03.03.1988
Neðri deild: 64. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5433 í B-deild Alþingistíðinda. (3641)

293. mál, áfengislög

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Vegna stöðugra svívirðinga um að verið sé að tefja þetta mál hér í þinginu og jafnframt af þeirri ástæðu að ég á ekki von á því að þeir fjórmenningar hafi tekið stórum sinnaskiptum sé ég ekki ástæðu til að greiða atkvæði með því að málinu sé vísað til nefndar og greiði ekki atkvæði.