03.03.1988
Neðri deild: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5493 í B-deild Alþingistíðinda. (3661)
317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur vikið nokkuð að vaxtamálum og beint spurningum til mín í því sambandi.
Á undanförnum vikum og mánuðum hafa margir gerst talsmenn þess að vextir væru lækkaðir með valdboði af hálfu ríkisstjórnarinnar, m.a. hv. 4. þm. Norðurl. e. Ég hef hins vegar haldið því fram að nafnvextir héldust hér háir einkum vegna mikillar óvissu í verðlagsmálum en raunvextirnir héldust hér háir fyrst og fremst vegna jafnvægisleysis á lánamarkaði. Forsenda þess að vextir geti lækkað væru því annars vegar að horfur í verðlagsmálum skýrðust og hins vegar, þótt það sé nátengt, að betra jafnvægi kæmist á milli framboðs og eftirspurnar á fjármagnsmarkaðnum. Nú hefur verulega dregið úr óvissu um þróun verðlags á næstunni með þeim kjarasamningum sem gerðir hafa verið og samþykktir hafa verið í stærstu verkalýðsfélögunum hér um slóðir. Fyrri aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru enda farnar að skila árangri í ört minnkandi verðhækkunum og nú með því að stefnan í kjarasamningum hefur verið mótuð í meginatriðum fyrir þetta ár er ljóst orðið að færi er til þess að ná hjöðnun verðbólgu þegar líða tekur á árið. Ég minni hv. 4. þm. Norðurl. e. á það að þegar framfærsluvísitalan var reiknuð út í byrjun febrúar kom á daginn að hún hafði aðeins hækkað um 0,84% sem svarar til innan við 11% verðbólgu á heilu ári og um 25% verðlagshækkunar síðustu tólf mánuði. Þetta er minnsta hækkun framfærsluvísitölunnar frá því vorið 1986. Vísitala byggingarkostnaðar hefur reyndar lækkað tvo mánuði í röð, fyrst um 0,46% og svo nú um 0,1%, en slíkt hefur ekki gerst hér sl. hálfan annan áratug. Þá hækkar lánskjaravísitalan aðeins um 0,5% frá febrúar til mars og enn verðum við að fara hálft annað eða tvö ár aftur í tímann til að finna dæmi um svo litla hækkun þessarar vísitölu. Allt ber þetta að sama brunni: Þessi þróun er ótvíræð staðfesting á því að fjölþættar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru nú að bera árangur, bæði þær sem stuðluðu að því að ná hér jafnvægi í fjármálum og hinar sem stuðluðu að því að ná hér hjöðnun verðbólgu, m.a. með þeirri róttæku breytingu á aðflutningsgjöldum, vörugjöldum og söluskatti, sem allt ber að skoða í einu lagi, sem ákveðin var um áramótin. Þessum aðgerðum hefur líka verið fylgt eftir með auknu aðhaldi og upplýsingastarfi á sviði verðlagsmála. Við erum nú að uppskera árangurinn af þessu starfi. Þetta er baksviðið fyrir þeirri lækkun vaxta sem hér hefur orðið á síðustu vikum. Það sem hér er að gerast er ákaflega einfalt. Það er að koma í ljós að lögmál hagfræðinnar gilda að sjálfsögðu hér á landi eins og í öðrum löndum þótt sumir hv. þm. þverskallist við að viðurkenna þetta og þykist ekki sjá það.
Í framhaldi af verðlagsþróuninni, sem ég lýsti, hafa nafnvextir innlánsstofnana byrjað að lækka, fyrst 21. febr. og svo aftur í gær eða í fyrradag, og það er reiknað með enn frekari lækkun fram til miðs mars. Samtals hafa nafnvextir óverðtryggðra útlána þegar lækkað um 4–5%. Innlánsvextirnir hafa lækkað nokkru minna eða um 3% að meðaltali þannig að nokkuð hefur dregið úr vaxtamun í bankakerfinu með þessum breytingum. Hér skiptir einnig miklu máli að Seðlabankinn mun nú beina því til innlánsstofnana að þær reikni dráttarvextina framvegis sem dagvexti í stað þess að reikna fulla mánaðarvexti fyrir brot úr mánuði. Þetta er mikilvæg breyting, breyting sem fylgt verður eftir með löggjöf ef þessum tilmælum verður ekki hlýtt. Þetta er allt annað mál en að segja fyrir um dagbrigði í vaxtaákvörðunum. Þetta er kerfisatriði í vaxtakerfinu sem þingið á að segja fyrir um.
