08.03.1988
Neðri deild: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5602 í B-deild Alþingistíðinda. (3734)
322. mál, áfengisfræðsla
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég kem upp til að lýsa stuðningi mínum við það frv. til laga sem hér er flutt á þskj. 638 og hefði staðið upp og lýst stuðningi mínum við frv. það sem var flutt á undan á þskj. 637 hefði það staðið eitt og sjálfstætt. Þessi tvö frv., annað hefur verið rætt og afgreitt til nefndar og hitt er nú rætt, eru bæði frv. sem ég styð af heilum hug og þakka flm. fyrir að hafa flutt þetta á Alþingi, m.a. til að draga athygli á þörfinni fyrir, eins og þar segir, fyrirbyggjandi starfsemi í báðum þessum tilfellum. Þrátt fyrir það mikla og góða starf sem unnið er í þessum málaflokkum í þjóðfélaginu eru nýjar tillögur alltaf jafntímabærar. Þessar tvær tillögur geta ekkert gert annað en gott þjóðfélaginu í heild ef þær ná fram að ganga á þann hátt sem flm. hefur hugsað þær.