07.03.1988
Sameinað þing: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5571 í B-deild Alþingistíðinda. (3709)
265. mál, launabætur
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Nú er stundin komin til þess að mynda nýja ríkisstjórn. Nú skulum við koma henni frá, þeirri sem enn þá situr, og mynda ríkisstjórn á grundvelli þeirra stefnuyfirlýsinga sem hafa verið fluttar fyrir alla stjórnmálaflokkana hér í dag. Nú skulum við láta ráðherrana vita sem eru flestir úti í löndum, senda þeim skeyti, að þeir verði óbreyttir þegar þeir koma hingað til landsins aftur vegna þess að það hafi verið mynduð ný ríkisstjórn, jafnréttis, félagshyggju og samvinnu, ríkisstjórn sem taki undir með þeim sem eru að gera uppreisn egn ranglætinu allt í kringum landið þessa dagana. Ég hlýt að draga þessa ályktun, eða hvað, herra forseti? Það hlýtur að vera að á bak við hinar stóru yfirlýsingar sé alvara. Menn segja: Menn eru að gera uppreisn áður en lífskjörin hrynja á landsbyggðinni. Það hlýtur að vera að á bak við þau orð sé alvara og menn ætli að gera meira en að tala. Ég trúi ekki öðru. Ég trúi því ekki að menn ætli að taka þannig á hlutunum að niðurstaðan verði sú að í rauninni sé það allt markleysa sem þeir hafa verið að lýsa yfir úr þessum virðulega ræðustól í dag.
Það er verið að skora á ríkisstjórnina að taka á þessum málum. Fyrir alla muni, við skulum ekki vera að skora á hana að taka á einu eða neinu. Það er best að hún fari. Á hverju hefur hún verið að taka? Hv. 5. þm. Suðurl. rakti það áðan. Hún hefur verið að hækka útgjöld til lífsviðurværis á landsbyggðinni aukalega með matarskattinum eins og hv. þm. minnti á. Hverjir greiddu atkvæði, mín kæru, með þessum matarskatti? Ekki hv. þm. Karvel Pálmason (KP: Nei.) en stjórnarliðið allt eins og það lagði sig. Það studdi þetta. Ætla menn svo í krafti lélegrar fjölmiðlunar hér í þessu landi, veikrar fjölmiðlunar, að láta sér detta það í hug að þeir komist upp með að segja allt annað í dag en þeir gerðu í gær? Það gengur auðvitað ekki. Það verður auðvitað að rífa ofan af þennan tvískinnung og ég er sannfærður um að á bak við yfirlýsingar, þau orð sem hafa fallið í þessari umræðu er jákvæður vilji. Þess vegna er ekkert annað að gera en að henda þessari ríkisstjórn sem enn þá situr, skipta um stjórn og mynda aðra.
Hv. þm. Guðni Ágústsson kvartaði líka yfir ástandinu á landsbyggðinni að öðru leyti, t.d. í sambandi við atvinnuvegina, og hv. 1. þm. Vestf. gerði það líka. Hvað er að gerast þar? Hvað hafa vextir hækkað mikið í fiskvinnslunni? Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir, m.a. frá Sambandsfrystihúsunum, hækkuðu vextir frá árslokum 1986 til ársloka 1987 um 70% í raunverulegum útgjöldum Sambandsfrystihúsanna í landinu. Síðan hafa þessir hv. þm. stjórnarliðsins sem betur fer verið að taka ýmislegt aftur af því sem þeir gerðu fyrir jólin og það er fínt, eins og með uppsafnaðan söluskatt í sjávarútvegi og launaskatt á sjávarútveginn. Þeir hafa verið að taka það aftur núna. En kannski er umræðan í dag til marks um það að þeir séu tilbúnir til þess að halda áfram og taka fleira aftur af vitleysunni sem hefur gengið yfir í vetur.
