08.03.1988
Neðri deild: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5590 í B-deild Alþingistíðinda. (3724)

299. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það frv. sem hér hefur verið mælt fyrir er að mínu mati þarflegt innlegg í umræðu um húsnæðismálin einmitt nú þegar boðað hefur verið af hæstv. félmrh. að endurskoða skuli húsnæðislöggjöfina frá grunni, ef ég hef skilið málflutning hæstv. ráðherra rétt í umræðum hér um þessi mál á yfirstandandi þingi.

Ég tel að sú hugsun, sem kemur fram í frv. sem meginatriði þess, að greiða fyrir byggingu leiguíbúða úti á landi og tryggja að fjármagn flytjist ekki með þeim hætti sem reyndin hefur orðið undanfarin ár frá landsbyggðinni til byggingar íbúðarhúsnæðis hér á Reykjavíkursvæðinu sé fyllilega réttmæt.

Við alþýðubandalagsmenn höfum haft áhyggjur af þessari þróun og vakið athygli á henni með ýmsum hætti, m.a. með þátttöku í starfi milliþinganefndar um húsnæðismál sem skilaði áliti 1986 að mig minnir þar sem sérstök áhersla var lögð á, í framhaldi af setningu laganna um Húsnæðisstofnun ríkisins á fyrri hluta árs 1986, að félagslega íbúðarkerfið yrði styrkt, reglur mótaðar um það. Sá hefur raunar lengi verið vilji okkar alþýðubandalagsmanna að þar yrði tekið á með öðrum hætti en reyndin hefur á orðið. Ég fagna því að af hálfu stjórnarliða og hv. þm. Vilhjálms Egilssonar og Matthíasar Bjarnasonar, sem eru flm. þessa máls, skuli koma fram stuðningur við þessi sjónarmið og þeir skuli lýsa vilja sínum með þeim hætti sem fram kemur í frv. til þess að taka á þeim gífurlega miklu fjármagnsflutningum sem nú eiga sér stað í gegnum húsnæðislánakerfið frá landsbyggðinni til Reykjavíkursvæðisins. Þetta kemur fram með býsna ljósum hætti í fskj. í grg. frv. og sem hv. fyrsti flm. gerði skýra grein fyrir í máli sínu áðan.

Ég fékk upplýsingar frá hæstv. félmrh. nú ekki alls fyrir löngu varðandi skiptingu umsókna um húsnæðislán eftir kjördæmum. Það barst sem skriflegt svar á þskj. 555 í fyrri hluta febrúarmánaðar sl. Þar blasir við sú þróun og sú mynd, sem einnig er vakin athygli á í þessu frv., að nálægt 3/4 af umsóknum um húsnæðislán eiga upptök sín eða stefna til ráðstöfunar viðkomandi fjármagns hér á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Reykjavíkur- og Reykjaneskjördæmi. Þetta er auðvitað langt umfram hlutfall í íbúatölu viðkomandi svæða. Ég hygg að íbúahlutfallið sé eitthvað nálægt 60% í þessum kjördæmum tveimur án þess að hafa tekið það saman sérstaklega, þannig að menn sjá á því hvers konar tilfærsla er hér á ferðinni og hv. frummælandi, fyrsti flm. þessa máls, nefndi tölur í því sambandi um hversu háar fjárhæðir þarna væri að ræða.

Ég tek eindregið undir það að húsnæðismálin eru mjög gildur þáttur í sambandi við byggðaþróun í landinu þó að vissulega komi þar margir fleiri þættir til, efnahagsstefna ríkisstjórnar á hverjum tíma, og mætti margt um það segja, en ég ætla ekki að fara út í það hér hvernig á þeim málum hefur verið haldið.

Það er staðreynd að skortur á leiguhúsnæði stendur vexti öflugra framleiðslustaða víða um landið fyrir þrifum. Víðast hvar á sjávarútvegsstöðum í landinu er verulegur skortur á leiguhúsnæði og þetta veldur því m.a. að fólk, sem vill reyna fyrir sér á þessum stöðum með atvinnu og hugsanlega búsetu í huga, annaðhvort kemst ekki í húsnæði eða fær inni í algjörlega óviðunandi húsnæði með litlu öryggi um að fá haldið því. Slíkar viðtökur fyrir t.d. fólk sem er búsett hér á Reykjavíkursvæðinu og vill leita út á landið eru auðvitað ekki til þess fallnar að laða fólk til að taka bólfestu á þessum stöðum. Sama gildir einnig um ungt fólk sem er uppvaxandi á viðkomandi stöðum og fólk sem færir sig til milli byggðarlaga á landsbyggðinni. Það ætti að eiga innangengt í leiguhúsnæði á viðkomandi stað á meðan það er að kanna þar aðstæður með tilliti til hugsanlegrar fjárfestingar á eigin vegum.

Ég tel að þau nýmæli sem koma fram í frv. um heimild til þess að veita einstaklingum og fyrirtækjum heimild til byggingar leiguíbúða og aðgang að fjármagni séu mjög athyglisverðar. Ég hef ekki kannað þetta mál í hólf og gólf, þannig að ég sé að taka neina endanlega afstöðu til einstakra atriða, en tek mjög undir það að þessi mál þarf að skoða vandlega í sambandi við endurskoðun á húsnæðislöggjöfinni sem boðað er að fari fram nú alveg á næstunni.

Það er óskandi að það starf taki ekki mjög langan tíma. Það er geysilega brýnt að þarna verði mótaðar nýjar reglur í ljósi dýrkeyptrar reynslu sem við höfum fengið eftir endurskoðun húsnæðislaganna 1986. Allt það sem gert hefur verið frá þeim tíma er tiltölulega lítils virði í sambandi við þá öfugþróun sem snýr að byggingu íbúðarhúsnæðis úti á landi.

Það hefur ekki komið fram með skýrum hætti hvernig hæstv. félmrh. ætlar að standa að þessari endurskoðun laga um Húsnæðisstofnun ríkisins, og þar sem ráðherrann er ekki viðstaddur er ekki hægt að inna hann eftir því sérstaklega. Fram hefur hins vegar komið að vinnuhópur hafi verið settur á laggirnar til þess að vinna að því verki eða undirbúa það. Þetta hlýtur að koma fram innan mjög skamms og væri auðvitað æskilegt að stjórnarandstaða ekki síður en stjórnarliðar fengju vitneskju um það með hvaða hætti hugmyndin væri að standa að endurskoðun í þessum mjög þýðingarmikla málaflokki.