03.03.1988
Sameinað þing: 55. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5421 í B-deild Alþingistíðinda. (3627)

316. mál, bætt vettvangsþekking þingmanna

Flm. (Unnur Sólrún Bragadóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um bætta vettvangsþekkingu þingmanna. Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að undirbúa skuli breytingu á starfi þingmanna, annarra en ráðherra, sem feli í sér að þingmönnum verði ár hvert skylt að starfa tvær vikur við almenn framleiðslu- eða þjónustustörf í sínu kjördæmi. Jafnframt skyldunni sé þetta réttur sem þingmanni ber. Þessar starfsvikur falli inn í starf þingmanna á jafneðlilegan hátt og viðvera á þingfundum gerir nú. Í þessu skyni verði sett á fót nefnd á vegum Alþingis til að undirbúa breytinguna. Nefndin starfi í náinni samvinnu við samtök launafólks og atvinnurekenda. Miðað skal við að nefndin skili áliti fyrir upphaf næsta þings.“

Greinargerð: „Menntun og fyrri störf þingmanna eru margs konar og því saman komin margháttuð reynsla á Alþingi. Það er þó sláandi að fáir þingmenn koma úr almennum framleiðslu- eða þjónustustörfum, störfum sem stór hluti íslensku þjóðarinnar vinnur. Margir þingmenn hafa einhvern tíma unnið þessi störf en það er þó langt um liðið hjá flestum. Það hefur margoft komið fram í tali þingmanna hve mikilvægt sé að bakgrunnur þeirra sé sem fjölbreytilegastur og að Alþingi endurspegli það samfélag sem best er það stjórnar. Til að svo geti orðið er nauðsynlegt að þingmenn afli sér reglulega þekkingar og reynslu á almennum framleiðslu- og þjónustustörfum, þeim störfum sem minnst eru metin og lægst eru launuð. Þeim er nauðsynlegt að vita af eigin raun hvaða kjör hinn almenni launamaður býr við og hvaða erfiði liggur að baki hverrar krónu er þeir ráðstafa. Hálfur mánuður skipti ekki sköpum, en gæfi þingmönnum tækifæri til að komast í nána snertingu við kjör hins almenna launamanns og kynnast viðhorfum hans.

Flm. álítur eðlilegt að þau fyrirtæki sem tækju þingmenn í vinnu greiddu þeim ekki laun, en að föst þingmannslaun breyttust þann tíma og í staðinn kæmu laun samsvarandi þeim er þeir hefðu fengið á viðkomandi vinnustað.

Að sjálfsögðu er líkamlegt atgervi þingmanna ærið mismunandi en eflaust tækist að finna störf sem flestir gætu ráðið við. Þá yrðu þeir þingmenn undanskildir þátttöku í starfsvikunum sem ekki hefðu heilsu til.“

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um bætta vettvangsþekkingu þm. Í grg. rökstyð ég lítillega ástæður þessarar till. og tel ástæðulaust að tíunda þau rök hér. Ég ætla mér þó að rökstyðja mál mitt eilítið betur í þeirri von að sem flestir hv. þm. sannfærist um ágæti tillögunnar og veiti henni brautargengi.

Reynslan hefur sýnt að við lítum á tilveruna þaðan sem við erum hverju sinni. Sem dæmi má nefna að þó svo við sjáum hungur víða um heim getum við ekki séð af nema 0,05% af þjóðartekjum okkar til hjálpar. Ef einhver hæstv. ráðherra okkar væri þar staddur fyndist honum trúlega eðlilegt að eyða mun meiru í þennan málaflokk. Sama má segja um afstöðu til landsbyggðarinnar. Hv. þm. geta talað fjálglega um nauðsyn á jafnvægi í byggðum landsins, en búandi í Reykjavík eru það hagsmunir þess svæðis sem oft verða ofan á í raun. Menn taka nefnilega sjaldnast afstöðu með málefnum nema þeir búi við aðstæðurnar sjálfir.

Vel stæðir Íslendingar hampa því mjög að nánast allir landsmenn óháð fjárhag og þjóðfélagsstöðu hafi stundað verkamannavinnu á skólaárum sínum. Margir þeirra fullyrða síðan að þeir þekki þess vegna vel til starfa og kjara verkafólks og nota þessa reynslu sína til að horfa fram hjá misréttinu og réttlæta sig og forréttindi sín.

Þm. er oft boðið að skoða fyrirtæki og alls kyns framleiðslutæki. Það getur vissulega verið spennandi og áhugavert að fara hraðferð með leiðsögumanni meðfram færibandi. En ef hv. þm. stæðu hálfan mánuð á sama stað við færibandið gerðu þeir sér e.t.v. betur grein fyrir óánægju þess sem þar stendur allan ársins hring fyrir um 35 þús. kr. á mánuði. Það var mér þörf lexía er ég vann sl. sumar í frystihúsi eftir langt hlé og varð hugmyndin þar að sannfæringu minni.

