að hallalaus viðskipti séu við einstök lönd er hreinlega rangt. Ef þetta er stefna ríkisstjórnarinnar á ríkisstjórnin að fara frá því hún er fallin. Ríkisstjórnin er fallin. (HBI: Þetta er nú misskilningur Albert, mikill misskilningur.)