03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5407 í B-deild Alþingistíðinda. (3609)
307. mál, kosningarréttur Íslendinga erlendis
Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Erindi mitt í ræðustól er aðeins að taka undir með fyrirspyrjanda. Hér er ágætt mál á ferðinni sem þarf úrbóta við. Ég er ekki einn af þeim sem eru mikið erlendis en þó dálítið og ég hef hitt Íslendinga sem eru búsettir erlendis um stundarsakir og tek undir það að þetta mál brennur æðimikið á mörgum. Mönnum finnst þeir ekki njóta fullkominna mannréttinda, þeir sem geta hvergi kosið. Þó að ég hafi ekki víða farið verð ég var við þetta í hvert skipti sem ég hitti Íslendinga á erlendri grund.
Ég vildi láta þetta koma fram og tel þarft að þessu máli sé hreyft á hv. Alþingi.