03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5414 í B-deild Alþingistíðinda. (3619)

297. mál, fiskimjölsverksmiðjur

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram vegna orða hv. fyrirspyrjanda að sjútvrn. ásamt fleirum hvatti á sínum tíma mjög til þess, með réttu eða röngu, að verksmiðja Stranda hf. yrði reist til þess að gerð yrði marktæk tilraun í þessu skyni. Það fór eins og vitað er og Fiskveiðasjóður varð fyrir nokkru tjóni af þeim sökum. Sú tilraun tókst því miður ekki af ýmsum ástæðum sem ég ætla ekki að rekja nánar hér, en nú er sem betur fer í augsýn önnur marktæk tilraun, þ.e. hjá fiskimjölsverksmiðjunni í Grindavík, þannig að með þeim hætti hafa þær athuganir sem hafa verið gerðar á undanförnum árum, sem er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að eru margar, orðið til allnokkurs gagns. Í þessu sambandi er rétt að benda á að gufuöflunin er dýr, en þar sem farið var í gufuöflun af öðrum ástæðum, fyrst og fremst í Svartsengi, mynduðust möguleikar til að nýta þá miklu umframgufu sem þar var til þessara hluta, en hæpið að það hefði verið ráðist í að afla gufu sérstaklega í þessu augnamiði því að það er almennt ekki talið vera rétt í íslenskum sjávarútvegi að ráðast í slík ævintýri eins og oft hefur verið gert á orkusviðinu. En það má e.t.v. segja að íslenskur sjávarútvegur muni njóta nokkuð þeirrar ævintýramennsku sem rekin hefur verið á ákveðnum stöðum á Suðunesjum og hér hefur verið til meðferðar á Alþingi og ríkissjóður orðið fyrir miklu tjóni af.