Herra forseti. Setu á Alþingi fylgir mikil ábyrgð. Það var því notalegt að fá hlýlegar viðtökur og ég settist andagtug til að hlýða á umræður á mínum fyrsta þingfundi. Ég varð þó satt að segja eilítið undrandi á þeim umræðum sem þar fóru fram um þær 1000 millj. sem flugstöðin nýja hafði farið fram úr kostnaðaráætlun. Mér skildist á þeim hæstv. ráðherrum sem lögðu orð í belg að vissulega væri þetta leiðinlegt mál, en því miður væri í raun enginn ábyrgur.

Annað er uppi á teningnum með þá verst settu í samfélaginu. Það er höfðað til ábyrgðartilfinningar þeirra og þeir eru látnir axla allar byrðar og afleiðingar lélegrar stjórnunar. En í þessu tilviki var engu líkara en deilan stæði um ómerkilegt óviljarúðubrot, svo lítið virtist mér hún snerta samvisku sumra.

En skyldu hæstv. ráðherrar gera sér grein fyrir erfiði almenns launafólks sem þurfti til að greiða umframkostnaðinn, upphæð sem svarar til 30 þús. mánaðarlauna verkamanns eða 2500 ársverka? Ég held varla. Þá hefðu þeir varla dirfst að láta iðnaðarmannaskara vinna langt fram á nætur vikum saman til að geta státað sig af stöðunni í kosningabaráttunni.

Ég hugsaði því sem svo að ef hv. þm. ynnu fyrir verkamannalaunum hálfan mánuð á ári og vissu að þeir þyrftu að vinna 60 þúsund sinnum það til að vinna fyrir flugstöðvarskekkjunni litu þeir þetta mál e.t.v. alvarlegri augum. Enn fremur veitti ég því athygli að þegar rætt var um þessa gríðarlegu fjárhæð var ekki minnst á hana sem verðbólguhvata í samfélaginu. En eigi almenn laun að hækka þó ekki sé nema um nokkrar krónur á tímann er óðara gripið til verðbólgusöngsins og margháttaðra mótaðgerða. Mér finnst að hv. þm. mættu hugleiða að fyrir þá fjárhæð sem hér um ræðir mætti hækka dagvinnulaun 5000 verkamanna um 50% í heilt ár.

Ég þykist þess fullviss og veit reyndar að viðbrögð hv. þm. við tillögu þessari séu ærið misjöfn. Einhverjir staðnæmast við „kómíska“ hlið málsins og er e.t.v. ekkert athugavert við það, en hv. þm. skulu vita að þessi till. er sett fram í fyllstu alvöru Alþingi til vegsemdar og virðisauka.

Þó svo að nokkrir hv. þm. hafi á árum áður unnið í almennum störfum milli þinga til að drýgja tekjur sínar veit ég að slíkt viðgengst hjá fáum nú. Þó finnast þeir hv. þm. sem sækja í þessi almennu illa launuðu störf einhvern tíma í sumarleyfi sínu og ætla ég að þeir muni glöggt skilja tillögu mína. Mér finnst ég finna fjarlægð þessarar stofnunar frá því sem mikilvægast er að gerast í samfélaginu, finnst vanta jarðsamband við samfélagsgrunninn.

Einhverjir munu eflaust tala um þegnskylduvinnu í þessu sambandi, en því mótmæli ég harðlega. Þetta yrði bara hluti af þingmannsstarfinu eins og hver önnur fundarseta. Þegnskylduvinna er samfélagsleg kvöð óháð því hvað einstaklingurinn starfar við en ekki starfsskylda eins og þetta mundi verða, starfsskylda sem tæki mið af sérstökum eiginleikum þingmannsstarfsins, þ.e. þeim að taka ákvarðanir um hagi fólks því til hagsbóta.

Öllum störfum fylgir einhver kvöð og þessi mundi fylgja þingmennskunni. Ég álít skipta miklu máli að kjörnir fulltrúar fólks kynnist vinnustöðum þeirra lægst launuðu í samfélaginu og að þeir reyni sjálfir hversu mikil vinna liggur að baki hverrar einnar krónu úr ríkiskassanum. Ég tel líka reyndar að þessar starfsvikur kæmu til góða á þann hátt að kjósendur kynntust annarri skemmtilegri hlið á umboðsmönnum sínum en þeir hafa átt að venjast hingað til, hlið sem ég er sannfærð um að mundi auka gagnkvæmt traust.

Þó nokkrir hafa dregið úr mér kjark. Mér hefur m.a. verið bent á að virðing hins háa Alþingis og mín yrði meiri ef þessi tillaga yrði jafnvel dregin til baka. Ég er að sjálfsögðu á öndverðum meiði, eins og ég tel mig hafa rökstutt hér áður, og álít að þeir er svo hugsa hafi jafnvel mestu þörfina á þessum starfsvikum.

Mér hefur verið tjáð að tillögur varaþm. og þá sérstaklega úr stjórnarandstöðu séu settar umræðulaust í nefnd og svæfðar þar svefninum langa, en ég skora á hv. þm. að sýna þá dirfsku og einlægni að taka efnislega afstöðu til tillögunnar. Menn bjóða sig fram og ná kjöri á hv. Alþingi til þess að taka afstöðu til málefna en ekki til að úthýsa þeim. Ég óska þess að tillaga mín hljóti því efnislega meðferð. Ég er sannfærð um að breytingin sem lögð er til mundi bæta störf hins háa Alþingis og þar með stjórnun landsins.

Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til hv. atvmn.