En ég vildi svo ljúka þessu með því að nefna að Seðlabankinn hefur auðvitað lækkað sína eigin vexti um 7–10% frá því sem var fyrir 21. febr. og forvextir á ríkisvíxlum hafa lækkað um rúmlega 4% á sama tíma. Ég vil taka það alveg sérstaklega fram vegna orða hv. 4. þm. Norðurl. e. að þær vaxtalækkanir, sem hér er um að ræða, hafa lánastofnanirnar sjálfar ákveðið. Þetta er í samræmi við þá stefnu stjórnarinnar að vaxtaákvarðanir skuli fyrst og fremst vera í höndum stofnananna sjálfra og er reyndar mælt fyrir um að svo skuli vera í lögum sem hið háa Alþingi hefur sjálft samþykkt.
Ég vildi leiðrétta það sem kom fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. þegar hann heldur því fram að stjórnin hafi lagt það fyrir bankana að lækka nú vextina. Stjórnin hefur alls ekki beitt þeirri lagagrein seðlabankalaganna sem gæti heimilað Seðlabankanum, og ég ítreka það, að fara fram á slíka lækkun, enda hefði hann þá samþykki stjórnarinnar til. Þessum ákvæðum hefur ekki verið beitt. Stjórnin hefur gert það sem er meira um vert. Hún hefur lagt grunn að raunverulegri vaxtalækkun með því að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum og með aðhaldssemi í sínum eigin ráðstöfunum. Nú vill hún hnykkja á þessu með því sem hér er lagt til. Hún mun halda þessu áfram og beita sér fyrir því af alefli að þessu upphafi til þess að ná betri skikk á lánamarkaðinn, betri skikk á vextina, verði haldið áfram.
Það er hins vegar alveg rétt sem bent hefur verið á, m.a. af hv. 4. þm. Norðurl. e., að raunvextir innlánsstofnana hafa enn ekki lækkað eins og nafnvextirnir. Það er mikilvægt að þeir geri það og það er reyndar margt sem bendir til þess að betra jafnvægi sé að komast á fjármagnsmarkaðinn. Þannig hafa raunvextirnir á frjálsasta hluta markaðsins, á bankabréfum og almennum skuldabréfum utan bankanna, byrjað að lækka að undanförnu. Einnig hefur verið mikil og góð sala í spariskírteinunum hjá ríkissjóði það sem af er þessu ári. Allt bendir það nú til að það bjóðist ekki yfirleitt betri ávöxtun á fjármagnsmarkaðinum en það sem ríkið býður þegar búið er að taka tillit til annarra atriða, ekki síst áhættu. Nú fyrst er því von til þess að raunvextir geti almennt byrjað að lækka og þess er að vænta að raunvextirnir af spariskírteinum ríkissjóðs verði lækkaðir eins og hæstv. fjmrh. hefur reyndar skýrt frá og nefnt hér í sinni framsögu. En það væri óskynsamlegt, og ég endurtek, óskynsamlegt, að grípa nú með valdboði inn í ákvörðun raunvaxta á hinum almenna markaði og tefla þannig í tvísýnu þeim árangri sem þegar hefur náðst til þess að efla sparnað og draga úr óhóflegri eftirspurn eftir lánsfé. Þróunin að undanförnu sýnir að við höfum náð vendipunkti í efnahagsþróuninni. Árangurinn af jafnvægisstefnu stjórnarinnar er að koma í ljós og nú ríður á að fylgja þessum árangri eftir. Þess vegna er það ákaflega mikilvægt, hæstv. forseti, að það frv. sem liggur fyrir hv. Nd. verði samþykkt hið allra fyrsta þannig að þingið leggi sitt af mörkum til að eyða þeirri óvissu í efnahagsmálum sem um of hefur sett sitt mark á framvindu efnahagsmála síðustu mánuði.