03.03.1988
Neðri deild: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5501 í B-deild Alþingistíðinda. (3663)

317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988

Iðnaðarráðherra (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Í umræðum hér í kvöld kom fram að í nokkrum verkalýðsfélögum hafa atkvæðagreiðslur farið á þann veg að fyrirliggjandi kjarasamningar hafa verið felldir. Í öðrum hafa samningar verið samþykktir. Af því tilefni var spurt hvort ríkisstjórnin hefði breytt afstöðu sinni til frv. sem hér er til umræðu. Af því tilefni tel ég ástæðu til þess að það komi fram að yfir standa samningar á milli Vinnuveitendasambandsins og Landssambands verslunarmanna annars vegar og Vinnuveitendasambandsins og Iðju, félags verksmiðjufólks, hins vegar og þar að auki má gera ráð fyrir því að samningaviðræður hefjist að nýju við þau félög sem hafa fellt fyrirliggjandi kjarasamning. Það er ekki ástæða fyrir ríkisstjórnina að breyta afstöðu sinni til fyrirliggjandi frv., þess stjfrv. sem hér er til umræðu, og ríkisstjórnin mun eftir sem áður mælast til þess við hv. þingdeild að frv. verði samþykkt.