08.03.1988
Neðri deild: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5592 í B-deild Alþingistíðinda. (3725)

299. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Kristín Einarsdóttir:

Herra forseti. Ég tek undir það sem kom fram í máli 1. flm., hv. þm. Vilhjálms Egilssonar, að grípa þurfi til aðgerða til þess að sporna við því að fé lífeyrissjóðanna úti á landsbyggðinni sé notað fyrst og fremst til að byggja á höfuðborgarsvæðinu. En ég held að það gæti e.t.v. orðið dálítið erfitt í sumum tilvikum að framkvæma það sem hér er gert ráð fyrir, að fé lífeyrissjóðanna fari ekki úr héraði, vegna þess að margir lífeyrissjóðir eru bundnir við allt landið. Þetta er þó sjálfsagt bara tæknilegt atriði og væri örugglega hægt að finna út úr því hversu mikið fé íbúar hvers svæðis greiða í lífeyrissjóð.

Ég bendi á það að sveitarfélög úti á landi hafa fyrst og fremst talað um að það vanti leiguíbúðir. Margir sveitarstjórnarmenn hafa bent á að víða úti á landi standi það atvinnuástandi fyrir þrifum og það komi líka í veg fyrir að fólk flytji til svæðanna. Það er því ekki víst að nægilegt sé, eins og lagt er til í frv. sem er til umræðu, eingöngu að binda fé þar vegna þess að mörg sveitarfélög úti á landi eiga mjög erfitt með að leggja fram það fé sem þarf á móti Byggingarsjóði ríkisins til að byggja leiguíbúðir. Ég get bent t.d. á það að í Byggingarsjóði verkamanna þurfa sveitarstjórnir að leggja fram 15% til þess að byggja leiguíbúðir. Í almenna kerfinu er það mjög erfitt því að það er mikið, mikið hærra hlutfall þar, þannig að það væri spurning hvort ekki þyrfti að grípa til enn frekari aðgerða til þess að auðvelda sveitarfélögunum að byggja leiguíbúðir.

Það er kannski sérstaklega núna þegar búið er að skerða Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem þetta getur enn frekar orðið vandamál því að ég held að það geti reynst mörgum sveitarfélögum erfitt að byggja eitthvað núna þegar búið er að kreppa svo að eins og gert hefur verið. Ég tek því undir það sem hér hefur komið fram og ég vil gjarnan skoða þessa leið sem bent er á þó að fleiri leiðir þurfi að koma til ef á að sporna við hinni miklu fjármagnsfærslu frá landsbyggðinni yfir til höfuðborgarsvæðisins.