03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5415 í B-deild Alþingistíðinda. (3621)
298. mál, einkaleyfi og mynsturvernd
Iðnaðarráðherra (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda eru núgildandi lög um einkaleyfi 65 ára gömul. Þetta eru lög nr. 12 frá 1923 og hafa litlar breytingar verið á þeim gerðar. Þróun á alþjóðavettvangi í einkaleyfarétti hefur verið mjög hröð á undanförnum áratugum og án þess að lögunum hafi verið breytt í samræmi við þá þróun. Vegna alþjóðlegs eðlis einkaleyfa og einkaleyfaverndar er hins vegar mjög nauðsynlegt fyrir okkur að fylgja slíkri alþjóðlegri þróun. Má benda á ýmsa annmarka á gildandi lögum út frá því sjónarmiði.
Nú er spurt: Hvenær má vænta þess að fram komi á Alþingi frv. að nýjum lögum um einkaleyfi og mynsturvernd? Hinn 18. nóv. sl. fól ég þremur sérfróðum mönnum um einkaleyfi, þeim Gunnari Erni Harðarsyni, Jóni L. Arnalds og Þorgeiri Örlygssyni, að vinna að úttekt vegna endurskoðunar á lögum um einkaleyfi, upplýsingasöfnun og fyrstu tillögugerð og í framhaldi af því samningu frv. og reglugerða. Var þess sérstaklega óskað að haft yrði samráð við samtök og stofnanir sem einkum láta sig þessi mál varða. Þess var óskað að 1. áfanga þessa verks yrði skilað 1. febr. 1988. Greinargerð þremenninganna er dags. 29. jan. sl. og niðurstöður þeirrar greinargerðar eru þessar:
1. Samið verði nýtt frv. til einkaleyfalaga er hafi í meginatriðum að leiðarljósi þá stefnu við einkaleyfavernd sem valin var í Danmörku við endurskoðun einkaleyfalöggjafar þar. Lögð verði sérstök áhersla á að rýmka svið laganna og afmarka gildissvið skýrar frá því sem nú er. Settar verði nýjar reglur um verndartíma, auglýsingar og skilyrði fyrir einkaleyfavernd. Einnig verði settar ítarlegar reglur um meðferð og afgreiðslu einkaleyfa eða einkaleyfisumsókna, andmæli og úrskurð ágreiningsefna. Samhliða verði samin drög að reglugerð um nánari framkvæmd laganna.
2. Jafnhliða samningu nýs einkaleyfafrv. gerist Íslendingar fullgildir aðilar að PCT-samningnum, en PCT er skammstöfun fyrir Patent Cooperation Treaty. Þarf þá að taka afstöðu til þess hvort ákvæði þess samnings verði leidd í íslensk lög í hinum nýju einkaleyfalögum eða hvort það verði gert með sérstökum lögum.
3. Lögunum nr. 102/1961, um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd Parísarsamþykktina um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar, verði breytt þannig að Stokkhólmsgerð hennar hafi lagagildi hér á landi.
4. Samfara framlagningu frv. til nýrra einkaleyfalaga verði fyrirliggjandi frv. um mynsturvernd lagt fram.
5. Samið verði sérstakt frv. um stofnun sjálfstæðrar skrifstofu er annist einkaleyfa-, vörumerkja- og mynsturskráningar.
6. Samið verði frv. um hugverkalega réttarstöðu þeirra manna er vinna að uppfinningum í þjónustu annarra, en þetta nefndi hv. fyrirspyrjandi sérstaklega í sinni ræðu áðan.
Á þessar niðurstöður féllst ég og hef falið nefndinni að starfa áfram á þessum grundvelli. PCT-samningurinn, sem nefndur er, var gerður í Washington 1970 og fjallar um einkaleyfisumsóknir og eiga um 40 ríki aðild að honum. Aðild að þessum samningi auðveldar uppfinningamönnum að sækja um einkaleyfi samtímis í mörgum löndum. Það gerist með innlagningu svokallaðrar alþjóðlegrar umsóknar í heimalandinu. Uppfinningin fer síðan í alþjóðlega rannsókn og fær uppfinningamaðurinn skýrslu af henni, en hún er kölluð á ensku International Researeh Report. Sænska einkaleyfisstofnunin annast rannsókn PCT-umsókna fyrir Norðurlöndin. Eftir því hvort niðurstaða skýrslunnar er jákvæð eða neikvæð getur uppfinningamaðurinn valið milli þess að óska eftir því að umsóknin taki gildi í þeim aðildarríkjum PCT sem hann telur nauðsynlegt eða að draga umsóknina til baka. Aðild að PCT tekur þannig eingöngu til einkaleyfisumsókna. Veiting einkaleyfis er eftir sem áður í höndum einkaleyfisstofnana í hverju landi.
Með þessu, herra forseti, tel ég að svarað sé einnig 2. lið fsp. Samstarf er á milli einkaleyfastofnana á Norðurlöndum um ýmis málefni varðandi meðferð einkaleyfisumsókna og ýmislegt annað er varðar einkaleyfismál. Hins vegar er ekki á dagskrá sérstaklega norrænt samstarf um einkaleyfisrannsóknir. Virðist sem fsp. um slíkt sé á misskilningi byggð. Annars geri ég ráð fyrir að flytja nánari skýrslu um þetta málefni síðar á þessu þingi. Stefnt er að því að frv. til nýrra einkaleyfalaga verði tilbúið í október nk. og verður þá hægt að leggja það fram á haustþinginu.