08.03.1988
Sameinað þing: 57. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5585 í B-deild Alþingistíðinda. (3720)
243. mál, aðgerðir í sjávarútvegi
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Hér er á ferðinni frv. sem segja má að menn hafi búist við að yrði fjallað um nokkuð fyrr. Það hefur legið dálítið án þess að það væri tekið til afgreiðslu. Það má kannski segja að aðalatriði frv. sé það að verið er að samþykkja brbl. sem gefin voru út í sumar en þó með ansi miklum breytingum og þeim breytingum helst að fallið er frá aðalatriði brbl., þ.e. því að uppsafnaður söluskattur skuli endurgreiddur til fiskvinnslunnar, en ég hefði einmitt haldið að sá hluti málsins hefði þurft að vera kominn fyrr til afgreiðslu hér á hv. Alþingi til þess að fyrirheit um þessa endurgreiðslu yrðu efnd fyrr. Vera má að þegar sé farið að endurgreiða þetta og væri fróðlegt að heyra hvað ráðherra segir um það. Það má vera að svo sé. En eins og staðan er í fiskvinnslunni nú hefði ekki veitt af því að það væri gert.
Ég held að það sé ekki úr vegi að lofa hv. þm. að heyra rökin fyrir brbl. til að minna menn á hvað þeir voru þá framsýnir og sáu vel fyrir hvernig hlutirnir mundu ganga fyrir sig og hversu einföld þau ráð voru sem áttu að duga til þess að draga úr þenslu og verðbólgu eins og þar segir. Með leyfi forseta ætla ég þá að lesa upp það sem forseti Íslands gjörir kunnugt með brbl.:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Sjútvrh. hefur tjáð mér að brýna nauðsyn beri til að grípa nú þegar til efnahagsráðstafana til þess að hemja verðbólgu og treysta jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þar á meðal séu ráðstafanir í sjávarútvegi til að draga úr þenslu og jafna aðstöðu milli greina innan sjávarútvegsins. Hafa þeir flokkar sem að ríkisstjórninni standa tekið inn í stjórnarsáttmála sinn ákvæði þar að lútandi.“
Ég held að það sé ástæðulaust að hafa fleiri orð um þetta annað en það að mikið voru þeir ráðherrar og sú ríkisstjórn framsýn sem gerði þessa hluti sem upphafsverk sín og töldu það að þessir hlutir væru nauðsynlegir kannski fyrst og fremst til þess að hemja verðbólgu og draga úr þenslu.
Þetta mál kemur til umfjöllunar í sjútvn. þar sem ég á sæti og við lítum sjálfsagt á þetta og fjöllum um það í nefndinni. Og varla mun á okkur nefndarmönnum standa að flýta málinu hér í gegnum deildina.