03.03.1988
Neðri deild: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5506 í B-deild Alþingistíðinda. (3665)
317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að tefja þennan fund mjög mikið. Það eru aðeins fá atriði sem ég vil minnast á að gefnu tilefni frá hæstv. fjmrh. sem var undarlega beygður maður í sínum svarræðutíma. Ég þekki embætti fjmrh. Það getur verið ákaflega krefjandi og ég harma að hann skuli vera að guggna undan líklega því sem hann þarf að bera utan við embættið, til viðbótar við það sem embættið sjálft leggur honum á herðar.
En til að fá það skráð inn í þingtíðindi og vegna þess að hæstv. fjmrh. á að vita betur vil ég geta þess, hæstv. forseti, að mér hefur verið sagt að sá sem lengst hafi þagað í ræðustól á Alþingi heiti Hannibal Valdimarsson, faðir núv. hæstv. fjmrh., ekki Hreggviður Jónsson eins og hæstv. fjmrh. gat um áðan. Það vil ég fá skráð inn í bækur þingsins til viðbótar við ummæli hæstv. ráðherra fjármála um hv. þm. Hreggvið Jónsson. En tilefni þess að hv. þm. Hreggviður Jónsson beið þegjandi í ræðustól var einmitt að hæstv. fjmrh. sá sér ekki fært að koma úr sölum Alþfl. upp í þingsali þar sem hann átti að vera.
Hæstv. fjmrh. eignar mér það að ég hafi krafist gengislækkunar eða jafnvel meiri gengislækkunar þegar hún loksins kom. Þetta er rangt. Ég frábið mér að hafa nokkurn tíma krafist gengislækkunar. Hitt er annað mál að ég hef margoft bent á að vegna þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin gerði strax og hún tók við völdum var gengið fellt með aðgerðunum. Það hef ég rökstutt og er reiðubúinn að halda langa ræðu um það ef óskað er eftir. Ég kalla ekki á meiri gengislækkun og hef aldrei gert og frábið mér það. En ég undirstrika að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar voru rangar og eru rangar og það er að koma í ljós daglega að þær eru rangar. Og ég held því fram að ríkisstjórnin sé fallin.
Ég bendi hæstv. fjmrh. á að skoða frv. til fjárlaga fyrir árið 1986. Það var síðasta frv. til fjárlaga sem ég lagði fram sem fjmrh. Það frv. til fjárlaga er lagt fram með 122 millj. kr. hagnaði. Það er ekki lengra síðan en það að fjárlögin fyrir 1986, sem ég lagði fram í október 1985, voru með 122 millj. kr. hagnaði. Fjárlög sem voru lögð fram ári seinna, í október 1986, fyrir árið 1987 voru með 1,6 mill.jarða í mínus. Þetta liggur fyrir og það er ekkert hægara og ég er reiðubúinn að bíða hér í ræðustól ef hæstv. fjmrh. óskar eftir að biðja starfsfólk þingsins um að koma með þau, færa mér þau hér í ræðustól svo ég geti lesið þau upp. En ég reikna ekki með að hann rengi það sem ég segi. Hann gerir það ekki svo ég sé enga ástæðu til þess að fara að lesa upp fjárlögin frá 1985 fyrir 1986.
En af hverju voru fjárlög árið sem ég var rekinn úr fjmrn. með hagnaði þrátt fyrir það að ég tók við fjárlögum sem voru í bullandi halla 1983? 1983 voru síðustu fjárlög hv. þm. Ragnars Arnalds mjög vel undirbúin og undirstaðan öll að mínu mati rétt og gerði mér auðvelt að halda áfram sömu vinnu og hann var með, en forsendan sem Alþingi gaf honum í veganesti, forsenda ríkisstjórnarinnar var röng. Þá var gert ráð fyrir verðbólgustigi sem var um 40% við gerð fjárlaganna, en verðbólgustigið var komið yfir 100% eins og hæstv. núverandi fjmrh. man áreiðanlega og getur fundið út. Verðbólgan komst upp í 130% og ríkisstjórn hæstv. forsrh. sem þá var, Steingríms Hermannssonar, kom þeirri verðbólgu niður í eða undir 30% á skömmum tíma en það var ekki með því að hækka útgjöld um 50% á milli ára og hækka skatta um 20–30 milljarða á milli ára. Það var alveg þveröfugt. Við lækkuðum yfirleitt allan tilkostnað og gátum þannig aukið kaupmátt. Og við gerðum annað sem hæstv. fjmrh. ætti að taka til fyrirmyndar. Við eyddum ekki fyrir fram áætluðum ágóða. Það var erfitt að halda í það sem var umfram áætlun í tekjum, en mér tókst það og það gekk upp í tapið frá árinu áður. Á þessum tveimur árum rúmum sem ég var fjmrh. nægði þessi umframágóði, umframtekjur, til þess að ég gat skilað síðasta frv. til fjárlaga með tekjuafgangi. Það er þetta sem ég vil meina þegar ég segi: Það má ekki vera maður í ráðherraembætti fjármála sem ekki hefur reynslu af því að reka fyrirtæki. Fjmrn. er ekkert annað en fyrirtæki. Þetta er stærsta fyrirtæki landsins. Þetta er það fyrirtæki sem sér um alla tollafgreiðslu, öll samskipti inn og út í peningamálum hvort sem það er við önnur ráðuneyti eða atvinnulífið í landinu. Og það er ekki sama hvernig fyrirtæki eru rekin. Það er langt frá því.
Það var þessi leið sem reyndist mér farsæl í fullu samstarfi og með mikilli aðstoð hæstv. forsrh. sem þá var, Steingríms Hermannssonar. Það var mjög gott samstarf okkar á milli um þessi mál öll. Þá tókst að ná verðbólgunni niður og skila fjárlögum hallalausum. Það er það sem ég hefði viljað sjá núverandi hæstv. fjmrh. vinna að. Ég veit um erfiðleikana. Þeir eru miklir. Það hefði kannski ekki tekist að vinna sig út úr vandanum, en viðurkenna hann og gefast samt upp og leggja meiri skatta á fólkið til að hafa það sem þarf til að eyða því sem hugurinn girnist. Það er ekki leiðin.
En ég ætla að biðja hæstv. fjmrh. um að leiða mig ekki hingað upp aftur til að afbiðja mér duttlunga hans þegar hann telur það henta sér í málflutningi að klína á mig skoðunum eða óskum, sérstaklega ekki þegar það er um álagningu skatta eða gengislækkun vegna þess að það hef ég aldrei nokkurn tímann þolað.