Ég kvaddi mér hins vegar hljóðs hér, herra forseti, fyrst og fremst til þess að vekja athygli á því að það er merkilegt að þegar kemur að umræðu um láglaunafólk og kjör þess er vakinn upp einn alveg sérstakur draugur sem er alltaf notaður til þess að reyna að hræða þetta fólk. Það er verðbólgudraugurinn. Það er sagt: Ef þið hækkið kaupið úr 31 500 upp í 36 500 eða hvað það er er komin verðbólga og hún étur kaupið ykkar og auðvitað hefur það aftur og aftur gerst af þessum flokkum sem hafa ráðið hér á Alþingi á undanförnum árum að þeir hafa notað verðbólguna til að halda kaupinu niðri. En hvað sögðu þeir þegar vextirnir voru að skrúfast upp? Hvað sögðu þeir þá? Var haldið mikið af ræðum hér um það að verðbólgan færi upp? Hvað sögðu þessir menn og þessir flokkar þegar var verið að byggja Flugstöðina fyrir milljarða kr., 800 millj. kr. fram yfir kostnaðaráætlun? Var þá sagt: Þetta veldur þenslu og veldur verðbólgu og má ekki gerast? Nei, það varð að byggja flugstöð. Hvað sögðu þeir þegar „kringlurnar“ risu upp um allt? Sögðu þeir: Þetta gengur ekki. Það verður að stöðva þessi útgjöld. Það þarf að draga úr þenslu. Þetta veldur verðbólgu. Hvað sögðu þeir? Hvað gerðu þeir? Ekki neitt. Hvað gerðu þeir þegar gefin var yfirlýsing um það og tekin um það ákvörðun að fiskverð ætti að vera frjálst og allir lofuðu það og prísuðu svo að segja allt í kringum landið? Menn töldu það gott en bentu menn á það að það þýddi verðbólgu? Bentu menn á það að fiskverð hefur hækkað núna frá því að fiskverð var gefið frjálst um 10–12% að raunvirði? Og svo er rætt um þessi lágu laun og vondu lífskjör sem eru til, m.a. eru viðskiptamenn Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar 5000 talsins. Þetta er líka fólk. En það er ekki bara verðbólgan sem er notuð heldur er líka gripið til þess að birta fyrirsagnir og fréttir um ásóknina í sólarlandaferðirnar og troðfulla veitingastaði. Og ég man eftir því þegar hv. 1. þm. Vestf. Matthías Bjarnason hafði í undirbúningi tillögur um tilteknar breytingar á greiðslum fyrir lyf og læknisþjónustu. Þá vitnaði hann til þess að það væru bara troðfullir veitingastaðirnir hér í Reykjavík alveg kvöld eftir kvöld og þetta sýndi það nú að það væri til nóg af peningum í landinu.
Menn skulu ekki, hvorki með verðbólguhótuninni né heldur þessu, reyna að komast undan þeim kjarna málsins sem liggur fyrir og hann er sá að það eru þúsundir og aftur þúsundir manna í þessu landi sem búa við lífskjör sem eru siðlaus og sem eru til skammar og menn skulu heldur ekki koma hér upp í þennan ræðustól aftur og aftur og flytja í rauninni árásarræður á það sem þeir eru og hafa sjálfir verið að gera.
Það er rétt hjá hv. þm. Guðna Ágústssyni, hárrétt, það er akkúrat uppreisn sem verið er að gera í landinu þessa dagana. Það er uppreisn gegn frjálshyggjunni og afleiðingum hennar. Það er uppreisn gegn ranglætinu og það er uppreisn gegn vaxandi mismunun í lífskjörum í þessu landi. Og það er launafólk og það er landsbyggð sem er að rísa upp. Það sem þarf auðvitað að gerast núna er það að þessir aðilar, hið almenna launafólk í landinu annars vegar og landsbyggðin hins vegar, taki höndum saman um nýja stjórnarstefnu sem losar okkur við þessa óværu, þessi ósköp sem er þannig að stjórnarþingmennirnir þora ekki annað, þora ekki annað en að stökkva hér upp í stólinn hver á fætur öðrum og hrópa þessa stefnu niður sem þeir bera ábyrgð á.
Varðandi þessa till. sem liggur fyrir, herra forseti, hef ég þegar sagt um hana nokkur orð en segi til viðbótar þetta út af orðum hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur: Ég er ekkert búinn að gleyma þessum láglaunabótum og ég tel í rauninni enga ástæðu til þess að gleyma þeim. Ég tel þvert á móti að það sé nauðsynlegt að muna eftir þeim. Og af hverju? Það er vegna þess að þær voru mistök svo að segja frá upphafi til enda. Af mistökum á að læra. Mistök vegna þess að þarna var ónýtt skattakerfi notað sem grundvöllur til að dreifa út peningum með góðum hug til tekjujöfnunar í landinu. Og það er auðvitað gallinn við grunninn undir till. eins og hún liggur fyrir, þeirri sem hér er til meðferðar. Það er vissulega ljóst, herra forseti.
Ég er að ljúka máli mínu, en ég ætla samt að segja aðeins eina setningu út af þessu sem heyrist stundum úr þessum ræðustól: Verkalýðshreyfingin getur í raun og veru ekki lagað kaupið, löggjafinn verður að koma til. Verkalýðshreyfingin getur auðvitað lagað kaupið ef menn snúa bökum saman og brjóta niður sérhyggjuna og vinna saman. Þá getur verkalýðshreyfingin þetta auðvitað. Auðvitað er það þannig að menn mega helst ekki segja það í verkalýðshreyfingunni að hún geti þetta ekki og löggjafinn verði að koma til. Hver er löggjafinn? Hann er þingið og það er auðvitað staðreynd að hin borgaralegu öfl, hægri öflin í þessu landi, hafa mjög oft haft undirtökin hér. Verkalýðshreyfingin hefur hins vegar með baráttu sinni stundum getað lyft laununum í trássi við óhagstæðan pólitískan meiri hluta og uppskriftin að góðum kjörum, skárri kjörum, jöfnuði og betri kjarasamningum er auðvitað að saman fari sterkt pólitískt félagshyggjuafl í þessu landi og verkalýðshreyfing sem berst, verkalýðshreyfing sem gerir uppreisn gegn ranglætinu.