07.03.1988
Sameinað þing: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5560 í B-deild Alþingistíðinda. (3703)

265. mál, launabætur

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Það fer að verða nokkuð algengt hér á hv. Alþingi að þegar rætt er um stöðu láglaunafólks eða þegar rætt er um mismun landsbyggðar og þéttbýlissvæðisins hér á Reykjanesi setji menn upp heilagsandasvip og bendi á að ef einhverjar breytingar eigi sér stað á þessum vettvangi blasi við þetta voðalega ástand sem við höfum búið við á undanförnum árum og síðustu mánuðum, þ.e. verðbólga. Ef eitthvað á að gera og eitthvað á að laga til, hvort sem verið er að ræða um það út frá þeirri till. sem hér liggur fyrir að greiða skuli launabætur eða jafnvel er verið að ræða um það hvernig standi á því að verið er að fella samninga þá sem nú hafa verið gerðir. Þegar menn eru að velta vöngum yfir því hvernig eigi að bæta kjör þessa fólks sem hefur verið að fella samningana er byrjað að tala um verðbólgu.

Það hefur ekki verið mikið um það talað af stjórnvöldum á undanförnum mánuðum að þessi verðbólga hefur verið að skerða kjör þessa fólks og þetta fólk sem núna er að leita eftir rétti sínum er aðeins að leita eftir því að fá jafnaða stöðu.

Þegar er verið að ræða þessa hluti og bera saman, tala um launamismun og annað eftir því, er eins og mér finnist það að oft á tíðum sé ekki farið mjög djúpt ofan í hlutina. Það er talað um það að það standist ekki að ákveðinn hluti þjóðfélagsþegnanna þurfi að njóta þessara launakjara en menn átta sig ekki á því hver sá grundvöllur raunverulega er sem þarna er verið að byggja á. Að mínu mati er hann sá að atvinnuvegunum í þjóðfélaginu hefur verið mismunað og hefur verið mismunað meira núna á síðustu missirum, á stjórnartíma núverandi ríkisstjórnar og þeirrar ríkisstjórnar sem áður sat, en áður hefur verið, enda er svo komið í landinu að launamismunur er meiri en nokkru sinni fyrr. Og hvernig er verið að mismuna atvinnuvegum í landinu? Það er verið að mismuna þeim á þann hátt að undirstöðuatvinnuvegi okkar, sjávarútveginum, er varla gert fært að starfa með ýmsum aðgerðum opinberra aðila, m.a. með því að hamla ekki gegn þeirri verðbólguþróun sem verið hefur hér í landinu á undanförnum árum og með stjórnaraðgerðum með því að standa að þeirri þenslupólitík sem rekin hefur verið undanfarna mánuði. Það er ekki nóg með það að hlutirnir eigi sér stað í verðlagsþróun heldur er það beint, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e. var að benda hér á áðan, með þeirri vaxtapólitík sem rekin er. Ég tek samt undir það sem hv. 2. þm. Norðurl. e. sagði að það er dálítið annar tónn í ræðu þess alþýðuflokksmanns en hæstv. viðskrh. þegar hann er að ræða þessi mál. Þau fara nokkurn veginn inn á þann vettvang sem hv. 3. þm. Norðurl. e. er að gagnrýna.

Við höfum horft upp á það að undanförnu að sjávarútvegurinn í landinu, sérstaklega þó fiskvinnslan, hefur verið rekinn með miklum halla. Hvað er að gerast þá? Það er að gerast að þessi fyrirtæki hafa ekki möguleika til þess að greiða því fólki sem hjá þeim vinnur mannsæmandi laun. Það er alveg sama þó að sagt sé, eins og hv. þm. Kristín Halldórsdóttir sagði áðan, að þeir sem kaupa vinnuna eigi að greiða fyrir hana. Það bara gengur ekki upp við þær aðstæður þegar atvinnuvegurinn sem þarf að borga launin hefur ekki möguleika til þess.

Í dag er þetta á þann veg að sjávarútvegurinn, fiskvinnslan, hefur verið að éta upp sinn höfuðstól meira og minna. Á þeim tíma þegar hér eru auglýstar gullbækur, kjörbækur, trompbækur og hvað annað er það að gerast í fjármagninu sem liggur inni í fiskvinnslunni á Íslandi að þetta er að étast upp. Þetta er að brenna. Það hafa verið haldnar margar hjartfólgnar ræður á hv. Alþingi og víðar um það að sparifé landsmanna hafi verið að brenna og brenna á þessum tíma. Það er ekki mikið talað um það í dag að fjármagn fiskvinnslu og útgerðar og annarra undirstöðuatvinnuvega þjóðarinnar sé á báli um þessar mundir og hafi verið það í allt of langan tíma. Þær aðgerðir sem gerðar voru núna fyrir skömmu og samþykktar voru hér á hv. Alþingi ganga allt of skammt. Þær hafa ekki lagað til fyrir þennan undirstöðuatvinnuveg eins og þarf. Ég er alveg sannfærður um það að það fólk sem hefur verið að fella samningana vítt og breitt um landið á undanförnum dögum er fyrst og fremst að mótmæla þessari stöðu. Það veit að þegar það er að mótmæla þessari stöðu er það að mótmæla því kaupi sem þessi atvinnurekstur getur borgað þessu fólki.

Flokksbróðir 3. þm. Norðurl. e., hæstv. viðskrh., nefndi það hér uppi í Ed. að við alþýðubandalagsmenn gerðumst nú allmiklir málsvarar útgerðarauðvaldsins á Íslandi og þótti nokkuð merkilegt. Það er nú svo að tveir ráðherrar Alþfl. eru hálfgerð fósturbörn eins útgerðarauðvalds. Á meðan þeir voru að alast upp á Ísafirði og kratarnir höfðu þar forustu var eitt aðalatvinnufyrirtækið á Ísafirði Samvinnufélag útgerðarmanna. Það getur verið að það sé kannski þannig víðar um landið að meginhluti íslenskrar útgerðar og íslenskrar fiskvinnslu sé á vettvangi félagslegs reksturs. Ég benti á það í Ed. að það er nú svo að stærsta frystihús á Íslandi, Grandi hf., þó að hann heiti hlutafélag, er að meiri hluta til í eigu Reykjavíkurborgar, félagslegrar stofnunar. Svona má telja hringinn í kringum landið. Meginhluti frystihúsa sem er í viðskiptum hjá Sambandinu, samtökum sjávarafurðadeildar Sambandsins, er félagslega uppbyggð fyrirtæki. Eins er með Útgerðarfélag Akureyringa, Síldarvinnslan á Neskaupstað og fleiri og fleiri. Getur það verið að sú pólitík sem rekin hefur verið undanfarandi missiri, undir forustu Framsfl. og Sjálfstfl. og nú með tilstilli Alþfl., hafi ekki mikinn áhuga fyrir að standa að baki þessa atvinnurekstrar í landinu, þessa undirstöðuatvinnurekstrar, vegna þess að að stórum hluta til er þetta félagsleg uppbygging og þar sem hún er ekki félagsleg uppbygging er hún „sósíaliseruð“ á þann veg að það er ætlast til þess að þessi atvinnurekstur haldi áfram rekstri hvað sem tautar og raular og hann leggur það á sig og gerir það á tímum eins og núna með þeim afleiðingum að innan stutts tíma, ef áfram heldur sem horfir, stendur þessi atvinnurekstur meira og minna á þann veg að honum verður ekki haldið áfram, hvorki með þeim láglaunum sem hann býður í dag né á annan hátt. Þarna verður að eiga sér stað breyting til þess að við getum vonast til þess að launakjör á Íslandi breytist.