03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5407 í B-deild Alþingistíðinda. (3611)

307. mál, kosningarréttur Íslendinga erlendis

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Ég fagna þessum umræðum og þakka þeim sem tóku þátt í þeim og allar þær ágætu ábendingar sem hér komu fram. Það var aðeins vegna síðustu orða hæstv. dómsmrh., sem vitanlega voru sögð í léttum dúr, að það er ekki mín skoðun að sjálfsögðu að ættjarðarástin endist aðeins í átta ár þó að ég nefndi þá tölu. Hún var nánast sett fram sem tala sem væri hugsanleg. Það hefur heyrst nefnd þessi tala, átta ár, átta til tíu ár, og ég held að það sé ekkert fráleit viðmiðun. Ég frábið mér því að vera álitin þeirrar skoðunar að ættjarðarástin endist ekki lengur en það.